Frjáls verslun - 01.10.1997, Qupperneq 49
verzlunin hóf samstarf við EXPERT hafa við-
skiptavinir séð hér á markaði heimilistæki á
svipuðu verði og gerist í löndunum í kringum
okkur. Um leið og vöruverðið lækkar er fyrirtæk-
ið með þessu að svara kröfum markaðarins um
að hægt sé að koma i eina verslun og velja þar
úr öllum merkjum á einum stað í stað þess að
neytendur þurfi að fara í margar verslanir og
bera saman vörur og verð. Markmiðið er: Hag-
ræði og lækkað vöruverð.
MESTUR VÖXTUR í SMÁSÖLUDEILDINNI
Raftækjaverzlun íslands hf. var stofnuð árið
1929 og var markmið fyrirtækisins nýting
straumvatna til raforkuframleiðslu með nýrri
tækni, innflutningur á búnaði til raforkuvinnslu
og einnig innflutningur á öðrum rafmagnstækj-
um. í dag er Raftækjaverzlun íslands deilda-
skipt. Deildirnar eru þrjár: Tæknideild, heild-
söludeild og smásöludeild. Tæknideildin ann-
ast meðal annars sölu á háspennubúnaði til
rafveitna, heildsalan selur heimilistæki og
Ijósaperur og smásöludeildin heldur utan um
rekstur verslunar fyrirtækisins í Skútuvogi sem
var opnuð í desember 1995. Mestur vöxtur síð-
ustu tvö árin hefur verið í smásöludeildinni,
ekki síst eftir að Raftækjaverzlun íslands hf.
gerðist aðili að EXPERT keðjunni og nú stefnir í
að velta fyrirtækisins tvöfaldist á þessu ári.
15-20%
Eigandi Raftækjaverzlunar íslands hf. er
Þorkell Stefánsson rafmagnstæknifræðingur
sem kom að fyrirtækinu árið 1985, þá sem
framkvæmdastjóri og meðeigandi Þorsteins
Bernharðssonar, en fyrirtækið hafði þá verið í
eigu hans um nokkurra áratuga skeið. í stjórn
Raftækjaverzlunar íslands eru nú Sigurbjörn
Magnússon hrl., Haraldur Gunnarsson MBA,
Kolbrún Anna Jónsdóttir og Þorkell Stefánsson,
sem er stjórnarformaður. Framkvæmdastjóri
Raftækjaverzlunarinnar í dag er Snorri Ingason
og sölustjóri Sigurður Helgason. Fyrirtækið hef-
ur í þjónustu sinni sérmenntað starfsfólk, raf-
virkja og rafmagnstæknifræðinga og sérfræð-
inga í markaðsmálum heimilis- og raftækja.
Það rekur viðgerðarverkstæði í Skútuvoginum
auk þess sem það er með verktaka í sérhæfðri
viðgerðarþjónustu úti í bæ.
Hjá Raftækjaverzlun Islands geta viðskiptavinir meðal annars valið úr ítölsk-
um eldunartækjum frá ítölsku framleiðendunum Nardi og Airone. Þetta eru
fyrirtæki sem byggja á áratuga reynslu, en vörur þeirra eru nýjar á markaði
hérlendis.
BYGGINGAVÖRUMARKAÐUR OPNAÐUR í
NAINNIFRAMTIÐ
En Raftækjaverzlun íslands lætur sér ekki
nægja að vinna að því að tryggja neytendum
lægra verð á rafmagns- og heimilistækjum. Að
undanförnu hafa forráðmenn Raftækjaverslun-
arinnar átt í viðræum við norska, finnska, rúss-
neska og kanadíska aðila innan
byggingavörugeirans sem og fjár-
festa í þessum löndum með stór-
innflutning á byggingarvörum í
huga og opnun byggingavöru-
markaðs. Að sögn Þorkels Stef-
ánssonar, eiganda Raftækjaverzlunarinnar, er
útlitið bjart og meira en hugsanlegt að Raf-
tækjaverzlun íslands opni byggingavörumarkað
í náinni framtíð þar sem markmiðið verður hið
sama og með magninnflutningi á raftækjum, að
lækka vöruverðið til neytenda umtalsvert og
koma í veg fyrir að verðið hækki. S3
RflFTeJílPEItf LUN ÍSLÍ1MD8 If
- A N N O 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
ir
■
Úr verslun í Skútuvogi þar sem úrval tækja er mikið.
49