Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 54
um, sem voru að komast á nýtt stig um
það leyti sem þeir voru að stofna OZ, og
hafa kvikmyndirnar Abyss og Term-
inator sérstaklega verið nefndar sem
innblástur þeirra.
Guðjón Már Guðjónsson er sjálimenntaður tölvugrúskari úr Sundunum. Fyr-
irtæki hans, OZ er með 75 manns í vinnu og aðsetur í þremur heimsálfum.
ótal valkostum og nokkrar mynda-
bandaleigur keyptu búnaðinn og notuðu
með góðum árangri. Hugbúnaðurinn
var kynntur og seldur í Tölvubankanum
hjá Guðjóni eldra og það kom alltaf jafn
flatt upp á viðskiptavinina þegar þeir
komu á staðinn og voru kynntir fyrir
höfúndunum Guðjóni og Róbert Viðari,
vini hans og jafnaldra.
Skömmu síðar bjó Guðjón til hug-
búnað sem var sérsniðinn fyrir billjarð-
stofur og hélt utan um borðaleigu, sæl-
gætissölu og hvaðeina. Þessi búnaður
þótti það óvenjulegur að reynt var að
kynna hann á markaði erlendis en um
svipað leyti kom ný gerð billjarðborða
sem gerði hann óþarfan.
TÖLVUMÚSIK í BÍLSKÚRNUM
Þannig var Guðjón að mörgu leyti
óvenjulegur drengur sem var á undan
sínum jafnöldrum á margan hátt og
hugsaði um aðra og öðruvísi hluti og
kaus frekar að grúska í sinni tölvu en að
leika sér í fótbolta. Á hinn bóginn var
hann ósköp venjulegur drengur sem
átti sína vini og stofnaði með þeim bíl-
skúrshljómsveit sem keppti í Músíktil-
raununum í Tónabæ og brallaði ýmis-
legt. Með Guðjóni í bflskúrsbandinu
voru þeir Óttar Pálsson, Ingvar Þór
Ólafsson og Róbert V. Bjarnason. Ekki
þarf að koma á óvart að tölvur komu
töluvert við sögu í tónlistarflutningnum.
Guðjón lék á hljómborð og tölvu
sequencer í bandinu. Hljómsveitin hét
Expet og kom fram á skólaböllum í
Langholtsskóla og í Þróttheimum. Tón-
listin var tölvupopp og talið að helsta lyr-
irmyndin hafi verið hinir bresku
Depeche Mode.
Guðjón hefur enn gríðarlegan áhuga
á tónlist og hún er mjög samofin öllu
sem OZ er að fást við. Þótt nefna megi
ýmsar hljómsveitir er breska hljóm-
sveitin Underworld í sérstöku uppá-
haldi hjá Guðjóni og hefur sveitin tekið
þátt í ýmsum verkefnum OZ.
HÆTTI í SKÓLANUM
Guðjón fór í Verslunarskólann en var
alltaf mjög upptekinn af tölvugrúski og
var þegar í lok skyldunáms og á fyrstu
árunum í VÍ orðinn langtum fremri flest-
um samtiðarmönnum sínum í forritun. í
VÍ var iðulega leitað til hans af kennur-
um í tölvufræðum. Guðjón vann
snemma á Verslóárunum mjög stórt for-
ritunarverkefni fýrir Sævar Karl klæð-
skera. Þegar Guðjón hafði lokið versl-
unarprófi og var á síðasta ári fyrir stúd-
entspróf fékk hann stórt verkefni í for-
ritun sem fólst í að útbúa nýtt grafi'skt
útlit fyrir RÚV. Á
sama tíma voru
Guðjón og Aron,
meðstofhandi Guð-
jóns í OZ, að taka á
móti fjölda er-
lendra viðskipta-
vina og á endanum
tók það svo mikinn
tíma að hann hætti
námi.
í fyrstu var OZ starfrækt sem auglýs-
ingagerð með þróun hugbúnaðar sem
aukagrein. Guðjón, Skúli og Aron hrif-
ust mjög af tæknibrellum í kvikmynd-
FOR EKKI HEIM IVIKU
Margar sögur eru til um starfshætti
á OZ, sérstaklega frá fyrstu árunum. Þá
var algengt að menn ynnu meðan þeir
gátu staðið - eða setið. Þegar þreytan yf-
irbugaði menn skriðu þeir á dýnu úti í
horni eða í sófa og sváfu í nokkra
klukkutíma. Þá var sest aftur við skjáinn
og haldið áfram að lifa í þrívíddarheimi
tölvunnar. Ef hungur gerði vart við sig
var yfirleitt hringt eftir pizzu og sneið-
arnar maulaðar með annað augað á
skjánum. Þannig gátu liðið dagar þar
sem nokkrir starfsmenn fóru alls ekki
heim til sín og dæmi voru um að menn
dveldust í meira en viku samfleytt á
vinnustaðnum.
Þetta þótti ekki hafa góð áhrif á
einkalíf manna þegar unnustur þeirra
sáu þá ekki svo dögum skipti og þau
áhrif endurspegluðust í því að þegar
auglýst var eftir starfsfólki var reynt að
fá einhleypinga til starfa. Þeir áttu betra
með að aðlagast hinu tryllingslega
vinnuálagi en þeir sem voru í sambúð.
LISTAMAÐUR OG BÓKHALDARI
I dag eru Guðjón Már og Skúli Mog-
ensen stærstu eigendur OZ og eru báð-
ir forstjórar fyrirtækisins í raun. Starf-
seminni er síðan skipt í nokkur svið sem
framkvæmdastjórar stýra. Samstarfi
þeirra tveggja er lýst svo að Guðjón hafi
sprengikraftinn og hugmyndirnar með-
an Skúli hafi meiri áhuga á hinni við-
skiptalegu hlið fyrirtækisins. Saman séu
þeir rétta blandan af listamanni og bók-
haldara.
MEÐBILLOG ANDY
Guöjón er ungur maður sem situr
ráðstefnur með Bill Gates og Andy
Grove, forstjóra Intel og á langa fundi
með forstjóra Ericson sem hefur
90 þúsund manns í vinnu
Þótt Guðjón og
Skúli séu nokkurs
konar forstjórar
þá er yfirfram-
kvæmdastjóri fyr-
irtækisins Banda-
ríkjamaðurinn
Gary Hare sem er
fyrrverandi yfir-
maður hjá Disney,
prófessor við Harvard og fyrrum stofn-
andi Philips New Media í Evrópu.
Guðjón ræður því mest allra hvert
fyrirtækið stefnir og hver viðfangsefiii
54