Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 9
Starfsmenn Avis þjónusta öll hótel í Reykjavík.
Erlendir ferðamenn geta fengið bílinn afhentan við komuna til
Keflavíkur en á höfuðborgarsvæðinu geta þeir einnig fengið flutning til
og frá hóteli sér að kostnaðarlausu.
Bílaleigan Avis Geysir er hluti af alþjóðlegri bílaleigukeðju, Avis
International, sem var stofnuð árið 1946 af Bandaríkjamanninum
Warren E. Avis og býður ídag þjónustu í 170 löndum. Bílaleigurnar eru
hvorki meira né minna en 5 þúsund talsins, bflarnir eru 400 þúsund og
starfsmennirnir 18.700 um allan heim. Avis Geysir á íslandi er
beintengd við AVIS Wizard tölvunetið og geta viðskiptavinir Avis
Geysis á íslandi með stuttum fyrirvara og lítilli fyrirhöfn pantað
bílaleigubíl út um heim. Með því aðeins að lyfta upp símtólinu er
málið í höfn.
Avis afhendir bíla á flugvöllum innanlands.
Pétur og Aldís, starfsmenn Avis Geysis, í afgreiðslu fyrirtækisins í Keflavík.
AVIS Wizard
. l//SWizard.Card
ZOOOOOO
D7000T
solveic ADmDOTTH .—
Með Wizard"-kortinu nýtur viðskipta-
vinurinn sérstakra afsláttarkjara erlend.s.
Avis býður upp á AVIS
Wizard kort fyrir fyrir-
tæki í föstum viðskiptum,
og starfsmenn þeirra,
hvort heldur er hér innan-
lands eða erlendis. Þegar
viðskiptavinurinn skiptir
við Avis er hann orðinn
þekkt andlit hjá bílaleig-
unni um allan heim. Með
því að gefa upp númerið á
AVIS Wizard kortinu sínu nýtur hann sérstakra afsláttarkjara erlendis.
Kortið er einnig mjög þægilegt ef hann þarf að breyta ferðaáætlun
sinni mjög skyndilega. Hann gefur upp kortanúmerið og finnur
viðkomandi leigustaður bókunina strax og breytir henni mjög
auðveldlega.
„Ef viðskiptavinurinn þarf skyndilega að leigja sér bíl erlendis
sýnir hann kortið eða hringir og gefur upp númerið og upplýsingarnar
fara inn í kerfið. Þetta er sérstaklega þægilegt fyrir menn á
viðskiptaferðalagi erlendis því það getur verið erfitt að koma í
móttöku bílaleigu í ókunnu landi og ganga frá leigunni ef
tungumálaerfiðleikar eru fyrir hendi," segir Theodór Sveinjónsson
sölumaður. B3
AUGLÝSINGAKYNNING
9