Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 68
KYNNING
JOLAGJOFFORSTJORANS
Stafræn vél frá Hans Petersen
Hans Petersen Hin stafræna
Kodak DC 4800 er engin venju-
leg myndavél. Hún hefúr góðan
litaskjá, upplausnin í myndunum
er mikil og henni fylgja tvö
minniskort, 16 og 32 MB. Hægt er að
velja um 100, 200 og 400 asa stillingu og raf-
hlaðan hleðst í vélinni sjálfri. Hún hefúr
möguleika á TIFF, JPEG og EXIF2,1 skráar-
sniði, er með PAL eða NTSC videótengingar
og í flassið er innbyggð vörn gegn því að aug-
un verði rauð. Notandinn ræður einnig ljósopi
og hraða tökunnar. Fjölbreyttar myndstílling-
ar, brúntóna, s/h, saturated og neutral auka
verulega möguleika við myndatökur og
skemmtilega útkomu. Vélinni fylgir hugbún-
aður fyrir Windows 95/98, Windows NT og
Mackintosh þannig að ekki er vandamál að
tengja hana hvaða tölvu sem er. Hún er nett
og þægileg tíl notkunar og hægt er að fá við
hana margar gerðir af linsum og filterum. S9
Hin stafrœna Kodak DC 4800 er engin venjuleg mynda-
vél. Hún hefúr góðan litaskjá, upplausnin í myndunum
er mikil og minnið sem fylgir henni er 32 MB.
Alpine skjár í bílinn frá Nesradíó
NesradíÓ Það þarf engum að leiðast á löngum ferð-
um með Alpine skjá í bílnum. Skjáirnir, sem dragast
sjálfkrafa inn í mælaborðið, eru skarpir og það sést
vel á þá þótt ekki sé setið beint framan við þá. Hægt
er að fá skjáina með mismunandi staðalbúnaði, svo
sem útvarpi, geisla- eða MD-spilara. Við skjáinn má
tengja hin ýmsu jaðartæki, svo sem móttakara fyrir
sjónvarp, 6-12 diska geislaspilara, DVD-spilara,
MP3-spilara, myndbandstæki, leiðsögutæki, tölvu,
leikjatölvur og svo framvegis. Kerfinu er síðan öllu
stýrt með handhægri fjarstýringu. Þegar skjáirnir
eru tveir eða fleiri má hafa við þá þráðlaus heyrnar-
tól. Með Alpine skjá ættí maður ekki að missa af
neinu og allir í bílnum að hafa afþreyingu við sitt
hæfi. DVD-spilarinn og skjár kosta um 250 þúsund
krónur en Nesradíó selur og setur tækin í bílinn.ffij
Horfðu á bíómynd í bílnum! Við skjáinn má tengja hin
ýmsu jaðartœki, svo sem móttakara fyrir sjónvarp, 6-12
diska geislaspilara, DVD-spilara, MP3-spilara, myndbands-
tœki, leiðsögutœki, tölvu, leikjatölvur og svo framvegis.
68