Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 69
JÓLAGJÖFFORSTJÓRflNS
KYNNING
GPS-tæki frá R. Sigmundssyni
R. Sigmundsson Það er engin hætta á því að villast þegar
GARMIN er með í bílnum. Þetta litla staðsetningartæki, sem
er á stærð við GSM síma, hefur 12 GPS móttökurásir og vegur
aðeins 180 g. Það gefur upplýsingar um vegi, ár, vötn, landa-
mæri, flugvelli, bæi og íleira sem finnst á kortum. Hægt er að
slá inn nafn staðar eða vegar, heimilisfang verslunar, veitinga-
staðar eða annars, sem viðkomandi vill finna, og tækið sýnir
leiðina. Upplýsingar um veitingahús, verslanir, sundlaugar og
bensínstöðvar - allt er þetta til staðar í tækinu sem hefur 8-16
mb minni eftir stærð. Hægt er að kaupa diska fyrir nokkur lönd
og skipta um eftir því hvert farið er. Mjög handhægt er að nota
tækið til að rata með þar sem ör sýnir staðsetninguna hverju
sinni og auðvelt er að „súma“ nær. GARMIN staðsetningartæk-
ið kemur þannig í staðinn fyrir vegakort og jafnvel ýmsar ltand-
bækur á ferðalaginu. Smæðin er til mikilla þæginda og upplýs-
ingarnar skila sér vel á litlum en skýrum skjá. Hægt er að fá
ýmsa fylgihluti með tækinu, s.s. festingu í bíl, tengisnúru fyrir
bílinn, segulloftnet, töskur, minniskubbalesara, sem tengjast
USB porti, og fleira.
Grunneiningin kostar 30.294 krónur en eMap Deluxe, sem
er tækið og 8 Mb minniskubbur ásamt tölvukapli, kostar
37.992 kr. Hver geisladiskur kostar 13.410, en Svíþjóð og Dan-
mörk eru saman á diski. HS
GARMIN staðsetn-
ingartæki, sem er á
stærð við GSM síma,
hefur 12 GPS mót-
tökurásir og vegur að-
eins 180 g. Það gefur
upþlýsingar um vegi, ár,
vötn, landamœri, flugvelli,
bœi og fleira sem finnst á
kortum.
Plasmaskjár frá Bræðrunum Ormsson
Bræðurnir Ormsson Myndin í hinum nýju
„Piasma" eða rafgasskjám frá Pioneer er mjög
skýr og hægt er að horfa á þá frá ýmsum sjónar-
hornum. Þeir eru þunnir, aðeins um 10 sm að
þykkt, og þá má hengja á veggi líkt og málverk.
Skjáirnir vega aðeins um 40 kíló og því er auð-
velt að koma þeim fyrir nær hvar sem er.
Rafgasskjáir eru fylltir blöndu af Neon og
Xenon gasi og myndar rafspenna í örhólfi út-
fjólublátt ljós sem fær fosfórhúð á innanverðum
skjánum til að framkalla sjáanlegt ljós sem hefur
í för með sér að myndin verður einstaklega björt
og skörp. Skjástærðin er 50“ (hornalína) og
punktaupplausnin 1280/768. Þeir bjóða upp á
16.8 milljón liti (24 bita) og sjónarhornið er 160°,
lárélt og lóðrétt. Tengimöguleikarnir eru marg-
ir: RGB, XGA, S-XGA og U-XGA og litakerfið
sem notað er heitir NTSC/PAL/SECAM.IH
Pioneer Plasmaskjárfrá Brœðrunum Ormsson eru einstaklega skýrir.
Þeir eru þunnir, aðeins um 10 sm að þykkt, og þá má hengja á veggi
líkt og málverk. Skjáirnir vega aðeins um 40 kíló og því er auðvelt að
koma þeim fyrir nær hvar sem er.
69