Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 36
ÚTGÁFA
Útgáfa Heims
Heimur hf. mun frá og með áramótum gefa út
Frjálsa verslun, Tölvuheim, Vísbendingu-Íslenskt
atvinnulíf, ferðahandbókina Á ferð um ísland, sem
kemur út á þremur tungumálum, Reykjavík this
month, Map of lceland, Reykjavík map, Sumar á
Suðurlandi sem kemur út á tveimur málum, Golf-
handbókina og Tax-Free Shopping Guide lceland.
Frjáls verslun
Vísbending-hlenskt atvinnulíf
36
Bókin
út á þremur tungumálunu ''
ber bókina Á ferð um ísland hæst en hana gefum við út á
þremur tungumálum og nýtur hún mikilla vinsælda hjá
ferðamönnum.
Nafnið hentar vel Eftir kaupin á tímaritinu Tölvuheimi sl.
vor var okkur hins vegar orðið ljóst að best færi á því að
stofna sérstakt félag utan um útgáfuna og skilja hana að frá
ráðgjöfinni að fullu. Með í kaupunum á Tölvuheimi fylgdi vef-
urinn heimur.is og þangað sækjum við nafn hins nýja útgáfú-
fyrirtækis, Heimur hf. Þetta nafn hentar útgáfunni vel en hún
sækir efni sitt í heim viðskipta, tölva og ferðalaga. Nafnið er
sömuleiðis stutt, þjált og gott og gefur viss færi á orðaleikjum
í markaðssetningu. Það blasir t.d. við að ræða um Heims-
blöðin. Og þeir sem fara inn á vefinn okkar, heimur.is, munu
geta brugðið sér inn í viðskiptaheim, tölvuheim, ferðaheim
og aðra heima.“
Þótt Heimur hf. taki við útgáfu Talnakönnunar um ára-
mótin hefur Heimur hf. þegar hafist handa. Að vísu er það
verkefni ekki tengt tímaritum heldur tónlist. „Við erum
þessa dagana að gefa út geisladiskinn Best að borða ljóð.
Hann er með lögum eftir Jóhann G. Jóhannsson, tónlistar-
stjóra Þjóðleikhússins, við ljóð Þórarins Eldjárns og í flutn-
ingi nokkurra af fremstu tónlistarmönnum landsins. Við ger-
um þetta vegna þess að okkur finnst efnið sérlega áhugavert.
Það var flutt undir dagskránni Best að borða ljóð sem sýnd
var tíu sinnum í Þjóðleikhúsinu í fyrrahaust fyrir fullu húsi og
komust færri að en vildu. Það hefur verið gaman að takast á
við þetta verkefni sem er hliðarspor hjá okkur því stefnan er
að halda sig áfram við hið prentaða mál.“
Um það hvort Heimur hyggist heija útgáfu á bókum og
keppa þannig beint við stóru bókaforlögin á jólabókamark-
aðnum, segir Benedikt afar ólíklegt að svo verði. „Færsla yfir
í aðra miðla kemur þó til greina. Eg nefni sérstaklega frekari
útgáfu tengda Netinu og kannski þáttagerð fyrir útvarp og
sjónvarp. Frjáls verslun hélt úti útvarpsþættinum Púlsinum
um tíma árið 1998 og það var skemmtilegt verkefni."
Hið prentaða mál lifír Mikið er rætt um að bækur, tímarit
og hið prentaða mál eigi í vök að verjast vegna tölvutækninn-
ar. Hvert er þitt mat á því? „Eg held að þetta sé ekki rétt;
blöð, bækur og tímarit munu lifa. Þessu til stuðnings nefni
ég að öll prentun hefur vaxið stórlega á síðustu 30 árum