Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 95
VINNUSTAÐUR
konar þrýstinudd en með því er þrýst á punkta sem Japanir
kalla Tsuþo og eru meðfram hryggjarsúlunni. Með því að
þrýsta á þessa punkta eykst blóðflæðið til vöðvanna og þegar
þeir eru hnoðaðir líka losnar um spennuna sem í þeim er.
Þetta getur verið sárt fyrir auma vöðva en líðanin á eftir er
mun betri og notalegt að finna hvernig tekið hefur verið á
vöðvunum.
Þrenns konar nudd „Stjórnborðið er mjög þægilegt til notk-
unar,“ segir Halldór Snæland um leið og hann útskýrir
hvað hnapparnir á þvi gera, hver fýrir sig. „Ein stilling
er fýrir rúlluna, önnur íyrir hnoðið, sem hægt er að
láta fara misjafnlega nálægt hryggnum og svo er
auðvitað hægt að halla stólnum mismikið eftir því
sem fólk vill.
Um er að ræða þrenns konar nudd. Rúllur,
sem fara upp og niður bakið, frá hálsi og nið-
ur að mjóbaki. Þær fylgja lögun líkamans og
renna vel og liðlega fram og til baka á þeim
hraða sem notandinn velur.
Einnig er hægt að láta rúllurnar þrýsta
sérstaklega á valda punkta eða hluta lík-
amans, „hnoða“ bakið, en þá er pressað
utan frá og inn á við. Hægt er að stjórna
því hversu nálægt hryggjarsúlunni
nuddið er. Svo er hægt að láta stólinn
banka létt í stað þess að nudda, en það
samsvarar því að nuddari slái með
handarjaðrinum upp og niður bakið.
Stóllinn kostar um 270 þúsund krónur og nokkuð er um að
fyrirtæki kaupi stól til þæginda fyrir starfsfólk. Einnig hafa
verið seldir nokkrir stólar um borð í skip þar sem skipshöfn-
in nýtur þess að láta líða úr þreyttum vöðvum á frívöktum.
Hægt er að velja um ýmsa liti á
áklæðið, en það er sérstaklega
sterkt og gert til þess að þola
átökin sem rúllurnar og hnoð-
ararnir skapa. „Það er ekki
hægt að nota hvaða áklæði
sem er í þetta,“ segir Guð-
mundur. „Áklæðið verður að
vera teygjanlegt og mjög
sterkt og er sértilbúið til
þessara nota því það geng-
ur mikið á þegar stóllinn
nuddar þreytuna úr þeim
sem í honum situr.“ 33
Halldór Snœland prófar Einkanuddar-
ann og Gudmundur Baldursson sýnir
honum hvernig nuddið erstillt. „Stjórn-
borðið er mjög þægilegt til notkunar,"
segir Guðmundur.
Níðsterkt áklæði Fyrir utan þessar
þrjár stillingar er hægt að láta stólinn
fara í gegnum sérstök kerfi þar sem hann
nuddar, bankar og þrýstir í ákveðinni röð
og tekur hvert kerfi um 12-15 mínútur.
95