Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2000, Page 68

Frjáls verslun - 01.10.2000, Page 68
KYNNING JOLAGJOFFORSTJORANS Stafræn vél frá Hans Petersen Hans Petersen Hin stafræna Kodak DC 4800 er engin venju- leg myndavél. Hún hefúr góðan litaskjá, upplausnin í myndunum er mikil og henni fylgja tvö minniskort, 16 og 32 MB. Hægt er að velja um 100, 200 og 400 asa stillingu og raf- hlaðan hleðst í vélinni sjálfri. Hún hefúr möguleika á TIFF, JPEG og EXIF2,1 skráar- sniði, er með PAL eða NTSC videótengingar og í flassið er innbyggð vörn gegn því að aug- un verði rauð. Notandinn ræður einnig ljósopi og hraða tökunnar. Fjölbreyttar myndstílling- ar, brúntóna, s/h, saturated og neutral auka verulega möguleika við myndatökur og skemmtilega útkomu. Vélinni fylgir hugbún- aður fyrir Windows 95/98, Windows NT og Mackintosh þannig að ekki er vandamál að tengja hana hvaða tölvu sem er. Hún er nett og þægileg tíl notkunar og hægt er að fá við hana margar gerðir af linsum og filterum. S9 Hin stafrœna Kodak DC 4800 er engin venjuleg mynda- vél. Hún hefúr góðan litaskjá, upplausnin í myndunum er mikil og minnið sem fylgir henni er 32 MB. Alpine skjár í bílinn frá Nesradíó NesradíÓ Það þarf engum að leiðast á löngum ferð- um með Alpine skjá í bílnum. Skjáirnir, sem dragast sjálfkrafa inn í mælaborðið, eru skarpir og það sést vel á þá þótt ekki sé setið beint framan við þá. Hægt er að fá skjáina með mismunandi staðalbúnaði, svo sem útvarpi, geisla- eða MD-spilara. Við skjáinn má tengja hin ýmsu jaðartæki, svo sem móttakara fyrir sjónvarp, 6-12 diska geislaspilara, DVD-spilara, MP3-spilara, myndbandstæki, leiðsögutæki, tölvu, leikjatölvur og svo framvegis. Kerfinu er síðan öllu stýrt með handhægri fjarstýringu. Þegar skjáirnir eru tveir eða fleiri má hafa við þá þráðlaus heyrnar- tól. Með Alpine skjá ættí maður ekki að missa af neinu og allir í bílnum að hafa afþreyingu við sitt hæfi. DVD-spilarinn og skjár kosta um 250 þúsund krónur en Nesradíó selur og setur tækin í bílinn.ffij Horfðu á bíómynd í bílnum! Við skjáinn má tengja hin ýmsu jaðartœki, svo sem móttakara fyrir sjónvarp, 6-12 diska geislaspilara, DVD-spilara, MP3-spilara, myndbands- tœki, leiðsögutœki, tölvu, leikjatölvur og svo framvegis. 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.