Frjáls verslun - 01.10.2000, Qupperneq 22
FORSÍÐUGREÍN
hæsta tilboðið sem var nálægt 750 milljónum króna. Því var
tekið! Taki menn eftir því að ekki var um eitthvert lokað útboð
að ræða á bréfunum heldur voru send inn tilboð og gat selj-
andinn valið og hafnað þeim að eigin vild. Þar sem telja verð-
ur víst að um bréf Péturs Björnssonar hafi verið að ræða sýn-
ist ljóst að Þorsteinn og Kaupþing hafi haft vægast sagt mikla
forgjöf í þessu kapphlaupi, þótt ekki sé nú fastara að orði kveð-
ið, vegna mikillar vináttu Péturs og Þorsteins.
hagnast um 50 milljónir króna á þeim viðskiptum. í júlí sl. var
síðan tilkynnt að Kaupþing á Islandi hefði keypt 7% hlut Auð-
lindar í fyrirtækinu. Þar með var Kaupþing hf. á Islandi kom-
ið með 23% hlut - og Kaupþing í Lúxemborg hafði 55% hlut á
sinni könnu. (Bréf Péturs og Lýðs). Framhaldið hefur svo ver-
ið rakið hér að framan, slagurinn um meirihlutann í Sól-Vík-
ingi í kjölfar sölunnar á Ölgerðinni hinn 19. október sl. lyktaði
með því að tilboði Kaupþings var tekið.
Frænkur Péturs Þótt þarna hafi komið snarpur og beittur
slagur um meirihlutann í Sól-Víkingi, bréf Kaupþings í Lúxem-
borg íýrir hönd F. R Temp S.A., höfðu ýmis viðskipti átt sér
stað áður með hlutabréf í Sól-Víkingi. Þannig hefur það vakið
athygli að bréf fyrrum meðeigenda Péturs Björnssonar í fjár-
festingarfélaginu Háuhlíð, ffænkna hans, þeirra Ingibjargar,
Jennýjar og Áslaugar, dætra Guðrúnar Guðmundsdóttur og
Guðmundar Elíssonar, hálfbróður Björns Ólafssonar, föður
Péturs, voru ekki keypt á sama tíma og bréf Péturs. Strax í
kjölfarið barst þeim, ásamt móður þeirra, hins vegar tilboð frá
Kaupþingi hf. sem þær eru núna með til skoðunar og mun
vera á svipuðum nótum og tilboðið í bréf Péturs.
Hlutur Háuhlíðar Skipt upp Sú spurning vaknar eðlilega
hvenær eign Háuhlíðar í Sól-Víkingi hafi verið skipt upp á milli
eigenda þess félags? Það gerðist þegar CCNB keypti Vífilfell í
mars á sl. ári. Hlutur Háuhlíðar í Sól-Víkingi var þá 70% en auk
þess áttu Valbær (Baldvin Valdimarsson) 5%, Auðlind 7% (sjóð-
ur í vörslu Kaupþings), Kaupþing 16% og Kaupþing Norður-
lands 2%. Hlutur Háuhlíðar í Sól-Víkingi, 70%, var leystur upp
með þeim hætti að Pétur, í gegnum Eignarhaldsfélagið Vor,
fékk 51%, frænkurnar þrjár ásamt móður þeirra, fengu 15% og
hjónin Lýður Friðjónsson og Ásta Pétursdóttir (dóttir Péturs
Björnssonar) fengu 4%.
Lýður hagnaðist um 50 milljónir Eftir þetta urðu nokkur við-
skipti með bréf í Sól-Víkingi. í nóvember í íyrra keypti Sverr-
ir Kristinsson, fasteignasali í Eignamiðlun, 0,75% af Kaupþingi
Norðurlands sem núna heitir raunar Islensk Verðbréf. Næstu
viðskipti urðu í apríl sl. þegar tilkynnt var um sölu á 51% hlut
Eignarhaldsfélagsins Vors, þ.e. Péturs, til Kaupþings í Lúxem-
borg en það keypti hlutinn fyrir hönd fyrirtækisins F. P. Temp
S.A. í Lúxemborg. Það næsta sem gerðist var að Kaupþing
Lúxemborg keypti 4% hlut Lýðs Friðjónssonar og Ástu Péturs-
dóttur í Sól-Víkingi sl. vor. Fullyrt er að Lýður og Ásta hafi
Hverjum sameinast ölgerðin? Margir velta fyrir sér hvernig
næstu leikir á skákborðinu iíta út. Flestir reikna með því að
kaupin á Vífilfelli gangi í gegn fýrir jól og Vífilfell og Sól-Víking
sameinist í kjölfarið. Allar líkur eru líka á að Ölgerðin sameinist
einhveijum fyrirtækjum á næstu mánuðum. Það var að minnsta
kosti boðað þegar Íslandsbanki-FBA og Gilding keyptu fyrir-
tækið. Ekki er auðvelt að sjá hveijum Ölgerðin muni sameinast.
Með því að skima yfir markaðinn á fyrirtækið vissulega samleið
með öðrum matvælaframleiðendum sem flytja inn mikið hrá-
efni að utan. Sparnaður yrði í flutningskostnaði til landsins og
hugsanlega dreifingu í verslanir. Sömuleiðis hljóta nýir eigend-
ur að horfa til annarra fyrirtækja á vínmarkaði, eins og Islensk-
Ameríska, Karls K. Karlssonar og Austurbakka, og sjá hvort
þar liggi straumar saman og hægt sé að ná fram sparnaði. En
auðvitað hefði sameining við Sól-Víking átt að vera fyrsti kostur-
inn. Ölgerðin fer ekki á almennan hlutabréfamarkað fyrr en eft-
ir 1 til 2 ár í fyrsta lagi. Fram að þeim tíma verður fyrirtækið
stækkað og gert enn eftirsóknarverðara á hlutabréfamarkaði
en á þessu ári hefur það sýnt sig á Verðbréfaþingi að lítil og
meðalstór fyrirtæki njóta minni athygli ljárfesta en þau stærri.
Varnarbandalag í uppsiglingu? Loks hafa heyrst raddir um
að iðnfyrirtæki og heildverslanir kunni að vinna nánar saman
á næstu mánuðum þótt ekki verði um sameiningu þeirra að
ræða. Að þau stofni með sér eins konar bandalag sem sjái um
samninga við skipafélögin sem og verslanakeðjurnar Baug og
Kaupás. Þannig næðu þau sér í betri stöðu í samningaviðræð-
um í krafti stærðar. Sumir hafa nefnt hugmyndirnar um
bandalag iðnfyrirtækja og heildverslana sem varnarbandalag
gegn ofurvaldi Baugs og Kaupáss á neytendamarkaðnum og
Eimskips og Samskipa á flutningamarkaðnum.
flldrei tíðindalaust á gosstöðvum Hvað um það, spennandi
tímar eru að baki og spennandi tímar eru framundan. Það
verður aldrei tíðindalaust á gosstöðvum. S5
Sendu jólapakkann meðTNT Hraðflutningum
íslandspóstur hf
22