Frjáls verslun - 01.10.2000, Qupperneq 26
FRÉTTASKÝRING
Nýtt bókunarkerfi verður tekið í notkun og gefur það tækifæri til hagræðingar og betri tengingar
milli upplýsingakerfa. Við fækkun starfsmanna sparast 60-80 milljónir króna. Flutt verður í nýtt
húsnæði við Sætún 1 í Reykjavík og verður starfsemin þá á einu gólfi í stað sjö áður.
hefur hins vegar langa reynslu úr einkarekstrinum og langaði
aftur í þann geira. Hann átti og rak ferðaskrifstofuna Útsýn
1985-1990 þegar hann seldi hana Flugleiðum. Hann kann til
verka í ferðageiranum og því fannst íjárfestunum það góður
kostur að ganga til liðs við hann. Tveir menn í eigendahópn-
um eru líka eftirtektarverðir. Fyrstur er Oskar Magnússon,
lögmaður. Þá kemur á óvart að séra Pálmi Matthíasson komi
að eignarhaldi á ferðaskrifstofu en milli Jóhanns Ola og
Pálma annars vegar og Ómars og Pálma hins vegar ríkir
vinskapur, traust og trúnaður og þannig kemur séra Pálmi til
sögunnar.
Starfsemi Sólar er þegar hafin og hefur verið ráðið í nokkr-
ar stjórnunarstöður. Ljóst er að með framkvæmdastjóranum
starfar fólk með langa reynslu af ferðamálum: Goði Sveins-
son markaðsstjóri, Ingibjörg Kristjánsdóttir sölustjóri og
Ingibjörg Sverrisdóttir framleiðslustjóri. Þessir starfsmenn
ýta fyrirtækinu úr vör en ekki er vitað hve margir starfs-
mennirnir verða þegar salan hefst 1. janúar 2001. Landsbank-
inn er að flytja burt úr húsinu sem er á horni Grensásvegar
og Miklubrautar í Reykjavík og hefur Sól tekið allt húsið á
leigu og flytur inn í það í desember. Ferðaskrifstofan ætlar að
gera út á heilsársferðir í leiguflugi til Kýpur, ísraels og Eg-
yptalands auk hefðbundinna ferða til Portúgals. Einnig verð-
ur boðið upp á heilsuferðir til Ungverjalands og Tékklands
síðla næsta árs. Áhersla er lögð á gæði og er markmiðið að
gera farþegana ánægða.
En Víkjum aftur að SL Margir hljóta að spyrja af hverju næst-
stærsta ferðaskrifstofa landsins var rekin með jafn miklum
halla fyrstu sex mánuði ársins og raun ber vitni. Nýbygging-
in við Sætún 1 í Reykjavík, sem SL tók þátt í að reisa, kostaði
auðvitað sitt, auk þess voru JJármálastjóri og endurskoðandi
fyrirtækisins látnir fara fyrr á þessu ári þar sem bókhaldi var
ekki hagað á þann hátt sem reglur kveða á um. Ekki var þó
um neitt misjafnt að ræða. En mestu skiptir kannski Flug-
frelsið. Keppinautar telja Flugfrelsið „fáránlega dellu“ sem
hafi verið við það að keyra Ijárhag fyrirtækisins í kaf. Þessu
mótmælir Helgi Jóhannsson, fv. forstjóri. Hann bendir á að
um 20 þúsund farþegar hafi notfært sér Flugfrelsið. „Við vor-
um sannfærð um að hugmyndin væri góð en þær væntingar
sem við höfðum varðandi almenna notkun á Netinu stóðust
ekki. Kynningarkostnaður var auk þess nokkur, eins og
Heill heimur í einu umslagi
Gjafakort Borgarleikhússins opna litríkan leikhúsheim
þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Kortin gilda sem ávísun á ýmist einn eða tvo miða
á leiksýningu að eigin vali og eru tilvalin jólagjöf
fyrir börn og fullorðna.
Sérstaklega falleg gjafakort eru í boði á barnasýning-
una Móglí, sem frumsýnd verður 26. desember.
Einnig eru fáanlegir vandaðir Móglí stuttermabolir.
Sala gjafakorta fer fram í miðasölu
Borgarleikhússins og heimsending
er í boði ef greitt er með símgreiðslu.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10
virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
BORGARLEIKHUSIÐ
26