Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 32
Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Arcis, sem áður hét Rittækni.
Fyrirtækið sérhæfir sig í tölvuöryggi og öruggri greiðslumiðlun í
netviðskiptum.
útskýra fyrir fólki á hvaða sviði fyrirtækið starfar þá er nafnið ekki nógu
gott fyrir utan að það er ekki nógu þjált í alþjóðlegu samstarfi. Við
ákváðum því að breyta nafninu í Arcis. Arcis er alþjóðlegt orð, komið úr
Ilatínu og þýðir virki eða kastali," segir Sigurður Erlingsson,
framkvæmdastjóri Arcis sem áður hét Rittækni.
Uppfyllir evrópska staðla
Arcis er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig sérstaklega
í tölvuöryggi og greiðslumiðlun. Hvað tölvuöryggið varðar tekur
fyrirtækið að sér að taka út stöðu öryggismála hjá viðkomandi fyrirtæki;
það skilar skýrslu, kemur með tillögur um hvernig bregðast skuli við
vandanum í áföngum og áætlar hvað það muni kosta. Arcis hefur á
boðstólum bæði tilbúnar og staðlaðar lausnir, einnig sérhannaðar og
sérsmíðaðar, allt eftir þörfum viðskiptavinarins. Varla þarf að taka fram
að allar lausnir fyrirtækisins uppfylla tilskilda staðla í Evrópu og
starfsmenn fyrirtækisins hafa hlotið þjálfun og tilskilin réttindi.
- Öryggislausnir úr SafeGuard línunni frá Utimaco, erlendum
samstarfsaðila Arcis, eru þær meginlausnir sem byggt er á.
Sérstaklega má nefna Einkaeldvegginn, sem er nýjung og hentar jafnt
fyrir fartölvur, einkatölvur og tölvunet fyrirtækja. „Þetta er örugg og
einföld leið til að vernda tölvur gegn innbroti og misnotkun, jafnt
utanaðkomandi aðila sem aðila innanhúss," segir Sigurður. „Auk þess
erum við að bjóða heildaröryggislausnir og erum við þar að spanna allt
sviðið frá dulkóðun, útgáfu á rafrænum skilríkjum, rafrænni undirritun
Fyrirtækið Rittækni hefur tekið upp nýtt nafn og heitir nú Arcis:
Tölvuöryggi og greiðslumiðlun
Öryggismál varðandi tölvur fyrirtækja eru allt of oft látin sitja
á hakanum þó að talsvert sé um innbrot, skemmdarverk og
misnotkun á þeim. Nú, þegar rafræn viðskipti og samskipti
taka stökkbreytingum, er mikilvægt að öryggismál tölvukerfa
fyrirtækja séu í lagi.
Fyrirtækið Rittækni hf. var stofnað árið
1985 og snerist starfsemin þá um
skrifstofubúnað. Sigurður Erlingsson
stofnaði fyrirtækið og starfaði við það í
nokkur ár. Hann hóf þar störf á ný fyrir
rúmum tveimur árum og var áherslunni þá
breytt og fyrirtækinu snúið inn á þá braut
sem það er á í dag. Rittækni vinnur að
tölvuöryggi og greiðslulausnum af ýmsu
tagi. Vaxtarbroddur atvinnulífsins er ekki
síst á sviði upplýsingatækni og hefur
Rittækni ekki farið varhluta af því.
Starfsmönnum fjölgar stöðugt og
fyrirtækið hefur nýlega stækkað við sig
húsnæði. Það er nú á tveimur hæðum, 1.
og 5. hæð, við Skipholti 50 D í Reykjavík.
Nafni þess hefur verið breytt í Arcis.
„Ég var alltaf ósáttur við gamla nafnið því
að það gaf til kynna að fyrirtækið starfaði
á sviði skrifstofuvéla. Ef ég þarf alltaf að
Það gefur möguleika á að millifæra af h=,„r,
reiknmgi a kortið gegnum PC-fölvu eða fartölvu.
á skjölum, aðgengisstjórnun að tölvum og tölvukerfum og allt þar á
milli."
- Snjallkortið. Eykur þægindi notenda og kerfisstjóra um leið og það
eykur mjög öryggi í tölvukerfinu. Hægt er að laga kortið að þörfum
viðskiptavinarins og eru möguleikarnir
mjög miklir. Hægt er t.d. að geyma á kortinu
öll notendanöfn og lykilorð sem þarf að
nota í tölvukerfinu. Þegar starfsmaðurinn
stingur kortinu inn í vélina og slær inn PIN
númerið sitt eru upplýsingarnar lesnar af
kortinu. Öll vinnsla fer fram á öruggu svæði
á kortinu, þannig að utanaðkomandi geta
ekki nálgast þessar upplýsingar.
Arcis var valið úr hópi fyrirtækja til að
vinna að þróun á nýjum snjallkortalausnum
og eitt fyrsta verkefnið sem verður unnið að
er snjallkort með Windows stýrikerfi. Sam-
komulag er við íslenska erfðagreiningu um
samstarf við þróun á lausnum með nýja
Snjallkortinu og er sú vinna að hefjast með
sérfræðingum frá báðum fyrirtækjunum.
„Þetta tækifæri gefur okkur mikla möguleika
á að marka spor í þessari þróun og einnig að
búa til afurðir sem seldar verða á alþjóða-
markaði," segir Sigurður.
imawiiin
32