Frjáls verslun - 01.10.2000, Qupperneq 33
- Rafræn skírteini eru lykillinn að öruggum
samskiptum í hinum rafræna heimi. Skírteinin verða
notuð til að auðkenna einstaklinga, tölvur,
hugbúnað og fleira. Þetta einkvæma auðkenni er
hægt að nota t.d. til að opna aðgang að tölvukerfum
og mismunandi svæðum, eins og t.d. heimabanka.
Einnig eru skírteinin notuð til að undirrita skjöl og
eyðublöð á rafrænan hátt.
Kobert Marvin bislason tolvuoryggisserfræoingur asamt oðrum starfsmönnum Arcis.
Ýmsar lausnir í greiðslumidlun
- Tenging og greiðslumiðlun milli netverslana,
viðskiptavina þeirra og VISA íslands. Mjög öruggar
lausnir bæði samkvæmt SSL og SET stöðlum. Aðal
kosturinn við kerfið er að kortanúmerið fer aldrei í
hendurnar á verslunareigandanum eða öðrum
millilið, heldur fer það beint til VISA.
- í samstarfi við þýska tölvufyrirtækið Brokat
býður Arcis upp á heildarlausnir í rafrænum
bankaviðskiptum. Brokat skiptir við um 1.500
fjármálafyrirtæki og er því leiðandi í heiminum á
þessu sviði.
- Nýtt snjallkort, sem er greiðslukort, geymir
smáar upphæðir og hefur hlotið nafnið Klink-kort, er
að koma á markað á íslandi á næstunni. Lausn, sem
Arcis hefur þegar kynnt hérlendis, gefur möguleika
á að millifæra af bankareikningi á kortið, gegnum
Netið af heimilis- eða fartölvunni. Einnig hægt að
greiða með kortinu á Netinu. Þetta verðurtil mikilla
þæginda, sérstaklega þar sem hægt verður að láta börn hafa smáar
upphæðir á kortinu og geta foreldrar millifært af eigin reikningi yfir á
kortið.
- eBPP, rafræn birting og greiðsla á
reikningum. Heildstæð lausn í rafrænni
meðhöndlun á reikningum. Hægt er að
tengja bókhaldskerfi við stór fyrirtæki og
keyra reikningana á rafrænan hátt. Þeir
sem skulda fá aðvörun í tölvupósti eða
GSM síma og geta fylgst með
reikningunum sínum á ákveðnum síðum á
Netinu. Kerfið er samþætt þannig að
hægt er að tengja það við bankareikninga
og borga þá. Mikill áhugi er á þessari
lausn, enda er áætlað að flestallir
reikningar verði birtir á þennan hátt fyrir
árið 2003.
- Greiðslumiðlun með GSM símum.
Liklegt er að ein mesta þróunin verði í
greiðslumiðlun með GSM símum. Nú
þegar býður Arcis upp á nokkrar lausnir og
má t.d. nefna „sýndargreiðslukort", en
það er kredit- eða debetsýndarkort sem
tengt er við GSM símann. í stað þess að
nota kort eins og við notum dagsdaglega
þá er greiðslufyrirspurn send í símann
okkar, við samþykkjum yfirfærsluna og
upphæðin færist á kortareikninginn okkar.
Erlent samstarf, sérfræðivinna erlendis
Arcis er í samstarfi við þýska fyrirtækið Utimaco sem rekur útibú um
allan heim og er um tvenns konar samstarf að ræða. Annars vegar er
skipst á tæknifólki í úttektir þannig að
sérfræðingar Arcis verða kallaðir utan í
úttekt með sérfræðingum Utimaco og
öfugt, erlendir sérfræðingar koma hingað
til lands. Hins vegar taka íslenskir
sérfræðingar þátt i þróunarstarfi með
Utimaco og fleiri samstarfsfyrirtækjum
þeirra eins og Microsoft.
í samstarfinu við Utimaco felst mikill
vaxtarbroddur fyrir Arcis því að
upplýsingatæknin er fjölbreytilegur
markaður og einna mesti vöxturinn á því
sviði í heiminum í dag. „Við sjáum fjöldann
allan af tækifærum í tengslum við þennan
erlenda markað," segir Sigurður og segir
frá því að annað stórt, erlent
öryggisfyrirtæki hafi haft samband við
Arcis og óskað eftir samstarfi við úttektir á
öryggismálum stórra fyrirtækja erlendis.
Ekki hefur verið gengið frá samningum en
Sigurður á von að það gerist á næstu
vikum.
Arcis er vel skilgreint hátæknifyrirtæki
í öflugri sókn á innlendum og erlendum
markaði. BH
Trcis' er t.l húsa að Skipholti 50 D. Fyrirtækið hefur
vaxið svo síðustu ár að það er nú bæði á fyrstu og
fimmtu haeð hússins.
w
arcis
tölvuöryggi & greiðslumiðlun
Arcis, Skipholti 50D, 105 Reykjavík
Sími 561 5040. Fax 561 5041.
sigurdur@arc.is ■ www.arc.is
AUGLÝSINGAKYNNING
33