Frjáls verslun - 01.10.2000, Page 37
Hún hannaði merkið
Eg hafði nainið og starfsenii fyrirtækisins í huga við hönnun
merkisins. Merkið á að tákna heimsblöðin, þ.e. timaritin sem
Heimur gefur ÚL Grunnhugmyndin að merkinu er „fieims-
fréttin flýgur". Sem stílferður fugl koma tímaritin fljúgandi með
heimsfréttirnar til lesandans. Bláa formið á að tákna heiminn.
Himinninn er blár, fjarskinn er blár og fjarlægðin gerir fjöllin blá,“
segir Rúna (Guðrún Þórisdóttir), sem er graíiskur hönnuður.
Rúna var fengin til að hanna merki Heims hf., fyrirtækisins
sem tekur um áramótin við útgáfu þeirra blaða og tímarita
sem áður voru gefin út á vegum Talnakönnunar hf.
Hún útskrifaðist frá grafiskri hönnunardeild MHÍ 1983 og
hefur starfað við fagið síðan þá. Hún hannaði m.a. allar aug-
lýsingar fyrir Heklu á árunum 1995-1999. Iffl
þrátt fyrir ört vaxandi mátt Netsins og margra skemmtilegra
nýjunga tölvuframleiðenda. Þetta mun allt saman haldast í
hendur. Fólk mun tileinka sér notkun lófa- og fartölva sem
annarra tækninýjunga tengdum þráðlausum fjarskiptum. En
engu að síður mun fólk alltaf vilja kippa með sér blaði, tíma-
riti, bók eða bæklingi hvert sem er, til dæmis upp í rúm eða
sófa. Það fylgir því önnur tilfinning að lesa sögu í bók eða
blaði en af skjá.“
Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna Talnakönnun hafi
í upphafi markað þá stefnu að vera bæði í ráðgjöf og útgáfu,
þarna sé um nokkuð ólíka hluti að ræða. „Skýringin er ekki
flóknari en sú að ég hef haft áhuga á hvoru tveggja lengi. Eg
hef víst sagt þá sögu nokkrum sinnum að í barnaskóla gaf ég
út hverfisblað með Ijölbreytilegu efni ásamt félögum mínum.
Síðan hefur áhugi minn á útgáfu alltaf blundað í mér en
einnig áhugi á stærðfræði og rekstri fyrirtækja. Eg tvinna
þetta því einfaldlega saman. Utgáfan og ráðgjöfin hafa stutt
hvort annað þótt núna hafi verið ákveðið að hafa skarpari skil
þarna á milli með stofnun Heims hf. Svo fer vel á því að byrja
nýja öld í nýjum Heimi!“
Stefnt að frekari Stækkun Benedikt segir að Talnakönnun
hafi vaxið hratt á síðust árum. Tekjur þessa árs verða um 130
milljónir og stefnt er að því að samanlagðar tekjur Talnakönn-
unar og Heims, þ.e. samstæðunnar, verði um 150 milljónir á
næsta ári. „Það er öllum fyrirtækjum mikilvægt að vaxa.
Markmiðið er að ná veltunni í 500 milljónir á næstu fimm
árum. Það er vissulega krefjandi takmark - en það er líka
alltaf skemmtilegra að hafa markmiðin þannig."
Talnakönnun hefur verið til húsa við Borgartún 23 í rúm
sex ár. Þetta er þriggja hæða hús Hegra hf., sem er fyrirtæki
í eigu Ásgeirs Jónssonar, þekkts 86 ára athafnamanns hér í
bæ. Ásgeir ákvað að byggja eina hæð ofan á húsið og hófust
framkvæmdir við það sl. vor. Segja má að smiðshöggið hafi
verið rekið á hina nýju glæsilegu hæð hinn 24. nóvember sl.
þegar Talnakönnun tók húsnæðið í notkun og bauð til glæsi-
legrar opnunarhátíðar.
Talnakönnun og Heimur leigja því núna tvær hæðir í
Hegrahúsinu, eða í Heimshúsinu eins og hægt væri að kalla
það en utan á því blasir við skiltið Heimur hf. Borgartún 23 er
núna heill heimur út af fyrir sig. SS
37