Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 53
Þegar hann gengur um fyrirtœkib hverfa hlutir af
borðum.
Hann gramsar í handtöskum og hirðir peningaveski
og lykla því að þeir koma sér jú vel til að brjótast inn
um nóttina...
Verðmætin í læsta skúffu Námskeið hafa
verið haldin í fyrirtækjum, sem eru með
verslanir, t.d. Húsasmiðjunni auk
námskeiða í Kringlunni og miðborginni, en
lögreglan hefur einnig farið í önnur
fyrirtæki og veitt leiðbeiningar þótt ekki
hafi beinlínis verið um námskeið að ræða.
Guðmundur kannast vel við að inn á borð
lögreglunnar berist mál þar sem gengið
hefur verið inn í fyrirtæki, gramsað í
yfirhöfnum og lyklum hnuplað svo að hægt
sé að láta til skarar skríða að nóttu til, öllu
fémætu stolið og jafnvel gengið út með
heilu tölvurnar um hábjartan dag.
„I þessum tilvikum er ekki um annað að
ræða en að hringja á lögregluna," segir hann.
Að öðru leyti verða viðbrögð starfsmanna að
fara eftir aðstæðum. Ef einhver þeirra treystir
sér t.d. til þess að hlaupa á eftir þjófnum og
stöðva hann þar til lögreglan kemur þá er slíkt
ekki útilokað. Guðmundur mælir með því að
starfsmenn fyrirtækja skoði öryggi sitt og
Guðmundur Gígja, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni í Reykjavík.
útilýsing ásamt hæðarmerkingum við útidyr þannig að vitað
sé hve hár þjófurinn er.
Lögreglan býður upp á námskeið fyrir verslunarmenn og
ránsæfingu, þar sem starfsmönnum er m.a. kennl að skrifa
niður lýsingu á þjófnum auk þess sem lögreglan ætlast til þess
að hvert fyrirtæki hafi sínar eigin reglur um hvernig eigi að
bregðast við innan fyrirtækisins ef rán kemur upp, hver eigi að
tilkynna það, hvaða yfirmann eigi að kalla á vettvang o.s.frv. Þá
er mælst til þess að gerð sé áætlun um áfallahjálp fyrir starfsfólk.
Að ífæðslunni lokinni fyllir lögreglan út vottunarblað og límir
upp tilkynningu um að á þessum stað séu „varnir gegn
vágestum". „Þetta merki táknar að í þessari
verslun sé ekkert að hafa,“ segir Guðmundur.
aðstæður, fylgist vel með umferð óviðkomandi um vinnustaðinn
og gæti þess að skilja ekld verðmæti eftir í yfirhöfn í fatahengi
eða hangandi innan á hurð heldur læsi slíkt ofan í skúffu. Þannig
sé best að koma í veg fyrir þjófnað á vinnustöðum.
Bjallan er eínföld lausn Arni Guðmundsson, deildarstjóri
öryggisgæsludeildar hjá Securitas, hefur heyrt af því að
þjófar fari inn í fyrirtæki á almennum vinnutíma og beri út
verðmæti, t.d. fartölvur, GSM síma, skjávarpa og önnur
raftæki. Hann mælir með því að umgengnishættir séu
skoðaðir í fyrirtækjum og línur lagðar um hvernig umgengni
53