Frjáls verslun - 01.10.2000, Page 60
Steypan stendur. A sama tíma og búist er vib sþrengingu í netviðskiptum ríkir mikil bjartsýni í verslun og byggðar eru stórar verslanamiðstöðvar.
Netjól í ár?
Erlendis hefur jólasalan haldið
netverslunum uppi allt árið. Hjá
mörgum af þessum fyrirtækjum
hefur hún numið helmingnum af árs-
sölunni og hjá sumum hefur hún
jafnvel verið meiri. Hjá okkur er gert
ráð fyrir að veltan i sölunni á Netinu
íyrir jólin verði á við þrjá til ijóra
meðalmánuði en hjá minni verslun-
um, sem eru rétt að byrja starfsemi
sína á Netinu, skiptir sennilega mjög
miklu máli að jólaverslunin gangi
vel. Okkar framtíð stendur að vísu
hvorki né fellur með jólasölunni þvi
að netverslunin er framlenging af
þjónustu Hagkaups. Það er
samt mikilvægt að jólaverslunin
gangi vel á Netinu," segir Þór
Curtis, verslunarstjóri Hag-
kaups.is, fyrstu og langstærstu
einstöku netverslunarinnar á Is-
landi.
Vöruúrvalið hefur aukist Gríðar-
leg þróun hefur orðið í netversl-
un hér á landi á þessu ári, fjöldi
verslana hefur aukist, vöruúrval
hefur batnað mjög og fram á svið-
ið eru komnar ítarlegar siðaregl-
ur um netviðskipti á vegum Sam-
taka verslunar og þjónustu. Tvær
nýjar verslanamiðstöðvar, Versl-
un.strik.is og Plaza, hafa gert
meðalstórum og litlum versl-
Væntingar eru um að verslun í
gegnum Netið aukist verulega fyrir
þessi jól. Aðstandendur Hagkaups.is
búast við því að veltan í jólaverslun-
inni á Netinu jjórfaldist frá því i
fyrra. Kannski verður hœgt að tala
um netjól í verslun í ár.
Eflir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson
unum kleift að hefja starfsemi á Net-
inu með litlum tilkostnaði og lágu
mánaðarlegu gjaldi. I dag er nánast
hægt að kaupa það sem hugurinn
girnist hjá innlendum netverslunum,
ekki aðeins flugmiða og verðbréf
heldur líka fatnað af ýmsu tagi, mat-
vöru, tæki og sætabrauð, svo að eitt-
hvað sé nefnt. Þær verslanir, sem íyr-
ir voru, hafa aukið vöruúrval sitt til
muna. Hagkaup.is hefur t.d. um
nokkurt skeið haft bækur, hljóm-
diska, myndbönd og DVD-diska á
boðstólum og nýlega hefur fyrirtæk-
ið aukið starfsemi sína, hafið
sölu á matvöru og sérvöru í
gegnum Vefinn auk þess sem
sala á gjafavöru og leikföng-
um er fyrirhuguð fyrir jólin.
„Við vonum að sala á Hag-
kaup.is aukist í svipuðum
mæli og í fyrra þegar velta net-
verslunarinnar fjórfaldaðist frá
árinu áður. Okkur þykir ekki
óeðlilegt að eitthvað líkt því
verði uppi á teningnum í ár,“
segir Þór.
Ekki er vitað hvert umfang
rafrænna viðskipta er á Islandi
en áætlað er að veltan sé á bil-
inu 200-500 milljónir og í upp-
lýsingabæklingi frá Plaza er
talað um að hún hafi nurnið
350 milljónum króna í fyrra.
60