Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 64
FV-mynd: Geir Ola/sson
Guðbjörg Alfreðsdóttir, nýráðin framkvœmdastjóri Pharmaco.
í framtíðinni verður lögð
aukin áhersia á símenntun,
hvatningu og upplýsinga-
flæði innan fyrirtækisins.
„Síðan skiptir miklu máli að
hlúa vel að því sem við
erum með, standa okkur í
samkeppninni, verða
samkeppnisfærari og gera
stöðugt betur."
Frelsið í lyfiunum
Guðbjörg Alfreðsdóttir er lyija-
fræðingur að mennt og hefur
starfað hjá Pharmaco frá 1977.
Hún hefur komið að flestöllum deild-
um í fyrirtækinu, var síðast markaðs-
stjóri AstraZeneca í fimm ár áður en
hún var ráðin framkvæmdastjóri.
Hún sér um daglega stjórnun í fyrir-
tækinu undir stjórn Sindra Sindrason-
ar forstjóra, sem hefur tekið við starfi forstjóra hjá Balkan-
pharma, dótturfyrirtæki Pharmaco í Búlgariu, jafnhliða for-
stjórastarfi sínu hjá Pharmaco. Pharmaco er stærsta innflutn-
ings- og heildsölufyrirtæki á lyfjum í landinu, leiðandi í þjón-
ustu við framleiðendur og kaupendur á lyfjum, lækninga- og
rannsóknatækjum, heilsuvörum og snyrtivörum.
Pharmaco var stofnað árið 1956 þegar sjö apótekarar settust
niður á Naustinu og stofnuðu fyrirtæki um innflutning á lyfj-
um. Lyfjainnflutningurinn var í ólestri og einkum vantaði lyf
sem seldust ekki mikið og enginn vildi flytja inn. Síðan hefur
mikið vatn runnið til sjávar. Þegar Guðbjörg kom fyrst til starfa
stundaði fyrirtækið framleiðslu á lyfjum auk innflutnings og
dreifingu lyfja. Það var þá til húsa á fjórum hæðum við Skipholt
í Reykjavík. Fyrirtækið stækkaði hratt, fljótlega var keypt hús-
næði í næsta nágrenni og hluti starfseminnar fluttur þangað.
Árið 1981 var Delta stofhað og þar með var allri ffamleiðslu
hætt hjá Pharmaco. Pharmaco var flutt í nýbygginguna við
Hörgatún í Garðabæ árið 1983.
úr 20 í 40 prósent Mikið hefur ver-
ið að gerast á lyfjamarkaði hér á landi,
sérstaklega síðustu árin. Rekstur apó-
teka var gefinn frjáls 1. mars 1996.
Apótekunum hefur fjölgað gríðarlega
síðan; farið úr 44 í 60 og eignarhaldið
hefur gjörbreyst. Nú eru keðjur ráð-
andi á markaðnum og samkeppni rikj-
andi. Guðbjörg bendir á að samkeppni
apótekanna um verðlag komi sjúklingum til góða. I umræð-
unni gleymist þó gjarnan að meðan almenningur heldur að
lyfjaverð hafi hækkað þá hefur þróunin verið þveröfug, lyfja-
verð hefur lækkað en hlutur sjúklinga í lyfjaverðinu hefur í
raun og veru hækkað. Hið opinbera hefúr fært greiðsluþátttök-
una meira yfir á sjúklinginn þannig að greiðsluhlutfallið milli
ríkis og sjúklings hefur breyst. Ekki eru til neinar haldbærar
tölur en Guðbjörg telur að í dag greiði sjúklingar að jafnaði 40-
45 prósent af lyfjaverðinu þar sem þeir hins vegar greiddu um
20 prósent fyrir fjórum til fimm árum.
„Hið opinbera reynir einhvern veginn að ná í sinn skerf af
samkeppninni, sem það fær í rauninni ekki öðruvísi. Sam-
keppni og afsláttur hjá apótekunum koma sjúklingnum til góða
og buddunni hans. En ekki þó skattabuddunni," segir hún.
- Hefúrðu einhverjar Iausnir?
„Það er erfitt að greina slíkt. Af Norðurlöndunum hefur aðeins
ísland leyft frjálsræði apóteka hvað varðar leyfi til að opna apó-
Gudbjörg Alfreðsdóttir hefur verið
ráðin framkvœmdastjóri Pharmaco.
Hún pekkir lyfjamarkaðinn út og
inn eftir 23 ár hjá fyrirtœkinu.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson
64