Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 77
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flytur erindi sitt á haustráðstefnu Félags löggiltra endurskoðenda.
Fjármálaeftirlitið fær aukið hlutverk samkvæmt tillögum
frumvarpsins, þ. á m. að halda skrá yfir fruminnherja og aðra
innheija með tímabundinn aðgang að upplýsingum stöðu sinn-
ar vegna, auk þess sem eftirlitínu er ætlað að birta lista yfir
fruminnherja. Með þessum verkefnum aukast möguleikar Fjár-
málaeftirlitsins á virku aðhaldi í þessum málum.
Verklagsreglur - innherjaviðskipti Mikilvægt er að greina á
milli umræðu um innherjaviðskiptí og umræðu um eftírfylgni
við verklagsreglur ijármálafyrirtækja um eigin viðskipti þeirra,
viðskipti starfsmanna og Kínamúra. Þær reglur einskorðast
ekki við meðferð trúnaðarupplýsinga, markmiðið með þeim er
að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og draga úr hættu á
óhlutdrægni við meðferð og afgreiðslu mála. Fjármálaeftírlitið
er að móta leiðbeiningar um efni nýrra reglna um verðbréfavið-
skipti, sem ijalla um þessi mál. Fjármálaeftirlitið er nú að vinna
úr athugasemdum sem frani hafa komið við drög þess að leið-
[ Ráðgjöf og þjónusta
S í MIN N i nternet'
www.simnet.is 800 7575 Armúli 25 -tengir þig við lifandi fólk
beiningum sem eftírlitið birti í sumar á heimasíðu sinni. Fyrir-
tækjum í verðbréfaþjónustu og lánastofnunum ber að setja sér
reglur af þessu tagi, sem þurfa staðfestingu Fjármálaeftírlitsins.
Grunnmarkmið við mótun startshátta á verðbréfamarkaði Um-
ræða um innherjaviðskipti og umræða um verklagsreglur
fjármálafyrirtækja lýtur þó að sömu grunnmarkmiðum um
mótun starfshátta á verðbréfamarkaði. Grunnviðmið við mót-
un á starfsháttum á verðbréfamarkaði hlýtur að mati Fjár-
málaeftirlitsins að vera að starfshættir á verðbréfamarkaði
hér séu sambærilegir að gæðum við þá sem þekkjast í við-
skiptalöndum okkar. Það er forsenda þátttöku erlendra aðila
á íslenskum verðbréfamarkaði. Sjónarmið um að hér þurfi að
gilda vægari reglur vegna smæðar markaðarins og mikillar
þátttöku fjármálafýrirtækja á verðbréfamarkaði með viðskipt-
um fyrir eigin reikning, eiga því alls ekki rétt á sér að mati
Fjármálaeftirlitsins. IH
77