Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 79
íslendingar eiga núna að fuílu eða hluta í 10 fjárniálafyrirtækjum erlendisi
ej/ koma við sögu í fjármálafstarfsemi á nokkrum öðrum stöðum til viðbótar.
!<nu|imnnnnhöfn
Islandsbanki-FBy
Kaupþing
Guornsey
Landsbanki íslands
Kaupþing
Luxomborg
Kaupþing
Bunadarbanki
náð en í dag eru 75 prósent af starfsfólkinu hér heima og 25
prósent erlendis. Starfsmenn erlendis eru um það bil 70 tals-
ins, í langflestum tilfellum heimamenn á viðkomandi stöðum.
- Hvernig sérðu framtiðina í þessu?
„Eg geri ráð fyrir því að vöxturinn eigi sér stað utan íslands
hvað okkur varðar. Við gerum ráð fyrir því að þessi uppbygg-
ing erlendis haldi áfram. Við setjum okkur ekki niður ein-
hvers staðar og opnum skrifstofu bara til að opna skrifstofu.
Það þarf að vera ákveðin viðskiptahugmynd að baki. Okkur
þarf að lítast þannig á þá viðskiptahugmynd að hún skili ásætt-
anlegri ávöxtun á það eigið fé sem við bindum í svona starf-
semi. Ef við sjáum ekki fram á að viðskiptahugmyndin geri
það þá förum við ekki af stað með þessa starfsemi."
Fyrir Norðurlandabúa Búnaðarbanki íslands hóf útrás sína er-
lendis þegar erlendir verðbréfasjóðir bankans voru stofnaðir í
Lúxemborg fyrir tveimur árum. Búnaðarbankinn er þar í sam-
starfi við franska bankann Credit Agricole Indosuez, sem er
umsvifamikill í sjóðarekstri. í sumar var svo stigið annað skref
þegar Búnaðarbankinn stofnaði dótturfyrirtækið Bunadar-
banki International S.A (BI Bank Int.) í Lúxemborg. Banka-
stjórar eru tveir, Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri í
Seðlabankanum, og Alf Muhlig, fv. aðstoðarbankastjóri Union
Bank of Nor way. Stefht er að því að starfsmennirnir verði 15 til
að byrja með, þriðjungurinn verði Islendingar, þriðjungur frá
hinum Norðurlöndunum og loks síðasti þriðjungurinn frá Lúx-
emborg og nágrenni.
BI Bank International er þegar kominn með bankaleyfi og
starfsemi hafin. Einn af meginþáttunum í starfseminni verður
sérbankaþjónusta fyrir íslendinga en einnig er fyrirhugað að
stunda útlánastarfsemi og starfsemi á gjaldeyris- og verðbréfa-
mörkuðum. „Við erum líka að hugsa um Norðurlöndin og
byggjum því þessa þjónustu upp fyrir Norðurlandabúa og aðra
þegar fram í sækir. Framtíðarvöxturinn hlýtur að einhverju
leyti að liggja utan Islands,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarbankans Verðbréfa. „Við lítum líka
á það sem okkar lilutverk að kynna íslenskan fjármálamarkað
fyrir erlendum fjárfestum. Eitt af vandamálunum á innlendum
fjármálamarkaði í dag er að innlendir fjárfestar fjárfesta mikið
79