Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 92
Skenimtilegast er að gefa svokallaðar Magnum flöskur en það eru flöskur sem taka um 1,5 lítra. Vínið í þessum flöskum þroskast betur en í
venjulegum flöskum oggeymist mun betur. FV-mynd: Geir Ólafsson
Léttvín til jólagjafa
Hvað á að gefa miðaldra karli í jólagjöf
og hvað þá ef viðkomandi er í stjórn-
unarstörfum og sæmilega efnum
búinn? Flestír sem komnir eru yfir miðj-
an aldur eiga orðið flesta skapaða hluti,
það mun vera nokkuð auðveldara að velja
heppilegar gjafir fyrir konur. Léttvín verður sífellt vinsælli gjafa-
vara enda er vart hægt að hugsa sér betri gjöf, því hún hentar
bæði körlum og konum. Undanfarin fimm ár hefur verið vinsælt
að gefa körfur með margskonar góðgætí í, svo sem gæsalifur og
ostum auk víns. Fyrirtæki sem hyggjast gefa viðskiptavinum sín-
um eða starfsfólki gjaíir ættu að huga vel að því hvaða vín eru val-
in, vin í matarkörfu þarf að vera vín sem tílbúið er tíl neyslu en ef
vínið er gefið eitt og sér má það gjarnan vera vín sem geyma þarf
í einhvern tíma. Þá er skemmtílegra að gefá fólki fáar flöskur af
góðu víni en margar af meðaldýru eða ódýrara víni. Skemmtíleg-
ast er að gefa svokallaðar Magnum flöskur en það eru flöskur
sem taka um 1,5 litra. Vínið í þessum flöskum þroskast betur en
í venjulegum flöskum og geymist mun betur. Því miður er litíð úr-
val af góðum vínum í Magnum flöskum tíl hér, en einstaklingar
og fýrirtæki geta snúið sér til umboðsfyrirtækja hinna ýmsu vína
sem hér eru á boðstólum og beðið þau um að panta gæðavín í
Magnum flöskum. En hvaða vín henta vel til jólagjafa? Það er vita-
skuld smekksatriði og fjöldi góðra vina kemur tíl greina. Ég vildi
þó mæla með Bordeaux vinunum. Frá Bordeaux koma mörg af
bestu vínum heims, vín sem flestír þekkja og kunna að meta.
Bordeaux Bordeaux vínin hafa algjöra
sérstöðu í vínheiminum. Skilyrði til vín-
ræktar eru einstök frá náttúrunnar
hendi í héraðinu. Bordeaux vínin eru í
stöðugri þróun og gæði þeirra hafa
aldrei verið meiri en nú á síðari árum.
Flokkunarkerfið frá 1855, þar sem víngerðarhallirnar voru
flokkaðar eftir gæðum, hefur svo sannarlega tryggt að Bor-
deaux vínin eru jafnan í hæstu mögulegu gæðaflokkum. Vissu-
lega eru öll árin ekki jafn góð og hefur það vissulega áhrif á
verð Bordeaux vínanna. Mörg hinna bestu Bordeaux vína selj-
ast á uppboðum fyrir ótrúlegar fjárhæðir. Sem dæm má nefna
að gæðavínið Mouton-Rothschild gaf á timabilinu 1982 til 1997
mun betri ávöxtun en hlutabréf á verðbréfamörkuðum í Evr-
ópu. Margir fjárfestar kaupa því mikið magn af hallarvínunum
ffá Bordeaux og á það sinn þátt í því hvað þau eru hátt verð-
lögð í vínheiminum. Sagt er að í Evrópu kaupi menn Bordeaux
vínin til þess að selja þau aftur, Bandaríkjamenn til að safna og
monta sig af en Asíubúar kaupi hins vegar vínin til þess að
drekka þau. Eins og áður hefur komið fram sveiflast verð Bor-
deaux vínanna nokkuð eftir árgöngum. Sem dæmi má nefna að
1984 var mjög dapurt ár og enn má finna flöskur af þessum ár-
gangi á tiltölulega lágu verði. Góð ár, eins og t.d. 1989 og 1990,
eru nánast að verða uppseld. 1997 var frekar magurt ár í Bor-
deaux og þess vegna er mikið framboð af Bordeaux vínum á
markaðnum af þessum árgangi.
Gœðavínið Mouton-Rothschild
gafá tímahilinu 1982 til 1997 mun
betri ávöxtun en hlutabréfá verðbréfa-
mörkuðum í Evrópu.
92