Frjáls verslun - 01.10.2000, Qupperneq 93
VÍNUMFJðlLUW SIGMABS
Bordeaux á íslandi Því miður er frekar lítið framboð af hall-
arvínum frá Bordeaux í verslunum Á'l'VR. Þessi vín eru dýr og
því ekki stór markaður fyrir þau hér á landi. Þeir sem vilja
krækja sér í góða árganga af hallarvínum frá Bordeaux ættu því
að hafa samband við þau fyrirtæki sem flytja þessi vín inn hing-
að til lands. Mörg hinna betri Bordeaux vína eru svo eftirsótt og
vinsæl að þau eru skönuntuð til umboðsfyrirtækja í hverju landi
fyrir sig. En hvaða góð Bordeaux vín, sem eru til hér á landi,
væru heppileg til jólagjafa? Þau vin sem helst koma til greina
eru á sérlista eða í sérpöntunarflokld. Það er því vissara að
hringja í ÁTVR og kanna hvað er til. Frábært vín er Chateau
Clerc-Milon '97 á 3.990 krónur. Eins og áður hefur komið fram
var 1997 ekkert sérstakt ár en Clerc-Milon gæti batnað veru-
lega og því ætti að gefa því nokkur ár. Chateau Cantenac Brown
'96 á 4.470,- krónur er yndislegt vin, viðkvæmt en þó með góða
bragðfyllingu. Chateau d’Armaihac '97 á 4.230 krónur er eitt af
þessum fremstu Bordeaux vínum, nánar tiltekið frá Pauillac
sem alltaf stendur fyrir sínu. Chateau Latour kostar 15.810
krónur flaskan og Chateau Mouton-Rothschild kostar 19.170
krónur flaskan. Ugglaust eru þetta vel dýrar jólagjafir en þessi
vín koma frá frægustu Chateaux eða höllum Bordeaux og þrátt
fyrir allt þá verður enginn svikinn aí því að fá þessi frábæru og
frægu vín í jólagjöf. Heppilegri vín til jólagjafa eru Chateau
Pichon-Longueville-Baron '91 á 6.510 krónur. Þetta er ótrúlegt
vín, ekta gamaldags Bordeaux, sjarmerandi og þægilegt. Le
Petit Mouton de Mouton-Rothschild á 6.030 krónur er gott
dæmi um nýju vínin í Bordeaux, ilmríkt, milt en með breiðu og
góðu eftirbragði. Forvitnilegt vín er Pomerol vínið Chateau
Petit-Village '95 á 6.740 krónur. Þetta vín er nokkuð misjafnt en
þegar það er upp á sitt besta er það aldeilis frábært.
Kampavín - hittir alltaf I mark Vissulega eru mörg önnur vín
en Bordeaux vínin vel til þess fallin að gefa í jólagjöf. Svo við
höldum okkur við Frakkland þá koma mörg stórkostleg vín frá
Bourgogne. Sá er hins vegar gallinn á gjöf Njarðar að úr-
valsvínin í Bourgogne eru framleidd í svo litlu magni að þau
eru nánast ófáanleg og mjög dýr. En gott kampavín bregst
aldrei og vekur jafnan góðar og ljúfar tilfinningar. Það kom
fram hér að framan að gaman væri að gefa Magnum flöskur í
jólagjöf. I sérpöntunarflokki ÁTVR eru tvær frábærar tegundir
af kampavíni í Magnum flöskum, þ.e.a.s. ílöskum sem taka 1,5
lítra. Þau vín sem hér er urn að ræða eru Bollinger Grande
Annee á 8.710 krónur ogTaittinger Millennium á 7.050 krónur.
Báðar þessar tegundir eru „stór“ kampavín, betri jólagjöf er
vart hægt að hugsa sér.
Hvaða vín er best með hamborgarhrygg? Eitt er víst, þið
drekkið ekki dýrt og gott hallarvín frá Bordeaux með ham-
borgarhryggnum. Það er vandi að velja heppilegt vín með
reyktu og söltu kjöti, svo ekki sé nú minnst á meðlætið sem
fylgir með því, eins og rauðkál og sykurbrúnaðar kartöflur.
Vitaskuld eru ýmsar kenningar uppi um hvaða vín eigi vel við
með reyktu svínakjöti. Vínið Beringer Napa Valley Cabernet
Sauvignon á 1.920 krónur ræður vel við hamborgarann og
meðlætið. Rosemount Shiraz Cabernet á 1.570 krónur er öflugt
vín sem hæfir vel íslenskum hamborgarhrygg. Með hangikjöt-
inu er hins vegar best að drekka jólaöl eða pilsner. Ef hins veg-
ar einhver getur ekki hugsað sér jólin og hangikjötið nema
með glasi af víni þá dettur mér helst í hug Riunite Lambrusco
á 1.280 krónur, þetta er hálfsætt, ávaxtaríkt og hálf freyðandi
Við gerð Bordeaux vínanna sameinast listir og vísindi. Bordeaux vín-
in eru látin þroskast í eikarámum í 18-24 mánuði.
vín sem af vínsmökkurum þykir ekki merkilegt. En, ótrúlegt
en satt - alls ekki svo vitlaust með hangikjöti.
WWW.3tVr.iS Eins og áður hefur komið fram eru flest þau
betri vína sem hér hafa verið nefnd í sérpöntunarílokki ÁTVR.
Eg vil því eindregið hvetja fólk til að versla á Netinu, a.m.k. að
skoða vefsíðu ÁTVR ÁTVR hefur gefið út sérstakan bækling
með upplýsingum um vefverslun fyrirtækisins og liggur hann
frammi í verslununum. Fyrir vínáhugamenn sem hafa áhuga á
því að leita sér frekari upplýsinga um það sem um er að vera í
vínheiminum skal bent á sænska ráðgjafarfýrirtækið
Wineprofiler en vefsíða þeirra er www.wineprofiler.com S3
Sigmar B. Hauksson fjallar reglulega um léttvín í Frjálsri verslun.
Mynd: Geir Ólafsson
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum til jólagjafa:
Chateau Clerc-Milon 1997 á 3.990 krónur
Chateau Cantenac Brown 1996 á 4.470 krónur
Chateau d'Armaihac 1997 á 4.230 krónur
Chateau Pichon-Longueville-Baron 1991 á 6.510 krónur
Le petit Pouton de Mouton-Rothchild á 6.030 krónur
Chateau Petit-Village 1995 á 6.740 krónur
Bollinger Grande Annee á 8.710 krónur
Taittinger Millennium á 7.050 krónur
Vín með hamborgarhrygg:
Beringer Napa Valley Cabernet Sauvignon á 1.920 krónur
Rosemount Shiraz Cabernet á 1.570 krónur
Vín með hangkjöti:
Riunite Lambrusco á 1.280 krónur.
93