Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 98
Anna Þorsteinsdóttir í verslun sinni, Anas, í verslanamiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. „Ahugamálin eru ferðalög, bœði innanlands og utan, “seg-
ir hún. FV-Mynd: Geir Olafsson
Anna Þorsteinsdóttir, Anas
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
Anna Þorsteinsdóttir
rekur verslunina Anas í
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði. Með fjög-
ur börn, eiginmann og jeppa,
ásamt rekstri verslunarinnar,
hefur Anna hendur sínar full-
ar og henni leiðist ekki hæt-
ishót.
Verslunin Anas er stór og
björt, innréttingarnar eru ný-
stárlegar og grípa augað.
Notaleg tónlist mætir manni
og eigandinn, Anna Þor-
steinsdóttir, raðar upp vörum
og afgreiðir viðskiptavini.
„Eg hannaði sjálf innrétt-
ingarnar," segir Anna, sem
opnaði verslunina fyrir rúmu
ári. „Þær hafa vakið nokkra
athygli en líta þannig út að
fólk telur vörurnar dýrari en
þær eru og þess vegna kem-
ur það ánægjulega á óvart
hve gott verðið er.“ Anna
segist flytja inn allar vörur í
verslunina sjálf, mest frá
dönskum hönnuði sem hún
kynntist á ferðum sínum í
Danmörku. „Þessi hönnuður
hentar mér mjög vel, hún
vinnur úr vönduðum efnum
og sniðin hjá henni eru góð,“
segir Anna. „Fötin eru svolít-
ið öðruvísi en víðast hvar
annars staðar en þó þannig
að fólk á öllum aldri getur
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Það sem ég ekki get keypt
frá þessum hönnuði kaupi ég
annars staðar til þess að hafa
vörulínuna heildstæða."
Komin lil að vera Anna seg-
ist eingöngu kaupa inn það
sem hún hrífist af sjálf, enda
ekki treysta sér til að velja á
annan hátt. Það gangi hins
vegar nokkuð vel og hún er
ánægð með viðtökurnar sem
verslunin hefur fengið. Hef-
ur enda fest kaup á húsnæð-
inu og er komin til að vera í
Firði. Með henni í afgreiðsl-
unni eru tvær stúlkur sem
koma eftir hádegið alla daga
en fýrir hádegið seinni hluta
vikunnar.
„Eg vann í versluninni Elf-
ur um 10 ára skeið og þar má
segja að ég hafi fundið mína
hillu í lífinu," segir Anna.
„Mér líkaði þar ákaflega vel
og tók þátt í innkaupum er-
lendis ásamt dóttur eigand-
ans. Þegar verslunin hætti
vissi ég að verslunarstörf
voru það sem ég vildi starfa
við í framtíðinni." Með fjögur
börn er þetta talsvert mál,
enda segir Anna mikla vinnu
liggja að baki og stöðuga.
„Eg fór margar ferðir til út-
landa á síðasta ári en það
voru allt vinnuferðir og held-
ur strembnar."
Ekið á fjöll Eiginmaður
Önnu er Karl Rútsson og
þeirra helsta áhugamál er að
fara á jökla og fjöll.
„Við eigum stóran jeppa
sem við förum á um landið
eins oft og við getum,“ segir
hún. „Því miður eru þær
stundir allt of fáar sem við
höfum til þess og lítið um
sumarfrí síðustu ár. En við
höfum gjarnan tekið börnin
með okkur og ég man eftir
því að eitt sinn fórum við á
Vatnajökul, þá með yngsta
barnið 9 mánaða. í það skipt-
ið stóð mér ekki á sama enda
höfðum við daginn áður farið
um Bárðarbungu og fest
okkur í sprungu. Þetta gekk
þó allt vel og sólin skein fal-
lega á meðan við ókum um
jökulinn. Annars eru áhuga-
málin að mestu bundin
ferðalögum, bæði innan-
lands og utan, og draumur-
inn sá að geta skoðað og
ferðast um ókunn lönd og
haft til þess tíma.“ BD
98