Helgarpósturinn - 26.01.1995, Side 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
í þessu blaði
4
Linda Pé og löcgan
Búist vio sáttum
6
Ögmundur Jónasson
„Leiðari Ellerts
er lygiw
Hrossabændur í hár saman
Blekktir í hrossa-
rækt í Litháen
Forsætisráðherra um styrki til
landsbyggðarþingmanna
„Óeeðfelldar
reglurw
12
Internetið sigrar heiminn
Að týnast
í tækninni
H
1 ólf ára stúlka misnotuð af
bróður sínum
Haldið á Ungl-
ingaheimilinu
16
Islenskir íjárhættuspilarar
Hætta hundruð
þúsunda
18
Nýja stjörnumerkið naðurvaldi
Hverjir lenda
hvar í hringnum?
20
Tvífari Saddams Husseins
Neyddur til að
vera skotmark
22
Viðtal Ingólfs Margeirssonar
Lífskúnstnerinn
Hans Kristján
24
Hvernig á að verða ríkur?
Ruanda-Café
er lausnin
26
Mörg andlit samviskunnar
Fangar segja frá
f V
Island í dag
Upparnir
ganga aftur
28
Baltasar Kormákur í viðtali
Vonbrigði að
finna ekki ástina
Fyrst &fremst
GUÐJÓN PETERSEN hélt fund á ísafirði og snjóflóðaeftirlitsmaðurinn
gekk út. BENEDIKT DAVÍÐSSON er æfareiður yfir stjórnarskrárbreyt-
ingum.
Snjóflóðaeftirlíts-
maðurinn gekk út
Almannavarnir ríkisins héldu fund
á ísafirði með heimamönnum og
Súðvíkingum á þriðjudagskvöldið,
eins og fram hefrxr komið í fréttum.
Guðjón Petersen, framvæmdastjóri,
lét hafa eftir sér að nú ætti að setjast
niður og fara í gegnum allt ferlið til
þess að geta lært af því sem vel gekk og
eins hinu sem miður fór. Guðjón
sagði að það yrði metið kalt hvernig til
hafi tekist. Snjóflóðaeftirlitsmaðurinn
í Súðavík sem einnig á sæti í hrepps-
nefnd og almannavarnanefnd
hreppsins, Heiðar Guðbrandsson,
yfirgaf fúndinn í fússi. Hann mun
hafa haft á orði að það þýddi lítið að
vera að klappa hver öðrum á bakið
þegar ljóst væri að ýmis mistök hafi
verið gerð í Súðavík áður en flóðið
féll. Þar var hann meðal annars að vísa
til þess að almannavarnanefnd Súða-
víkur kom ekki saman kvöldið áður
en sjóflóðið féll á þorpið.
ASÍ mótmælir
félagafrelsi
Alþýðusambandsmenn, með
Benedikt Davíðsson í broddi fýlk-
ingar, eru mjög óánægðir með fyrir-
hugaða stjórnarskrárbreytingu er
treysta eiga mannréttindi. Einkum er
það 12. grein frumvarpsins sem fjallar
urn réttinn til þess að standa utan fé-
laga sem fer fýrir brjóstið á verkalýðs-
forystunni. Benedikt segir að þeirri
grein sé greinilega beint gegn starf-
semi stéttarfélaga í landinu og henni
hafi verið laumað inn í ffumvarpið án
nokkurrar umræðu. Hér er um
grundvallaratriði að ræða fýrir verka-
lýðsfélögin sem ætla með öllum leið-
um að koma í veg fýrir að frumvarpið
verði samþykkt í óbreyttri mynd.
Blaðamennimir fengu
lax en hinir soðningu
Þegar miklar hörmungar ganga yfir
er ekki óalgengt að fjölmiðlamenn,
sem mæta á vettvang, fái yfir sig sví-
virðingar og björgunarmenn og jafú-
vel heimafólk skeyti skapi sínu á þeim.
I hörmungum síðustu viku vakti það
athygli blaðamanna, sem staddir voru
á ísafirði, hve heimamenn í Súðavík
og á Isafirði tóku þeim vel. Svo virtist
hins vegar að nokkrir í björgunarlið-
inu, sem kornu að sunnan, hafi talið
sér rétt og skylt að halda uppi hefðinni
og hatast út í blaðamennina. Vegna
þess spunnust hinar ýmsu sögur,
sannar og lognar. Ein þeirra gekk út
það að yfirmenn á varðskipinu Tý og
blaðamenn hafi fengið lax að borða í
hinni löngu og erfiðu ferð vestur. Þeg-
ar þeir hafi verið búnir að troða belg-
inn á laxinn að hafa verið búinn og
björgunarmennirnir þurft að sætta sig
við soðna ýsu. Þetta var umræðuefúi
nokkurra þeirra á leiðinni frá Súðavík
inn á ísafjörð á þriðjudagskvöldið að
björgunarstörfúm loknum. Víst var
lax á borðum, en einnig lúða þegar
laxinn þraut. Blaðamenn höfðu eng-
an forgang fram yfir björgunarmenn-
ina og ekkert skipulag var á þvi hverjir
borðuðu fýrstir. Spurningin er því sú
hvort blaðamennirnir hafi einfaldlega
verið sjóhraustari og með magann i
lagi.
Sósíalistar mæta á
landsfund Þjóðvaka
Mikil hrossakaup hafa átt sér stað
um sæti á lista hjá Alþýðubandalag-
inu og reyndar öðrum flokkum.
Þannig mun Svavar Gestsson hafa
gefið vilyrði sitt fýrir því að styðja Þóri
Karl Jónasson, formann Iðnnema-
sambandsins, í 5. sæti á listann í
„Þú ert oldrei
ofungur til
þess að njóta
þess að aka um
á vélsleða. “
„Þú ert aldrei of ungur til þess að njóta þess að aka um á
vélsleða.“ Þessa setningu er að finna í inngangi auglýs-
ingar um svokallaða Kitty-cat vélsleða, eða vélsleða
sem hafa innan við 25 kílóa burðarþol. Burðarþolið
þýðir með öðrum orðum að vélsleðann geta ekki
setið börn sem komin eru yfir u.þ.b. sjö ára aldur.
Þegar hafa selst þrír Kitty-cat minivélsleðar hér á
landi og kostar hver litlar 235 þúsund krónur.
Mikil della ku vera fýrir barnavélsleðum í Banda-
ríkjunum.
Bannað er að aka um vélsleða á íslandi innan
bæjarmarka, auk þess sem ekki er vitað til að börn
megi aka vélknúnum ökutækjum. I samtali við
MORGUNPÓSTINN sagði sölumaður Bifreiða og land-
búnaðarvéla vélsleðann hins vegar „pottþétt" leyfileg-
an. „Þetta er ekkert annað en leikfang sem fer litu hraðar
en mannskepnan gangandi. En sagt er að maðurinn gangi
að meðaltali fimm kílómetra á klukkustund á meðan sleð-
inn fer 12 kílómetra á klukkustund. Reyndar finnst mér sá
hraði í algjöru hámarki. En þetta er fullkomlega öruggt tæki.“
Vélsleði þessi er knúinn bensínvél sem ér 60 kúbika vél og eins
sínilítra. Þegar svissað er á vélsleðanum fara í gang öll aðalljós sleð-
ans og sjálflýsandi borði er umhverfis hann, þannig að vélsíeðinn sést
langar leiðir í myrkri. Sleðinn er 142 sentimetra langar, 72 sentimetrar á
hæð og 58 sentimetra breiður.
Ekki átti sölumaður Bifreiða og landbúnaðarvéla von á því að sams konar „della“ skapaðist fyrir barnavél-
sleðum hér á landi og átt hefur sér í Bandaríkjunum, enda verðið hreint rosalegt fyrir barnaleikfang. Aðeins
einn barnavélsleði er til á lager B&L. Ekkert mál er þó að panta þá ef börnin heimta hann í jólagjöf á næsta ári.
Reykjavík en Þjóðvaki ku einnig,
samkvæmt heimildum blaðsins, hafa
boðið honum nokkuð gott sæti. Þórir
Karl hafnaði af flokkshollustu en
rankaði við sér í ruslatunnunni þegar
ffamboðslistinn var orðinn til. Þá ætl-
uðu sósíalistar að bjóða ffarn sérstak-
an GG-lista eftir raunir sínar á listan-
um en kjördæmisráð ABR sem er
skipað 60 manns, þar af þremur úr
Sósíalistafélaginu, neitaði þeim urn
listabókstafinn og því óvíst hvort af
sérffamboði verður. Það er því ýmis-
legt rætt innan Sósíalistafélagsins og
meðal annarra óánægðra Alþýðu-
bandalagsmanna. Meðal annars er
rætt um að skrifa undir sameiginlega
stuðningsyfirlýsingu við Þjóðvaka en
félagar úr Sósíalistafélaginu ætla að
sækja landsfund Þjóðvaka nú um
helgina og kynna sér nxálavöxtu. Eitt
er víst að sæti á ffamboðslista Þjóð-
vaka á skalanum 2.-5. er haldið volgu
fýrir Þóri Karl.
Myndabannið mistök
Vegna ákvörðunar sýslumannsins
fýrir vestan, Ólafs Helga Kjartans-
sonar, er sáralítið myndefni til af leit-
inni í Súðavík þar sem ljósmyndunim
og tökumönnum hjá sjónvarpsstöðv-
unum var meinað að taka rnyndir.
Sagnfræðingar framtíðarinnar eiga
eftir að syrgja þessa ákvörðun og
sömuleiðis sérffæðingar í snjóflóða-
vömum. Fjölmiðlamenn gagnrýndu
þessa ákvörðun harðlega, meðal ann-
ars á þeim forsendum að hægt hefði
verið að leyfa myndatökur með því
skilyrði að þær yrðu ekki birtar strax
eða þá að þess yrði gætt að mynd-
skeið, sem hugsanlega hefðu komið
illa við aðstandendur þeirra sem
saknað var. Vegna þessa máls varð
ákveðinn trúnaðarbrestur milli sýslu-
manns og fjölmiðlanna. Flestir sem
stjórnuðu aðgerðum sáu eftir á að
þama vom gerð mistök.
Hrafn vill ekki í pólitík
Talsvert var urn það rætt á tímabili
að Hrafn JöKULSSON færi í slaginn
fýrir Alþýðuflokkinn á Suðurlandi og
að hann tæki 2. sæti á lista en hann er
einmitt búsettur á Eyrarbakka. Hrafn
mun hafa tekið sér tíma til að hugsa
málið en kann víst ósköp vel við ríkj-
andi stöðu sína sem er við ritstjórastól
Alþýðublaðsins og sem félagi í tafl-
klúbbi Selfoss.
Þoriákur yfirgefur
Þjóðvaka
Þorlákur Helgason var einn helsti
forystumaður Þjóðvakans á upphafs-
dögum þess. Eins og mörgum öðmm
hefúr honum þótt vistin erfið innan
Þjóðvakans og hefur dregið sig út úr
þeim félagsskap. Það sem þóttu hins
vegar meiri tíðindi er að Þorlákur fal-
aðist eftir 5. sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Hvorki var vilji né
geta til þess að verða við þeirri bón
enda var búið að úthluta því sæti til
Svanhildar Kaaber sem stuðnings-
manneskju Ögmundar Jónassonar.
Þorláki var að vísu boðið sæti neðar á
listanum sem hann þáði ekki.
HRAFN JÖKULSSON hafnaði 2. sætinu hjá krötum á Suðurlandi. SVAVAR GESTSSON lofaði fimmta sætinu upp i ermina á sér. SVANHILDUR
KAABER fékk 5. sætið á G-lista sem Þorlákur falaðist eftir. JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR virðist höfða til Sósialistafélagsins í Alþýðubandalaginu.
ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON, sýslumaður á Vestfjörðum, bannaði myndatökur.
SvakaJega er það sniðugt
að Steingrímur J. skuli
búa ofan í skúffu.
\
Já, það fær mann til
að dreyma um að
læsa henni og henda
lyklinum.
/
Léttvigí
Vegur landsbyggðarþingmatinanna heim
Ég á svolítið erfitt með að átta
mig á því hvers vegna Halldór Ás-
gríms, Matti Bjarna, Steingrím-
ur J., Guðmundur Bjarna og
þessir sviphreinu sveitadrengir á
Alþingi halda sig ekki heima hjá
sér þar sem töðulyktin er sæt og
sólin vermir vanga í stað þess að
húka í steinkumbaldanum við
Austurvöll árið út og inn fölir á
vanga. Þar tærast þeir upp af eilífu
þrasi og illdeilum. Og ég sé ekki
betur en að þeir séu líka að drep-
ast úr heimþrá. Hvað á það annars
að þýða að vera ekki fluttir að
fullu og öllu úr foreldrahúsum,
harðfullorðnir mennirnir? Það
segir mér að þeir vilji halda í þá
römmu taug sem sveitin heima er.
Hvers vegna flytur Steingrímur
]. ekki aftur í Þistilfjörðinn í stað-
inn fyrir að vera að argaþrasast
þetta í bænum? Hann er alltaf að
tala um hvað hann langar til að
verða formaður flokksins síns en
það er ekkert í samanburði við
það að vera kóngur — alveg sama
þó að það sé bara fjallkóngur. Þá
gæti hann riðið um héruð og
fjallasali og virt fyrir sér ríki sitt og
þegna. Það er ekki til frjálsara líf
en smaladrengsins og hamingjan
sem fylgir því að hafa náð öllum
skjátum sínum á náttstað og eiga
við þær orðastað í húminu fyrir
svefninn hefur hugann á loft. Því
fylgir lotning og virðing að eiga
athygli viðmælenda sinna óskipta
þótt svarið sé jarmað og þurfa
ekki að öskra á þá sent eiga að
heita vinir manns til að fá orðið.
Ég held líka að múkkinn háfi
séð eftir Halldóri suður eins og
hann saknar einræðanna við þá á
heimstíminu á lognkyrrum nótt-
urn þegar tunglið speglast í haf-
fletinum. Er það nema von að það
þurfti að múta þessum góðu
drengjum til að flytjast í bæinn í
þessi ópersónulegu einbýlishús
sem fyllast af menguðu lofti þegar
gluggarnir eru opnaðir? Ég myndi
glaður borga þessi sjöhundruð
þúsund á ári til að flýja borgarsoll-
inn og komast á vit ævintýranna
sem bíða manns bak við hverja
þúfu. Glaðurýfirgæfi ég óðal mitt
hér í Reykjavík og þyrfti ekki mút-
ur til. Og þó, ég er svo blankur
þessi misserin, eins og svo margir
aðrir.
Matti einn hafði vit á að hætta
þrasinu þannig að hann flýgur
vestur á firði með vorinu í sam-
floti við vini sína farfuglana.
Ég á bara eitt ráð til hinna, sem
þjakaðir eru af heimþrá, og leyfi
mér að vitna í skáldið sem sagði:
„Hver vegur að heiman er vegur-
inn heim.“
Lalli Jones