Helgarpósturinn - 26.01.1995, Page 22

Helgarpósturinn - 26.01.1995, Page 22
22 MORGUNPÓSTURINN VIÐTAL FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995 Ingólfs Margeirssonar Neistinn sem tendrar bálið Rætt við ævintýramanninn og iífskúnstnerinn Hans Kristján Ámason Hans Kristján Árnason er mað- ur sem sífellt kemur úr óvæntri átt. Hann kemur manni á óvart með frumlegum framkvæmdum en kannski kemur það manni mest á óvart að Hans Kristján, eða Hosi eins og vinir hans kalla hann, skuli yfirleitt koma manni á óvart. Hans Kristján er nefnilega ekki ævintýra- maður á velli; hægur, dagfarsprúð- ur svo jaðrar við fágun, vel lesinn og hugsandi einstaklingur. Hann gæti verið diplómat (var reyndar ræðismaður Hollands um tíma; tit- ill sem hann tók við af föður sínum en gaf frá sér) ellegar deildarstjóri í húmanískum fræðum við breskan háskóla; kannski forstöðumaður bókasafns. En svo er ekki. Hans Kristján Árnason er ævintýramað- ur og lífskúnstner. Af Guðs náð. Það er engin tilviljun að hann var annar frumherjanna sem stofnuðu Stöð 2 á sínum tíma. Og það er heldur engin tilviljun að hann skrifaði og gaf sjálfur út samtöl við Gunnar Dal fyrir jólin og sló flest- öllum bókaútgefendum og rithöf- undum við í markaðssetningu og sölu. Hosi kemur nefnilega sífellt úr óvæntri átt. Meira að segja í upp- hafi viðtals. - Fréttir eru kastljós á leiðinlega hluti í þjóðfélaginu, segir Hans Kristján þegar við tyllum okkur í kaffisalinn á Hótel Borg. Hans Kristján er að velta fyrir sér fréttaflutningi. Og ég panta kaffi. - Þetta er ekkert einstakt fyrir Is- land, heldur Hans áfram. Breska sjónvarpið sem ég horfi á daglega gegnum gervihnött er fullt af þessu; byggist á hinu neikvæða. Og í lok fréttatímanna kemur örlítið um einhvern sniðugan apa sem gerði eitthvað skemmtilegt í dýragarðin- urn þann daginn. Svona rétt til að sýna hvað fréttastöðin er jákvæð. Og svo vendir Hans Kristján kvæði sínu í kross og fer að segja mér frá félögum í Rótaríldúbb sem hefðu hlegið svo dátt í hádeginu að mátti heyra langt út á götu. Ég spyr Hans hvort hann sé félagi í karlaklúbbi. - Nei, nei, svarar hann að bragði og brosir. Ég hef aldrei á ævinni verið í karlaklúbbi. Ég er bara í Am- nesty International. Og einu sinni var ég ylfingur. Þar með eru karlaklúbbar af- greiddir. Tltlið beinist að Gunnari Dal og hinni óvæntu metsölubók þeirra félaga um jólin. - Ég kynntist Gunnari í fyrra þeg- ar ég gerði um hann þátt fyrir sjón- varp, segir Hans Kristján. Það var skemmtilegt að hitta Gunnar og þótt hann væri óvanur sjónvarps- tökuvélum, þá sýndi hann að enn meira leyndist bak við hann en fram kom í þættinum. Það var líkt og þátturinn kallaði á framhald. Gunnar hafði alltaf svar á reiðum höndum. Hann gat talað um hvað sem var. Menn með jafn yfirgripsmikla almenna þekkingu eru orðnir sjald- gæfir. Sérhæfingin í dag hefur útrýmt almennn þekkingu. Ég þekkti svona karla þegar ég var krakki. Gunnar var líkt og ferskur andblær inn í innantóma umræðu samtímans. Ég er orðinn leiður á yfirborðinu. Leiður á glanstímaritunum, leiður á öllu léttmetinu í bókum, blöðum og fjölmiðlum. Efni þessara miðla vekja ekki neinn áhuga lengur. Þess vegna fékk ég þá hugmynd að sam- talsbók um heimspeki, listir, stjórnmál og önnur efni, sett fram á alþýðumáli, gæti höfðað til fjöld- ans. Við megum heldur ekki gleyma því að Gunnar er íslending- ur. Hann er sprottinn upp úr ís- lenskum jarðvegi; maður með ís- lenska sýn en þó alþjóðlega. Hans Kristján segir að útgefend- ur hafi hafnað bókinni um Gunnar Dal. - Ég gekk milli útgefenda með þessa hugmynd. Ég hafði gert beinagrind að bókinni sem ég sýndi forleggjurum en þeir höfnuðu henni allir. Sögðu sem svo: „Þetta er ágætt hjá þér, Hans minn, ogþio eruð eflaust bestu menn, en þú verður að gera þér grein fyrir því að svona oók selst ékki.“ Loks sýndi Friðrik í Almenna bókafélag- inu hugmynd minni áhuga. Hann skaut á, að bókin gæti selst í 1500 til 2000 eintökum sem þætti mjög gott fyrir svona bók. Og sennilega var þetta rétt hjá honum. Ef bókin hefði verið gefin út af forlagi þá hefði hún ekki selst í stærra upp- lagi. Vegna þess að venjulegur út- gefandi hefði aldrei gefið bókina út eins og ég vildi hafa hana. Við Frið- rik náðum ekki samningum og það varð úr að ég gaf bókina út sjálfur. Hans Kristján kveikir sér í sígar- ettu og heldur áfram: - Ef þú þekkir markað — og ég hef farið í gegnum markaðsmál áð- ur — þá veistu að hvert smáatriði verður að vera í lagi: Pappírinn, kápan, leturgerðin, og svo framveg- is. Það má ekkert særa lesandann þegar hann heldur á bókinni. Ef forlag hefði gefið út bókina, hefðu öll þessi máf verið sett í nefnd og nefndin hefði skilað meirihluta- ályktun. Sú niðurstaða hefði aldrei samræmst mínum hugmyndum. Hvaða útgáfufélag hefði samþykkt að hafa bókina upp á tæpar 500 síð- ur?! Og hvaða útgáfufyrirtæki hefði samþykkt að hafa 202 kafla sem all- ir byrjuðu efst á síðu líkt og ljóð?! Forleggjari hefði byrjað á því að henda út 200 síðum og þjappað síðan bókinni saman í tíu kafla. Þess vegna vildi ég ráða bókinni sjálfur. En hvað var það sem heillaði Hans Kristján í fari Gunnars Dal? Fæst- um hefði dottið í hug að Gunnar væri metsöluefni, þótt hann væri þekktur af góðu einu. - Það var húmanistinn, mann- vinurinn sem ég hreifst mest af, svarar Hans Kristján þegar í stað. Hann getur lyft sér yfir dægurmála- þrasið en samt hellt beint niður í það. Gunnar er jafnframt fyrirlesari og fræðari af Guðs náð. Flestir sem fjalla um heimspekileg efni eru að koma sér fyrir í háskólaumhverfi og skrifa hver fyrir annan án þess að reyna að ná til fólksins. Ég fann hve mörgum gömlum nemendum z o o 0: < o o z ö z Gunnars þykir vænt um hann. Hann hafði gefið þeim fallegar gjaf- ir og vakið þá til umhugsunar; leyft þeim að spyrja spurninga um líf og dauða, dulspeki og hvaðeina. Gunnar er maður sem fer þvert á allar stofnanir samfélagsins. Hann er trúaður en samt veit kirkjan ekkert hvað hún á að gera við hann. Hann er jafn- aðarmaður án þess að hyllast flokksræði og svo framvegis. Kannski er það skemmtilegast við Gunnar að hann er enn að stækka: Önnur bók um hann yrði allt öðru- vísi. Hann er kominn á allt annað plan. Gunnar Dal fékk Davíðspennann í síðustu viku fyrir bókina. Hvað finnst skrásetjaranum um það að viðmælandinn fékk viðurkenningu en ekki sá sem söguna ritaði? - Mjög sáttur við það, segir Hans Kristján. Mjög sáttur og ánægður. Bókin er hugsun Gunnars og hans texti í raun. Auk þess sem Davíðs- penninn er ákveðin viðurkenning íyrir lífsstarf Gunnars. Síðdegissólin flæðir skyndilega inn um gluggana, fellur í fang Hans Kristjáns og blindar hann. Hann rís á fætur og sest niður í annan stól. - Um leið og ég tala um Gunnar, birtist sólin, segir hann hlæjandi. Við tölum áfram um bókina „Að elska er að lifa“ og Hans segir: - Kannski er þetta fyrsta bókin af mörgum álíka. Útgefendur vakna kannski nú og velja viðmælendur upp á nýtt. Tími leikaranna og söngvaranna er kannski á undan- haldi. Lesendur hafa sannað um þessi jól að þá þyrstir í innihald í bókum. Við finnum öll fýrir þörf að leita svara við ákveðnum spurn- ingum. Samfélagið er allt í mikilli gerjun og leitár svara. Það er tæpast tilviljun að umræður um heim- spekileg efni selji bók í 6200 eintök- um. Varð ekki Hans Kristján ríkur á slíkri sölu? - Nei, segir hann ákveðið. Þessi bók var mjög dýr í framleiðslu. Ég þakka bara Guði fyrir að sitja ekki með milljónir í skuldum. Ég skil ekki hvernig bókaforlög standa undir sér. Ég var þó bara einn en hvernig er hægt að reka fyrirtæki með stóra yfirbyggingu sem gefur út bækur árum saman sem ná að- eins brot af þessari sölu á bókinni minni? Nú drepur Hans Kristján í sígar- ettunni og verður einbeittur á svip. - Einu sem ég vil koma að: Óheil- indi bókaforlaga gagnvart almenn- ingi. Bókin hefur hingað til verið helgur hlutur í hugum Islendinga. Hornsteinn menningar þeirra. Bókin hefur verið galdur. í raun er íslensk bókaútgáfa stórmerkilegt menningarfýrirbæri og markaður- inn stórkostlegur; rúmlega 400 titl- ar koma út fyrir hver jól. Þetta ger- ist ekki í öðrum smáríkjum heims. Þetta gerist ekki á Möltu og ekki á Kýpur. Og mitt í þessum stór- merkilega menningarmarkaði fá kaupendur í íslensku samfélagi aldrei réttar upplýsingar um sölu bóka. Það er spilað með tölur, það eru viðhöfð alls konar trix og logið fram og aftur. Það er engin stofnun eða eftirlitsaðili á Islandi sem getur upplýst íslenska bókakaupenaur hver salan á einstökum bókum er í raun og veru fyrir jólin. DV gefur út sinn metsölulista yfir 10 bækur sem Bónus hefur nú tekið upp og selur eftir. Sala í Bón- us skiptir gífurlega miklu máli. Sjálfur seldi ég á sjöunda hundrað eintök bara í Bónus fyrir jólin. DV- listinn er afar ófullkominn að mínu mati. Upp úr þessu er svo framreiddur metsölulisti sem mót- ar alla bókasölu síðustu vikur og daga fýrir jól! Það hafa ennfremur verið lagðar fram upplýsingar í fjöl- miðlum hvað hvert forlag hefur selt af bókum. Þessar upplýsingar koma beint frá bókaforlögunum sjálfum. Það er ekkert að marka þessar töl- ur. Því í ósköpunum er ekki hægt að fá réttar upplýsingar um þessi mál frá óhlutdrægum aðila eða stofnun? Þessi lygi er hluti af þeirri skýringu hvers vegna bókasala fer minnkandi. Lygin kemur alltaf í hausinn á fólki fyrr eða síðar. Og Hans Kristján kveikir sér í nýrri sígarettu. Eg spyr Hans Kristján hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur á nýju ári. - Ég veit ekki hvað ég geri, segir hann. Fæst eitthvað við sjónvarps- þáttagerð. Það er svona sport hjá mér, sérstaklega ef ég fæ skemmti- legar og frumlegar hugmyndir. Ég er reyndar rétt að standa upp úr jólabókavertíðinni. Ég var eiginlega rúmfastur í hálfan mánuð á eftir. Þetta var eins og stöð 2 í gamla daga. Og talandi um stöð 2: Hvernig finnst stofanda sjónvarpsstöðvar- innar þetta barn sitt hafa staðið sig? - Mér finnst aðallega gaman að þetta barn skuli vera til, segir Hans Kristján hlæjandi. I upphafi sögðu flestir að stöðin væri rugl og færi fljótlega á hausinn. Maður fékk mest að heyra dauðadóma og skít- kast, líka frá áhrifamönnum og fjölmiðlafólki. Lái þeim hver sem vill. Það var nánast útilokað að gera svona. Við vorum að fara út á markað sem við þekktum hvorki haus né sporð á. Ég þekkti reyndar ekki heldur neitt til bókaútgáfu þegar ég réðst í að gefa sjálfur út bókina okkar Gunnars. En það sem skiptir máli er að taka neistann og hlaupa með hann alla leið á enda uns hann verður að miklu báli. Þannig var það með Stöð 2. Svo urðum við undir og misstum meirihlutann og fórum frá stöð- inni. Þá kom fólk til manns í hrönnum og sagði: „Þið klúðruðuð þessu!“ En það var alrangt. Við unnum stórsigur: Stöðin lifði! Bálið hafði verið tendrað. Þetta er nefni- lega boðhlaup þar sem einn tekur við kyndlinum úr hendi annars. Við hófum ævintýrið en aðrir tóku við þegar við vorum komnir í þrot og gerðu það betur en við. Hvað er rangt við það? Aðalatriðið var að frjáls og sjálfstæð sjónvarpsstöð sæi dagsins ljós. Það var nauðsynlegt fyrir íslenskt samfélag. Við skulum ekki gleyma að árið 1986, þegar við byrjuðum með Stöð 2, sendi Ríkis- sjónvarpið út sex daga vikunnar. Og nokkru áður var júlí sjónvarps- laus mánuður. Vill einhver þá tíma aftur? Ég vildi ekki lifa þannig í dag. Ef Stöð 2 hefði ekki komið til, hefðu gervihnattastöðvar miklu sterkari stöðu á íslandi í dag. Vissu- lega er erlent efni í Stöð 2. En það er valið af íslendingum fyrir Islend- inga. Það er textað fýrir fullorðna og hljóðsett fýrir börn. Aðalgagnið af Stöð 2 hefur alltaf verið áhrif stöðvarinnar á Ríkissjónvarpið. Ríkissjónvarpið var neytt í sam- keppni sem aftur styrkti það inn- byrðis jafnt sem út á við. Og lands- menn fengu betra og fjölbreyttara sjónvarp. Var Stöð 2 kannski það veiga- mesta sem Hans Kristján hefur gert fyrir íslenskt samfélag að hans eigin mati? - Það var alla vega það fyrirferð- armesta, segir Hans Kristján og brosir tvíræðu brosi sínu. ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.