Helgarpósturinn - 26.01.1995, Blaðsíða 36
36
MORGUNPÓSTURINN LÍFIÐ EFTIR VINNU
FÍMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
iBorðapantanir í S. 552 3030 og 551 7759|
I_________________________________________I
„Hæ strákar. Við erum tvœr eld-
hressar á lausu 20 og 22 ára og
óskum eftir að kynnast karl-
mönnum á aldrinum 24 til 30
ára. Áhugamál okkar eru
djamm og tjútt. Efþið hafið
áhuga ýtiðþá á 1, munið 100
prósent trúnaður. “
Það er beðið eftir
éS&Veisluþjónusta Naustsins
Eigum nokkur kvöld laus
í febrúar fyrir árshátíðir
og þorrablöt.
il öú LJjr' j j J íJ í; iJ .fj 6 'ó
Uppl í S. 552 3030 og 551 7759
Grænmetisskyndibiti á Skólavörðustí
Tvær konur, Sólveig Eiríksdóttir
og Hjördís Gísladóttir, ætla innan
fáeinna vikna að opna svokallaðan
grænmetisréttaskyndibitastað,
fyrstan sinnar tegundar hér á landi.
Veitingastaðurinn verður til húsa í
sextíu fermetrum á Skólavörðustíg
8, nánar tiltekið á horni Skólavörðu-
stígs og Bergstaðastrætis. Verður
þetta eini skyndibitastaðurinn á ís-
land^og^ótt^íðarverðijeitaðj^^ai^
sem hægt verður að snæða mat
sem er algerlega laus við sykur, ger
og mjólk í fæðunni. En nokkuð hef-
ur færst í aukana að fólk aðhyllist
þessa tegund matargerðarlistar,
einkum þeir sem telja sig haldnir
fæðuóþoli, eða svokallaðri sveppa-
sýkingu. Bæði Sólveig og Hjördís
hafa starfað lengi hjá Náttúrulækn-
ingafélagi íslands og haldið þar fjöl-
mörcjjTámskeið enjTættufyrii^^^
nokkru. Ástæðan var
ekki bara sú að í bí-
gerð væri að opna eig- j
in veitingastað heldur
voru þær, að eigin
sögn, orðnar leiðar á
rokki Náttúrulækn-
ingafélagsins um
stefnu í matargerðar-
list. En eitt árið ku það
JiafajDoðaðjaðencJnr^
ætti að drekka mjólk en það
næsta að mjólk væri í lagi. Á
nýja veitingastaðnum verður
ekki bara boðið upp á græn-
metisfæðu heldur einnig seldir
svokallaðir hristingar, eða
shake án mjólkur, gulrótarsafi
og jafnframt hægt að kaupa
kjúklingabaunafars tilbúið til
matargerðar...
Só[veicjJ|iríksdóttji^^
Ingvi Steinar O 21 árs O Barþjónn og barnapía
Ég elska...
Rúmið
Éghata...
Biðraðir
Ég elska...
Logandi kerti
Éghata...
Snjó
Ég elska...
Vinnurnar
Éghata...
Þurrpumpur
Botnaðu þessar setningar
Ég færi í meðferð... aldrei nokk-
urn tíma.
Munurinn á dópdíler og bar-
þjóni... mér dettur í hug Sal-
vador Dali þegar hann sagði:
„The.only difference bet-
ween me and a mad man
is that I am not mad.
Uppáhaldsdrykkur-
inn minn er... bjór.
Gamli há-
degisbarinn <
Borginni opnaði
aftur um áramótin
undir heitinu Skugga-
barinn og Ingvi Steinar sér
um að sörvera drykkina. Marg-
ir kannast við Ingva Steinar
úr Ingófskaffi sem einn af snarpari
barþjónum bæjarins en þegar hann
ekki að passa bytturnar á barnum passar
hann börn á barnaheimilinu Tjarnarborg.
Skuggabarinn sækir alls konar fólk á öllum aldri en
margir gesta hans hafa verið áberandi í skemmtanalífi
borgarinnar undanfarin ár og mikið úti á lífinu. Andrúmsloft-
ið er mikið breytt frá því sem áður var og hætt er við að forn-
frægar fyllibyttur sem reka þar inn nefið haldi að þær hafi villst inn
í himnaríki. „Það fer vel saman að vinna á bar og á barnaheimili
því fólk á það til að detta í barndóm þegar það dettur í það,“ segir
Ingvi Steinar. „Bæði störfin felast í mannlegum samskiptum og sömu
aðferðirnar virka mikið til á báðum stöðunum. Ég er að vinna alla virka
daga á barnaheimilinu og fjögur kvöld í viku á Skuggabarnum þannig að það
má kannski segja að ég sé vinnualki og ég hef engan tíma til að skemmta mér.
Frítímanum eyði ég aðallega á tveimur stöðum, heima hjá mér og á Kaffibarnum,
það eru svona mínir staðir. Ég er meira að segja hættur að hafa tíma til að fara út að
borða þótt ég hafi gaman að því, en áður borðaði ég oft á Borginni. Það breytist örugglega
núna eftir að ég fór að vinna þar.“ Það er engin leið að draga djúsí sögur af Skuggabarnum upp úr
Ingva. „Hversu korní sem það hljómar, þá verð ég að gæta trúnaðar gagnvart viðskiptavinum
mínum. Það kemur eitt og annað upp á þegar menn eru í annarlegu ástandi og það er ýmislegt sem
ég hef orðið vitni að hjá frammáfólki í þjóðfélaginu á Skuggabarnum en ég er hræddur um að það þoli
ekki að vera prentað. Fylleríisröfl getur verið rosalega skemmtilegt, það fer allt eftir því hvernig maður
höndlar það.“ Ertu mikill djúsbolti sjálfur? „Ég var það og hef rosalega gaman af að fá mér í glas þegar færi
gefst en því miður er lítill tími til slíks núna. Regla númer eitt hjá mér er að drekka ekki í vinnunni þótt það sé
fullt af nammi í kringum mig. Vinsælasti drykkurinn hjá okkur er Skuggaskot sem er hálfgerður konfektmoli en
uppskriftin sem er eftir Steina á Pálmabarnum er atvinnuleyndarmál. Það má ekki afhjúpa leyndina yfir þessum
galdradrykk þvi þa fer duluðin sem fólk sækist eftir í vaskinn."
i ykkur í Naustkjállaranum i
I S. 552 3030 og 551 7760 |
„Hœ strákar. Við erum tvcer eld-
hressar á lausu 20 og22 ára og
óskum eftir að kynnast karl-
mönnum á aldrinum 24 til30
ára. Áhugamál okkar eru
djamm og tjútt. Efþið hafið
áhuga ýtið þá á 1, munið 100
prósent trúnaður."
Þ a ð e r b e ðið e ft i r þ é r á S t e fn u m ótal í 11 u u 11 i
OLaus og liðugur O Að leika sér og hafa nmnEW að þessu