Helgarpósturinn - 26.01.1995, Síða 39
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN LÍFIÐ EFTIR VINNU
39
» >
linu
Plötusnúðar í Reykjavík komu sam-
an á Tunglinu í gærkvöld og sneru
diskum af miklum móð til styrktar
Súðvíkingum. „Þetta eru erfiðar
spurningar," sagði forsprakkinn
Kiddi Bigfoot þegar hann var innt-
ur eftir því hvort plötusnúðar væru
ekki aðalgaurarnir í bænum og
hvort þeir svömluðu ekki í kvenfólki.
„Jú, jú, plötusnúðar eru vinsælir og
sumir eru villtir. Pað er meira að
Aðal D.J-arnir í borginni voru raættir í gær til að
undirbúa kvöldið.
«1,
w
segja partur af ímynd það væri aldrei að vita nema þetta
sumra og þeir sem eru yrði til þess. „Það er alltaf gaman að
á lausu eiga sjálfsagt koma saman. Við eigum allir við
möguleika í ástarlífinu. svipuð vandamál að stríða og höf-
En stór hluti þessa um sömu hagsmuna að gæta.“ Og í
hóps er búinn að finna hópnum má meðal annarra finna
stóru ástina." Kiddi Tomma, Margeir, Styrmir og
sagði einnig að það Nonna, Áka, Nökkva, Gunna
hefði ekki gengið vel T.F., Grétar G., Frímann, Agga,
að halda samtökum Þossa, Arnold, Róbert, Hólmar,
plötusnúða vakandi en Árna og Kidda B.F.
Leifur, Inga og Guðrún Svava
Svavarsdóttir
en hún sér
t* um búninga,
Í» leikmyndog
. brúður sem
|g|,o koma mikið
HP viðsögu.
Barnasöngleikur byggður á verkum Jónasar
Hallgrímssonar frumsýndur um helgina
Hefðarleggur og
skel í hundskjafti
Kaffileikhúsið má hiklaust til-
nefna starfsamasta leikhúsið í borg-
inni — sé miðað við verkefnafjöld.
Nú urn helgina, nánar tiltekið á
sunnudag í Hlaðvarpanum, verður
frumsýnt 7. verkefni þessa leikárs.
Þetta er barnaleikrit og söngvaspil
sem heitir „Leggur og skel“ og er
eftir þau Ingu Bjarnason, sem
jafnframt er leikstjóri, og Leif Þór-
arinsson. Það byggir á ævintýri
um legginn og skelina eftir Jónas
Hallgrímsson sem er svo aftur
staðfærsla hans á ævintýri eftir
H.C. Andersen hinn danska.
Fjöldi ljóða eftir þennan höfuð-
snilling íslenskrar ljóðlistar er ofinn
inn í leikinn við ný lög eftir Leif.
„Leggurinn og skelin lenda saman
og leggurinn verður ástfanginn af
skelinni sem snýr upp á sig þegar
leggurinn biður hennar,“ segir Leif-
ur þegar hann var inntur eftir efni
leiksins. „Svo lendir skelin í hunds-
kjafti." Örlög leggsins eru önnur en
hann er gerður að þráðarlegg og
fær bólu í rassinn. „Hann verður
ansi fínn og endar sem hefðarlegg-
ur. Þetta er ævintýri og mest hugs-
að út frá því að skapa einhver tengsl
við þennan skemmtilega og yndis-
lega litteratúr — kveðskap Jónasar
Hallgrímssonar — kannski til að
gera ljóðin sem börnin læra í skóla-
ijóðunum meira lifandi.“
-JBG
.J.-messa í Tunqlinu
Smekkleysumennirnir Einar Orn
og Þór Eldon liggja ekki á melt-
unni eftir jólavertíðina. Peir hafa
verið í sambandi við pönkrapp-
hljómsveitina Beastie Boys sem
hafa lýst yfir áhuga á að koma til
landsins og halda tónleika. Þetta
eru tíðindi fyrir þá sem fylgjast
með því nýjasta í tónlistinni því
Beastie Boys eru með þeim heit-
ari nú um mundir. Það er nánast
frágengið að þeir komi og er þá
miðað við 17.
tii 18. mars
en þar er
að finna
glufu í
a n n a rs
þéttriðinni
bókunar-
b ó k
hljómsveitar-
innar...
Gretar Reynisson opnar sýningu í Nýlista-
safninu á laugardag Hefur mótað verk
sín
Gretar Reynisson segir að það séu göt
á öllum sínum verkum. „Skilurðu,
„Það sem fólk þekkir eftir mig voru þessar svörtu
blýantssporöskjur sem hafa haft þrívíddartilhneigingu,
en nú er ég bara að móta þau endanlega í þrívídd þar
sem sporöskjurnar með hringiðuformi hafa í sumum
tilfellum skapað svífandi form. Nú er ég farinn að búa
til massa sem ég fer í gegnum, ég saga mig í gegnum
margar krossviðsplötur sem ég hef límt saman,“ sagði
Gretar Reynisson myndlistarmaður þegar hann var
að gera tilraun til þess að útskýra hvers konar skúlptúr-
verk og teikningar hann ætlar að sýna í Nýlistasafninu
frá og með laugardeginum. En þess má geta að Gretar,
sem hefur haldið á annan tug einkasýninga hér á landi,
hefur að auki starfað mikið við leikhús að leikmynda-
gerð.
/ fréttatilkynningunni frá þér segir að göt séu allsráð-
andi, „hvad er detfor noget?“
„Það eru göt á öllum mínum verkum. Ég er til dæm-
is með blýantsteikningar og legg yfir þær transparent
pappír. Á þeim eru göt þannig að maður sér bara hluta
af teikningunni. Skilurðu, þetta er pæling urn einangr-
un. Ég er annars vegar með sporöskjuna í tvívíðum fleti
og hins vegar þar sem ég fer hreinlega í gegn,“ sagði
Gretar, en bætti því við sem er alkunna að lítið sé hægt
að tjá sig með þessum hætti um myndlist. Best sé
hreinlega að koma og sjá, enda þegar kemur að mynd-
list er sjón sögu ríkari.GK
þetta er pæling um einangrun
Fimmtudagur
10.30 Alþingi
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós (72)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 Fagri-Blakkur (22:26)
19.00 Él Popp
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.40 Syrpan
21.10 Pabbi
Áströlsk/frönsk bíómynd frá 1989
um roskinn mann og fjölskyldu
hans í Ástralíu. Fjölskyldan verður
fyrir miklu áfalli þegar gamli mað-
urinn er sakaður um að hafa verið
einn af böðlum nasista. I aðalhlut-
verki er stórleikarinn Max von
Sydov.
23.00 Ellefufréttir
23.15 Þingsjá
23.35 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
16.40 Þingsjá
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós (73)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Tommi og Jenni
18.25 Úr ríki náttúrunnar
19.00 Fjör á fjölbraut (16:26)
20.00 Fréttir
20.35 Veður
20.40 Kastljós
21.10 Ráðgátur (7:24)
Atriði í myndinni vekja óhug barna
22.05 Myndbanda-annáll 1994
Athyglisverðustu tónlistarmynd-
böndum liðins árs veitt verðlaun.
23.05 Skammgóður vermir
Um hafnaboltaleikara sem orðinn
er til trafala í liði sínu enda rúmum
20 árum eldri en aðrir liðsmenn. Þá
kemur til ungur og efnilegur spilari
sem vingast við þann gamla.
00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Laugardagur
09.00 Morgunsjónvarp bamanna
Morgunleikfimi með Magga Sche-
ving og Einar Áskell
10.55 Hlé
13.00 Á tali hjá Hemma Gunn
14.00 Kastljós
14.25 Syrpan
14.55 Enska knattspyrnan
16.50 Ólympíuhreyfingin f 100 ár
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Einu sinni var... (15:26)
18.25 Ferðaleiðir (3:13)
19.00 Strandverðir
Pamela Anderson fáklædd
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Lottó
20.40 Hasar á heimavelli (20:22)
21.10 Gulldrengimir
Breskur húmor frá 1940 um smá-
bófa sem hyggjast ræna gullforða
ríkis.
22.50 Silkileiðin
Kínversk/japönsk bíómynd frá
1992 sem gerist á 11. öld þegar
róstusamt var í Kína. Ungur náms-
maður gerist málaliði í her Lis
krónprins og verður ástfanginn af
prinsessu sem tekin er höndum.
00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
SUNNUDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.20 Hlé
14.20 Listaalmanakið (1:12)
14.30 íslandsmót í atskák
16.30 Ótrúlegt en satt (12:13)
17.00 Ljósbrot
17.40 Hugvekja
Sigurður A. Magnússon flytur
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 SPK
19.00 Borgarlff (4:10)
19.25 Enga hálfvelgju (2:12)
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.40 Kristmann
Heimildamynd um Kristmann Guð-
mundsson, einhvern umdeildasta
rithöfund á Islandi fyrr og síðar.
Um hann spunnust ótrúlegar sögur
sem lifðu með þjóðinni um árabil.
21.25 Stöllur (2:8)
22.15 Helgarsportið
22.40 Glerhúsið
Ný þýsk spenna um eiginkonu ír-
ansks læknis í Leipzig sem þola
má hótanir dularfulls manns sem
vill ekki sjá neina útlendinga í
kringum sig.
00.05 Útvarpsfréttir f dagskrárlok
FlMMTUDAGUR
17.05 Nágrannar
17.30 Með Afa (e)
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.15 Sjónarmið
20.45 Dr Quinn (13.24)
21.35 Seinfeld (8:21)
22.05 Jack Frost
Ekkert Ace-Ventura ævintýri þótt
róttækir dýraverndunarsinnar reyni
allt til þess að spilla fyrir Denton-
veiðunum. Margslunginn saka-
málamynd
23.50 Andlit morðingjans
Mafíumynd í B-flokki
01.30 Sítrónusystur
Diana Keaton, Elliot Gould og Car-
ol Kane í mynd um þrjár æskuvin-
konur sem syngja saman einu
sinni í viku í litlum klúbbi. Ekkert
ofbeldi, bara Ijúfmennska
FÖSTUDAGUR
16.00 Popp og kók
17.05 Nágrannar
17.30 Myrkfælnu draugarnir
17.45 Ási einkaspæjari
18.15 NBA tilþrif
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.45 Sea Quest
21.35 Benjamin í hernum
Goldie Hawn sem verið hefur leik-
ari mánaðarins kvödd á Stöð 2
með þessari mynd. Maltin gefur
Goldie þrjár stjörnur fyrir frammi-
stöðu sína í þessari mynd.
23.15 Svikráð
Goldie Hawn í spennumynd
01.00 Saga Olivers North
Iran-kontrasöluhneykslið frá '85
02.55 Ófreskjan
Unglingar stela líki sem fer að
narta í fólk. Oj, en samt ku þetta
vera lauflétt gamanmynd
Laugardagur
09.00 Með afa
10.15 Benjamin
10.45 Ævintýri úr ýmsum áttum
11.10 Svalur og Valur
11.35 Smælingjarnir
12.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.25 Lffið er list
12.50 Lognið á undan stormin-
um(e)
14.35 Úrvalsdeildin
15.00 Marco Polo
Þrjúbíó fyrir börnin
16.00 Bikarkeppni KKÍ
17.45 Popp og kók
18.40 NBA-molar
19.19 19:19
20.00 Fyndnar fjölskyldumyndir
20.30 Bingó-Lottó
21.40 f kvennaklandri
Mynd með kærustuparinu Alex
Baldvin og Kim Basinger. Þau sæt
en myndin er ekki upp á marga
fiska
23.35 Góð lögga
Michael Keaton leikur löggu á lús-
arlaunum sem átt bágt með að láta
enda ná saman
01.20 Ástarbraut
Kennslubók í framhjáhaldi
01.45 Blóðhefnd
Örlagaþrungin ástarsaga um mann
sem rekinn er áfram á hefndinni.
Julie Cristie og Mary Elizabeth
Mastranonio í aðalhlutverkum
03.30 Göngin
Spennutryllir um tvö blaðamenn,
hljómar vel
SUNNUDAGUR
09.00 Kolli káti
09.25 í barnalandi
09.40 Köttur úti f mýri
10.10 Sögur úr Andabæ
10.35 Ferðalangar á furðuslóðum
11.00 Brakúla greifi
11.30 Tidbinbilla
12.00 Á slaginu
13.00 iþróttir á sunnudegi
16.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
17.00 Húsið á sléttunni
18.00 f sviðsljósinu
18.45 Mörk dagsins
19.19 19:19
20.00 Lagakrókar (7:22)
20.50 Gjald ástarinnar
Anna nokkur Dunlap lendur í örm-
um þróttmikils listamanns sem
vekur hana til lífs á ný. Diane Kea-
ton og Liam Neeson leika parið
22.35 60 mfnútur
23.05 Úrslitaleikur ameríska fót-
boltans
03.00 Dagskrárlok