Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 2

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 2
2 FlMIVrnjDAGUR 7. DESEMBER 1995 HP spyr Var blygðunarkennd þinni misboðið með þuí uppátæki að gefa allsnöktu fólki síma? Bima Jónsdóttir hjúkmn- arfræðingur: „Nei. Alls ekki. Alls ekki.“ Hlynur Pálsson menntaskólanemi: „Vinur minn var einn af þessum nöktu og mér var alls ekki misboðið. Þvert á móti vildi ég sjá meira af svo góðu.“ deildarstjóri: „Já. Blygðunarkennd minni var mjög misboðið. Þarna var alltof langt gengið. Allt- of langt.“ Hilmar Jónsson & Krist- ófer Róbertsson mennta- skólanemar: „Nei. Ertu frá þér, maður? Það var helst að það vant- aði þarna eitthvert almenni- legt kvenfólk innan um!" Kári Kristinsson næturvörður. „Nei. Langt því frá. Hinsveg- ar vorkenni ég þessúm aumingja drengjum fyrir að hafa lagst svona lágt fyrir einn símaræfil. Ég keypti rninn!" Pauló José, fjöllistamaður og barþjónn: „Nei, henni var engan veg- inn misboðið. Hugsanlega er veðurfarið þó heldur hráslagalegt hér fyrir svona athæíi." Hafsteinn Hafsteinsson og Hrafnliildur Smáradóttir háskólanemar: „Nei, fráleitt. Þetta særði ekki blygðunarkennd okkar." Fílefldir laganna verðir mættu í Verslun Antons Skúlasonar í Austurveri í vikunni og gerðu skýrslu um það sem kallað hefur veríð „hópblygðunarbrot". Verslunareig- andinn gaf þeim sem mættu naktir á svæðið GSM-síma. Svona var ástandið fýrir utan Þjóðarbókhlöðuna skömmu fyrir klukkan níu í gærmorgun (miðvikudag). Örstuttu síðar þustu nemendur til sæta sinna með miklum látum. Vinsælustu sætin eru einsmannsborðin sem standa útvið vegg þegar inní lessalinn er komið. Samkeppnin um þau er gríðarlega hörð. „Nákvæmlega sami fílingur og í þrjúbíó í den“ - segir háskólastúdent að ríkir nákvæmlega sami fílingur þarna og þegar maður fór í þrjúbíó í den. Þetta er eiginlega frábær stemmning og loftið er rafmagnað af sam- keppni. Menn hópast saman í einn hnapp fyrir utan aðaldyrnar og þegar opnað er klukkan níu stormar liðið með miklum lát- um uppí lessalinn. Þeir gallhörðustu merkja sér borðin vandlega og eru mættir löngu fyrir níu; eins gott fyrir ókunnuga að forð- ast þau borð. Eg er nú ekki einn af þessum vöskustu, en hef þó verið svo heppinn hing- aðtil að ná alltaf í sæti,“ sagði háskólastúd- ent í samtali við Helgarpóstirm í gærkvöldi. Hann á þarna við sérstakt vandamál sem skapast við Þjóðarbókhlöðuna kringum prófatörn nemenda um jól og á vorin þegar þeir flykkjast að til að stúdera fræðin. Fjölmennastir í Þjóðarbókhlöðunni á þessum tíma sem öðrum eru háskólanem- ar, en menntskælingar láta þó einnig til sín taka. Annar háskólanemi sagðist þannig muna eftir slagsmálum við menntskælinga í fyrra og á endanum gengu yfirboðarar Þjóð- arbókhlöðunnar svo langt að banna nem- endum innan við sautján ára aldur að stúd- era í sjálfri lærdómshöll námsmanna. Sú regla oíli miklum úlfaþyt og mun eftir því sem næst verður komist ekki viðhöfð nú. „Æi, þessar gelgjur voru óttalega hvimleið- ar og mikill hávaði í þeim,“ sagði þessi há- skólastúdent. „Það væri óskandi að við fengjum einir að sitja að fínheitunum, en því er nú því miður ekki að heilsa." - shh * UMFl og Kvenna- athvarfið fyrir Héraðsdómi Það þykir stundum tíðindum sæta þegar athyglisverðir aðilar kljást fyrir dómstól- um — ef þannig má að orði komast — og ekki síst ef það eru samtök á borð við Ung- mennafélag Islands og Samtök um kvennaat- hvarf. En sú er einmitt raunin fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur um þessar mundir. Mála- vextir eru þeir að Samtök um kvennaathvarf keyptu fyrir nokkru stóra og mikla fasteign af UMFÍ. Eítir að kaupin áttu sér stað komu í ljós deildar meiningar milli aðilanna um ásigkomulag hússins; meðal annars yfirlýs- ingar í söluyfiriiti viðkomandi fasteignasala um ástand pípu- og raflagna. Reyndar voru lögmenn samtakanna tvennra komnir lang- leiðina með að ná sátt um málið, en þar sem um er að ræða félagasamtök var talið heppi- legra á endanum að leita úrskurðar dóm- stóla — svona upp á seinni tíma að gera. Samkvæmt heimildum Helgarpóstsins snýst ágreiningurinn um litlar 700 þúsund krónur • og verður vafalaust leystur með eins litlum hávaða og mögulegt er. Björn að baki Kára Notendur Internetsins fletta oft að gamni sínu upp á heimasíðu Bjöms Bjarna- sonar menntamálaráðherra. Þar kemur Björn á framfæri ýmsislegum erindum sem hann á við land og þjóð, en væru kannski ekki við hæfi í ræðustóli á Alþingi eða í fjöi- miðlum. Nú er Björn, eins og aðrir lands- menn, með hugann við jólabækurnar og á heimasíðunni þessa dagana vekur hann at- hygli á tveimur bókum sem honum þykja einkar forvitnilegar. Það er annars vegar Is- lenskar tilvitnanir eftir Hannes Hólmstein Gissurarson og hins vegar Milli vonar og ótta eftir Þór Whitehead. í þessa áttina hneigist smekkur Björns semsagt þessi jól- in, og það hefur ábyggilega ekki neitt með það að gera að bæði Hannes og Þór eru trú- ir sjálfstæðismenn og samherjar Björns. Umrœðuefni vikunnar Séra Pálmi Matthíasson er enn ókrýnd- ur konungur þeirra sem langar í forseta- framboð en vilja ekki viðurkenna það. Það ógnaði honum enginn í skoðanakönnun DV nema sjálf frú Vigdís. Ótvíræðara getur það ekki verið. Tuttugu strákar stripluðu fyrir framan myndavélar til að fá ókeypis GSM-síma. Það var holl æfing. Þegar þeir þurfa að fara að borga GSM-reikningana munu þeir nefnilega ekki eiga bót fyrir rassinn á sér. Sólon Sigurðsson bankastjóri setti gott fordæmi þegar hann ákvað að sækja um eigin bankastjórastöðu þegar hún var auglýst. Þjóðin bíður spennt eftir niðurstöðunni. Gunnlaugur Ástgeirsson lamdi á nokkrum menntaskólastrákum fyrir að syngja lag öðruvísi en honum þóknast. Umrædd plata á eftir að verða klassík, þökk sé kellingunni Gunnlaugi. Lagið fer á bekk með Jón var krœfur karl og hraust- ur og Sigurður var sjómaður í flutningi Bubba Morthens. Davíð Þór stjómandi spurninga- keppninnar Nú líður að spurningakeppni framhaldsskóla og óhætt að segja að það ólgi og kraumi í menntastofnunum víðsvegar um land þess vegna. Lið frá skólunum hafa verið í æfinga- búðum frá því snemma í haust og strax upp úr áramótum hefst undankeppni í útvarpi. Eftir því sem HP kemst næst verður spyrill þar Sigurður G. Tómasson sem og undanfarin ár. Úrslitin verða í Sjónvarpi sem endranær og verður fyrsti þátturinn sendur út um miðjan febrúar. Undirbúningur er þeg- ar hafinn. Eins og kunnugt er Iét Stefán Jón Hafstein af störfum sem spyrill í fyrra, enda allumdeildur. Hann þótti helst til hortugur í garð um- bjóðenda sinna, hvort sem það var nú ástæðan eða ekki fyrir því að hann hætti. Arftaki hans var Ómar Ragnarsson, sá landsþekkti grínisti til fjölda ára pg landsbyggðarfréttamað- ur. Ómar þótti standa sig með prýði en áhöld voru um hvort hann væri fyllilega við skap menntskælinga: Hvort hagyrð- ingakvöld væru ekki meira fyr- ir hann. Hvað sem því líður hefur verið ákveðið að hann víki úr stóli spyrilsins en í hans stað hefur verið ráðinn Davíð Þór Jónsson, en hann, ásamt félaga sínum Steini Ármanni Magnússyni, hefur gert garð- inn frægan meðal mennta- skólanema, ýmist í Sjónvarpi sem og á skemmtikvöldum. |.. ■ ... Guðrún Helgadóttir, varaþingmaður og rithöf- undur. Bók hennar Ekkert að þakka er efst á lista yf- ir mest seldu bækurnar nú í upphafi bókavertíðar. Guðrún segir að sem bet- ur fer nenni þjóðin ennþá að lesa bækur sínar. Þetta er óþarfa lítillæti, eigin- lega hálfgert hæversku- grobb, sem rímar hreint ágætlega við titilinn „Ekk- ert að þakka", sem er eins og setning gripin beint úr munni stoltrar boldungs- húsfreyju á stórbýli um leið og hún ber hnallþór- urnar á borð. Hæversku- grobbið lætur vel í munni þess sem vel gerir. Þjóðin kann að meta gott grobb þegar það býðst. Ef ein- hver kann að spila á rétta strengi þjóðarsálarinnar þá er það Guðrún. Og slíka spilamennsku ber að lofa.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.