Helgarpósturinn - 07.12.1995, Síða 6

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995 Þessa dagana er Héraðsdómur Reykjavíkur vettvangur harkalegra deilna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og Friðberts Pálssonar fyrir hönd Há- skólabíós vegna meints samningsbrots bíósins, bakfærðra reikninga og dularfullra auglýsingasamninga. Stefán Hrafn Hagalín kynnti sér málavexti og ræddi við kunnuga. Olgerðin rukkar fyrir gosið en Friðbert neitar Olgerðin Egill Skalla- grímsson hefur Pepsi-um- boðið með höndum eftir að hafa keypt það frá Gosan og segir Háskólabíó skulda sér fyrir gosdrykkjavið- skipti. Bíóið gerir hinsvegar kröfu um að Ölgerðin greiði auglýsingareikn- inga sem þeir gosdrykkjafrömuðir kannast ekkert við. fjögurra mánaða uppsagnar- frestur þar áskilinn. Sam- kvæmt heimildum Helgar- pðstsins sagði Friðbert hins- vegar að þarna væri einhver misskilningur á ferðinni; hann hefði rétt á að kaupa vörurnar með fullum afslætti, en væri þaðan í frá afturámóti óbund- inn af einkasamningnum. Öl- Ölgerðin bakfærði afsláttinn á þeim forsendum að með því að rifta samningnum ánþess að virða uppsagnarfrest hefði Háskólabíó ógilt hann frá fyrsta degi og ætti þannig ekk- ert tilkall til afsláttar. Háskóla- bíó þverneitaði að greiða reikningana og þá stefndi Öl- gerðin bíóinu. Upphaflega fjárhæðin sem Ölgerðin krafði Háskólabíó um nam eitthvað á aðra milljón króna. Háskólabíó brást þannig við að stefna Ölgerðinni á móti og rukka fyrirtækið óvænt um tæplega 800 þúsund krónur vegna birtingar auglýsinga sem Ölgerðin hefði pantað. Samkvæmt heimildum blaðs- ins mun sá samningur að sögn Háskólabíósmanna vera á þá leið að Ölgerðin auglýsi fyrir um það bil 10% af veltu við- skiptanna hjá bíóinu. Magnús Scheving þolfimimeistarí: Óvænt orðinn hluti af deilum Öl- gerðarinnar og Háskólabíós eftir að hafa leikið í Pepsi-auglýsingu sem Pepsi í Bandaríkjunum bann- aði stranglega að yrði sýnd á ís- landi. Ölgerðin segir Háskólabíó hafa birt auglýsinguna án nokkurs leyfis. gerðarmenn segja Friðbert ekki geta tekið á sig öll fríð- indi samningsins ánþess að gegna skyldum hans einnig. Þess má geta í framhjáhlaupi að Háskólabíó neitar meðal annars að greiða umrædda reikninga þarsem búið sé að skrifa þá út og þarmeð sé við- skiptunum lokið. Því er Öl- gerðin ósammála. Ölgerðin þreytist á pofinu og stefnir Haskólabíoi Útaf þessu máli gengu ýmis bréf milli manna, en á endan- um þreyttist Ölgerðin á þófinu og bakfærði á Háskólabíó all- an afslátt sem bíóið hafði fengið í þá mánuði sem Öl- gerðin hafði skrifað út reikn- inga eftir að hafa keypt Gosan. Ojg Háskólabíó stefnir Olgeroinni á móti og rukkar Á umræddum reikningum var tilgreint hvaða auglýsingar hefðu birst og þegar Ölgerðar- menn skoðuðu þær sjálfir kom meðal annars í ljós að þarna var um að ræða gamlar auglýs- ingar frá Pepsi — auglýsingar með löngu úreltum firma- merkjum (lógóum) — og einn- ig auglýsingu sem Magnús Scheving þolfimimeistari hafði Ieikið í og Pepsi-fyrirtæk- ið í Bandaríkjunum stranglega bannað að væri birt. Ástæða þess er sú að Pepsi leyfir ekki gerð eða birtingu auglýsinga- efnis sem ekki kemur frá aðal- stöðvunum. Ölgerðarmenn segjast ekk- ert kannast við umræddan auglýsingasamning og fyrrver- andi starfsmenn Gosan segjast ekki hafa lagt bíóinu til efni í auglýsingar. Þess má að lokum geta að Helgarpósturinn reyndi að ná í Friðbert Pálsson vegna máls- ins, en hann var ekki viðlát- inn. Þegar spurt var um næstráðanda kom sá í sí- mann, en sagðist ekki kannast við málið. Og málið sýnist stál í stál. að borga - og stefnir Ölgerðinni óvænt á móti fyrir ógreidda auglýsingareikninga •• Friðbert Pálsson, forstjóri Há- skólabíós: Harðnertar að borga bakfærða reikninga sem Ölgerðin sendi honum vegna rneints samn- ingsrofs á uppsagnarfresti. Eftir að fimm ára samningur við Sanit- as/Gosan/Ölgerðina rann út gerði Friðbert samning við Vífilfell. gert nýjan einkasamning, en í þetta skiptið við Vífilfell. ÖI- gerðin skuli því hypja sig með allt sitt hafurtask útúr bíóinu því Vífilfell sé á Ieiðinni inn. Vert er að minna á að um- ræddur einkasamningur var undirritaður til fimm ára í janúar 1989 og rann því út í janúar 1994. Hinsvegar er uppi ágreiningur um tilskilinn uppsagnarfrest og þá al- mennu viðskiptahætti að aðil- ar sem staðið hafa lengi í við- skiptum hvor við annan gæti sanngirnissjónarmiða, for- gangs varðandi tilboð og ann- ars slíks. Ölgerðarmenn urðu í öllu falli heldur hvumsa við þessar kveðjur frá Háskólabíói og bentu á að samkvæmt samn- ingnum væri gagnkvæmur Olgerðin Egill Skallagríms- son rekur nú mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Háskólabíói þarsem Frið- bert Pálsson Háskólabíósfor- stjóri er í brennidepli. Þarna er um að ræða kröfu Ólgerðarinn- ar um greiðslu reikninga vegna meints samningsbrots Há- skólabíós og bíóið gerir gagn- kröfu á að Ölgerðin greiði fyrir birtingu auglýsinga sem Öl- gerðin kannast að vísu ekki við að hafa pantað. Málarekstur Ölgerðarinnar annast Ævar Guðmundsson héraðsdóms- lögmaður, en fyrir hönd Há- skólabíós kemur fram Sigurð- ur G. Guðjónsson hæstaréttar- lögmaður. Pepsi þvælist frá Sanitas og Gosan til Olgerðarinnar Málavextir eru þeir að Öl- gerðin keypti í ágústmánuði árið 1993 framleiðsluréttinn á Pepsi af Gosan, sem áður hafði keypt hann af Sanitas. Síðast- nefnda fyrirtækið hafði gert skriflegan einkasamning til fimm ára við Háskólabíó árið 1989 um að sitja þar eitt að gosdrykkjum og til þess bær- um tækjum og tólum. Sanitas hafði í því skyni lagt leiðslur og annað tengt gosdrykkjavið- skiptunum í bíóinu. Gegn þessum einkasamningi fékk Háskólabíó umtalsverðan af- slátt af gosdrykkjakaupum. Þegar Ölgerðin keypti síðan Gosan var ákveðið að yfirtaka alla dreifingarsamninga þess og virða að fullu þráttfyrir að hinn hái afsláttur til Háskóla- bíós stæði nokkuð í mönnum. Ölgerðin sendi í þessu skyni menn í öll fyrirtæki og til- kynnti að samningar Gosans yrðu virtir af fyrirtækinu og væru þar af leiðandi í fullu gildi. Samkvæmt heimildum Helgarpóstsins eru Háskóla- bíósmenn hinsvegar ekki al- veg á því að hafa meðtekið þessar upplýsingar. Friðbert skrifar bréf og minnir á samninginn Þarsem Ölgerðin var ekki strax í ágúst reiðubúin til að hefja framleiðslu á Pepsi í eig- in húsnæði eða tækjum gerði fyrirtækið tímabundinn samn- ing við Gosan um að fyrirtæk- ið framleiddi drykkinn um skeið fyrir Ölgerðina. í októb- er 1993 varð svo sú breyting að Ölgerðin hóf að skrifa út reikninga fyrir gosdrykkjavið- skiptum sem áður höfðu verið hjá Gosan, en framleiðslan var þar áfram. í febrúar 1994 hef- ur svo Ölgerðin loks fram- leiðslu á Pepsi í eigin húsnæði og tækjum. í lok desember 1993 skrifar Friðbert Pálsson Háskóla- bíósforstjóri síðan Ölgerðinni bréf, minnir á samninginn sem sé í fullu gildi og telur að af- sláttur hafi ekki verið rétt færður. Hann kveður Ölgerð- ina því verða að lækka reikn- inga sína til Háskólabíós vegna gosdrykkjaviðskipt- anna. Friðbert skrifar annað bréf og segir samninginn ur gildi Ölgerðarmenn hyggjast skoða málið, en í janúar 1994 kemur enn eitt bréfið frá Frið- berti og Háskólabíó þarsem tilkynnt er að bíóið hafi nú Líbönsk jól á Marhaba — opið i hádeginu í desember Hádegisverðartilboð: Smáréttir frá kr. 390. - Sérstakurjólamatseðill MARJHABA Rauöarárstíg 37 • síml 562-6766

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.