Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 11
a
RMIVmJDAGUR 7. DESEMBER1995
Rýrt verður fyrir oss smámennið
,/EtlarSjálfstœðisframsóknarflokkiirinn að sœtta
sig við dómsmálaráðherra sem hefurverið dæmdur
fyrir valdníðslu? Lyktir þessa máls eru mjög undir
afstöðu Davíðs Oddssonar komnar, hvað hann telur
boðlegt og hvað ekki. “
Eins og vænta mátti sam-
þykktu Framsóknarfram-
sóknarflokkurinn og Sjálfstæð-
isframsóknarflokkurinn að
fresta framtíðinni í landbúnaði
enn um sinn.
Alþýðubandalagsframsókn-
Stjórnmál
arflokkurinn sat hjá eins og
gömul meykerling. Haldið skal
áfram að níðast á skattgreið-
endum og neytendum í skjóli
ranglátrar kjördæmaskipunar
fram á næstu öld. Þetta gerist
þrátt fyrir að svonefnd verk-
lýðs-“hreyfing“ og vinnu-“veit-
endur“ hafi loksins raknað úr
rotinu og áttað sig á skaðsemi
þessa heimska kerfis fyrir
launþega og ekki síður annan
atvinnurekstur.
Láta mun nærri að beint tjón
skattgreiðenda og neytenda sé
15-20 milljarðar á ári hverju.
Þetta er þó ekki nema þriðj-
ungurinn af því þjóðhagslega
tjóni sem landbúnaðarstefnan
veldur íslendingum til lengri
tíma litið. Minni kaupmáttur
veldur atvinnurekstrinum
miklum búsifjum, sem leiðir til
meira atvinnuleysis en annars
og svo koll af kolii. Þannig get-
ur hvert starf í landbúnaði
kostað þrjá menn vinnuna í
öðrum greinum, a.m.k. á jaðr-
inum. Þannig er ísienskur
landbúnaður atvinnuleysis-
skapandi atvinnugrein. Árið
1984 nenntu menn á Nýja-Sjá-
landi ekki lengur þessum fífla-
gangi í landbúnaði, sem var að
því kominn að drukkna í ríkis-
styrkjum. Tíu árum síðar
starfa fleiri í landbúnaði þar
en áður, án teljandi ríkis-
styrkja eða innflutningsbanna.
Ef menn hefðu ætlað sér að
bjarga íslenskum landbúnaði,
þá hefði þurft að losa hann úr
kæfingarfaðmlaginu við ríkis-
mömmuna Davíð Oddsson. Sú
niðurstaða sem nú er orðin
mun trúlega gera endanlega út
af við íslenskan landbúnað,
sem hefði getað starfað með
blóma ef rétt hefði verið á spil-
um haldið. Nú mun rotnunin
halda áfram í greininni og allir
vita að syndafallið kemur fyrr
eða síðar.
Því var haldið fram hér fyrir
tveim vikum, að sennilega
myndu þrír þingmenn Sjálf-
stæðisframsóknarflokksins
greiða atkvæði með neytend-
um og skattgreiðendum í bú-
vörumálinu. Pétur Blöndal
sannaði að hann lætur ekki
sitja við orðin tóm, í þessu
máli stóð hann við fyrri yfir-
lýsingar og sannfæringu sína
og verður þar með fyrsti þing-
maður Sjálfstæðisframsóknar-
flokksins í langan tíma, sem
meinar eitthvað með frjáls-
lyndri stefnu. Þingmenn Reyk-
nesinga, Árni M. Mathiesen og
Kristján Pálsson, höfðu lýst
því yfir að þeir styddu ekki
samninginn, samt sem áður
höfðu þeir ekki burði til að
standa við sannfæringu sína
og hagsmuni kjósenda sinna
þegar til kastanna kom. Um þá
má segja: „Rýrt verður fyrir
oss smámennið.“
Vonandi snúa þessir ágætu
menn sér að einhverju öðru en
pólitík bráðlega.
Og smámennið
dreifist víðar...
En hugsanlega hafa ungir
þingmenn í Sjálfstæðisfram-
sóknarflokknum, úr fjölmenn-
um kjördæmum sem ekki eiga
ráðherra, ástæðu til að sýna
foringjahollustu, því lengi hef-
ur flogið fyrir að forysta
flokksins viidi gjarnan losna
við Þorstein Pálsson úr emb-
ætti.
Nú hefur það gerst, að
dómsmálaráðherrann hefur
fengið á sig dóm fyrir vald-
níðslu gagnvart Guðjóni Andr-
éssyni, fyrrverandi forstöðu-
manni bifreiðaprófa, en sem
kunnugt er var það eitt af
fyrstu embættisverkum Þor-
steins Pálssonar á stóli dóms-
málaráðherra að víkja Guðjóni
úr starfi og siga á hann lögregl-
unni fyrir meint embættisaf-
glöp. Árum saman hefur Guð-
jón mátt þola áburð ráðherr-
ans um embættisafglöp, árum
saman hefur hann þurft að elt-
ast við hið stirðbusalega kerfi
til þess að ná rétti sínum, ár-
um saman hefur hann mátt
þola ásakanir um að hafa verið
skipaður í embættið á vafa-
sömum forsendum. Nú er
genginn dómur í þessu máli
Guðjóni í vil. Dómsmálaráð-
herrann er dæmdur fyrir al-
varleg afglöp sem rekja má til
pólitísks ofstækis og verða
trauðla túlkuð á annan hátt en
sem pólitískar ofsóknir.
Ekki er langt síðan Guð-
mundur Árni Stefánsson vék
sæti heilbrigðisráðherra, án
þess að Jón Baldvin Hanni-
balsson eða Sighvatur Björg-
vinsson lyftu litla fingri honum
til varnar að heitið gæti. Guð-
mundur gerði rétt í því að
segja af sér ráðherradómi úr
því formaður Alþýðuflokksins
varði hann ekki þegar mest á
reið. Nauðsynlegur trúnaður
ríkti því ekki milli Guðmundar
og Jóns Baldvins. Hér eftir
mun Guðmundur sigla góðan
byr, en ekki í skjóli Jóns Bald-
vins eða Sighvats, fráfarandi
forystu Alþýðuflokksins, held-
ur á eigin forsendum, enda
fékk hann ekki á sig dóm.
Þorsteinn Pálson hefur feng-
ið á sig dóm fyrir athæfi sem
maður hélt að viðgengist ein-
göngu í kommúnistaríkjum og
spilltustu þriðjaheimsríkjum.
Heyrst hefur að Davíð Odds-
son kalli mál Guðjóns Andrés-
sonar „lítið mál“. Hans mál
tekur þó af öll tvímæli um
hvaða menn eru færir um að
fara með völd. Ætlar Sjálf-
stæðisframsóknarflokkurinn
að sætta sig við dómsmálaráð-
herra sem hefur verið dæmd-
ur fyrir valdníðslu? Lyktir
þessa máls eru mjög undir af-
stöðu Davíðs Oddssonar
komnar, hvað hann telur boð-
legt og hvað ekki. Það verður
fróðlegt að sjá.
Höfundur er hagfræðingur.
Blygðunarkenndin uppgötvuð
„Sjálf rannsóknarlögreglan erkomin f málið.
Pessi sama rannsóknarlögregla, þið vitið, og er
að drukkna í fjársvika-, innbrots- og allskonar
málum, sem hún kemst ekkiyfir. “
að var með óiíkindum
hversu mikla athygli vakti
skoðanakönnun DV um for-
setaframbjóðendur, sem birt-
ist á mánudag. Alls staðar var
því slegið upp sem stórfrétt að
séra Pálmi Matthíasson væri
Punktar
!■
I jjjKbwHW Birgisson
efstur á óskalista þjóðarinnar
yfir næsta forseta. Sjaldan hafa
jafnmargir skotið jafnlangt yfir
markið.
í súluriti með könnuninni
voru séra Pálma gefin 18,7 pró-
sent af „fylgi hugsanlegra for-
setaframbjóðenda" og í undir-
fyrirsögn var þetta kynnt sem
„niðurstaða skoðanakönnunar
DV\ Þetta er í bezta falli sak-
laus blekking til að búa til um-
ræðuefni yfir kaffibollum, en í
versta falli fals, af því að for-
sendurnar eru ekki kynntar.
DV gerði sjálfu sér þann
ógreiða, sem þó var heiðarlegt
gagnvart lesendum, að birta
raunverulegu tölurnar á bak
við prósenturnar í fyrirsögn-
unum og með svolitlum reikn-
ingskúnstum má finna töluvert
aðra niðurstöðu en blaðið
kynnti. Hverjar eru þær?
Blaðið spurði 1.200 manns
hvern þeir vildu sem næsta
forseta. Spurningunni svöruðu
um 430 manns. 770 svöruðu
ekki, eða því sem næst 64 pró-
sent aðspurðra. Látum vera
hvort 430 manns er nógu stórt
úrtak til að kynna skoðun þess
sem „niðurstöðu“. En þarna er
alvörufrétt, sumsé sú að þrátt
fyrir áberandi og ítrekaðar til-
lögur um nokkra tiltekna fram-
bjóðendur síðustu vikurnar
treysta tveir þriðjuhlutar þjóð-
arinnar sér ekki til að nefna
neinn þeirra. Meðal þessara
eru vitanlega séra Pálmi, Guð-
rún Agnarsdóttir og fleiri.
En þessar tölur segja meira.
Þær segja, að aðeins áttatíu
manns af þessum tólf hundruð
(eða 18,7 prósent af 430)
myndu kjósa séra Pálma núna.
Sem þýðir, ef litið er á hina
hliðina, að 1.120 manns vilja
helzt sjá einhvern annan í
starfinu. Það er harla ótrúlegt
að þeim hafi einhvern veginn
tekizt að gleyma honum, mið-
að við umræðu síðustu vikna.
Málið flækist enn. Alls sögð-
ust 68 manns vilja fá frú Vig-
dísi Finnbogadóttur sem for-
seta, en hún fékk næstflest at-
kvæði. í DV er þessi hópur tal-
inn til þeirra sem taka afstöðu,
sem er í bezta falli afar hæpið.
Er það að „taka afstöðu til
írambjóðenda“, að nefna þann
eina sem lýst hefur yfir að
hann gefi örugglega ekki kost á
sér? Varla.
Ef sú er niðurstaðan minnk-
ar hópur þeirra, sem taka
raunverulega afstöðu á milli
manna, niður í 362. Það hefði
einhvern tíma kallast afar slakt
úrtak. En gerir „sigur“ Pálma
þó sýnu meiri; miðað við þetta
úrtak nýtur hann stuðnings 22
prósenta, en ekki 18,7. Maður-
inn hlýtur að hafa kosninguna
svo gott sem í vasanum...
Fyrir nokkrum vikum vissi
hálf þjóðin ekki að orðið blygð-
unarkennd væri til, hvað þá
hvað það þýddi. Tvö afar lang-
sótt mál hafa nú komið upp
sem breyta því. Hið fyrra er
vitanlega mál Heiðars Jóns-
sonar, þar sem hefur verið gef-
in út opinber ákæra. Þar var
„fórnarlambið" svo helsært á
blygðunarkenndinni að ekki
einasta gerði það enga tilraun
til undankomu, heldur dund-
aði sér við að taka ljósmyndir
á meðan á öllu stóð. Líklega á
milli neyðarópanna.
Hitt málið ko,m upp í þessari
viku. í HP í síðustu viku aug-
lýsti kaupmaður að þeir, sem
kæmu naktir í búðina til sín á
mánudag, fengju ókeypis GSM-
farsíma. Viti menn: hátt í tutt-
ugu náungar komu á tippinu
(afsakið orðbragðið, blygðun-
argjörnu lesendur) til að næla
sér í síma.
Viðbrögð? Þrenns konar.
Samkeppnisráð veltir fyrir sér
hvort þetta sé brot á sam-
keppnislögum. Gott og vel;
þeir komast að niðurstöðu um
það. Neytendasamtökin
kvarta yfir að ekki fengu þeir
allir síma, sem mættu berrass-
aðir. Látum það vera. En svo
kemur blessað pólitíið og
kannar hvort mennirnir kunni
að hafa brotið gegn hegningar-
lögum sem banna dónaskap á
almannafæri. Þyngsta refsing
við því? Fjögurra ára fangelsi,
takk fyrir.
Og sjálf rannsóknarlögregl-
an er komin í málið. Þessi
sama rannsóknarlögregla, þið
vitið, og er að drukkna í fjár-
svika-, innbrots- og allskonar
málum, sem hún kemst ekki yf-
ir.
Hvaða bull er þetta? Á öllum
myndum, sem sýndar hafa
verið af atburðinum (og HP
býður RLR hér með formlega
að skoða þær sem blaðið býr
yfir), eru áhorfendur á bak við
glerglugga ýmist skellihlæj-
andi eða bara forvitnir um
hvað sé að gerast. Enginn mið-
ur sín, enginn í yfirliði, enginn
á harðahlaupum undan glæpn-
um. Enda var glæpurinn eng-
inn.
Þessi lög eru hugsuð til þess
að vernda fólk, ekki sízt börn,
gegn dónaskap og áreiti sem
það verður fyrir á almanna-
færi (svo sem gegn „flössur-
um“). Það er nauðsynlegt. En
þessi síðustu mál (sem eru
þau einu, sem upp hafa komið
nýlega, vel að merkja) gera
lögin hlægileg og þar með
marklaus og að engu hafandi.
Það þarf enga lagabreytingu til
að leiðrétta það. Aðeins að
lögreglan eyði tíma sínum
frekar í það, sem virkilega
plagar fólk í þessu landi. Al-
vöruafbrot.
uppleið
Pétur Blöndal
alþingismaður
Ætlar ekki að styðja búvöru-
samninginn og túlkar þar
ábyggilega viðhorf þorra
kjósenda Sjálfstæðisflokks-
ins — en kannski ekki foryst-
unnar.
Guðmundur J.
Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar
Rifjar upp yngri og glaðari ár
með því að vera í uppreisn
gegn kjarasamningunum,
ríkisstjórninni, ASI og VSl.
Svona þangað til kemur að
næstu stórsóknarfórn hjá
Gvendi.
Árni Sigfússon
Sjálfstæðismenn eru þegar
búnír að vinna borgina aft-
ur, jafnvel þótt tvö og hálft
ár séu í kosningar.
Á niðurleið
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri
R-Iistinn hefur ekki verið
lengi að hrista af sér fylgið;
það er kannski alveg jafn-
ógæfulegt að þessir fjórir
flokkar stjórni saman borg-
inni og að þeir gefi saman út
blað.
Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari
Ekkert stórmót í handbolta
næstu þrjú árin, engar bjart-
ar vonir, engar afsakanir
vegna misheppnaðrar
frammistöðu. Að hverju eiga
handboltamennirnir nú að
keppa?
Bóksalar
Þeir hugðu gott til glóðar-
innar að vera hérumbil bún-
ir að binda verð á bókum í
lög. Svo kom í ljós að það
ansaði þeim bara enginn.