Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 14

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995 Fyrir nokkrum árum datt kona fimm og hálfan metra útum bilaðan glugga á geðdeild Landspítalans og stórslasaðist. Að minnsta kosti ellefu manns hafa farið útum þennan sama glugga, en ríkið vísar frá sér allri ábyrgð og ásökunum um vanrækslu. Stefán Hrafn Hagalín kannaði málið. h Krefur ríkið um fi í skaðabætur F n milli ■yrir sex arum var um- fjöllunarefni þessarar greinar, kona sem við skulum eftirleiðis kalla Álf- heiði Björk, á kafi í vímuefna- neyslu og eftir óvenjuharða þriggja vikna törn leitaði hún ásjár geðdeiidar 33A á Land- spítalanum þarsem yfirlæknir lagði hana samstundis inn til meðferðar vegna brjálsemi. Á deild 33A var Álfheiður degi seinna svipt frelsi samkvæmt svokallaðri 48 tíma reglu eftir að hafa leitað útgöngu. Inná sjúkrastofu sinni uppá annarri hæð uppgötvaði hún síðan að veltigluggi þar opnaðist óvenjumikið og lét sig síga út- um gluggann. Þegar Alfheiður varð þess vör að fallið var hátt í sex metrar ætlaði hún að hætta við, en missti takið og hrapaði til jarðar. Við harka- lega lendinguna hlaut hún samfallsbrot á tveimur hryggj- arliðum og hefur frá þessum tíma verið óvinnufær öryrki og tekið út ómældar þjáningar. Áfallið varð til þess að hún sagði skilið við óreglusamt líf- erni og er nú í sambúð og gæt- ir þriggja barna sinna. Álfheiður Björk sækir um þessar mundir mál fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur þarsem hún gerir rúmlega fjórtán millj- óna króna miskabótakröfu á hendur ríkinu vegna aðgæslu- leysis og vanrækslu. Þótt fyrir liggi að gluggaumbúnaðurinn var í ólagi og að minnsta kosti ellefu sjúklingar hafi farið út- um glugga á deild 33A á sjö ára tímabili var umbúnaðurinn ekki lagfærður fyrren sá ellefti fór út. Islenska ríkið fyrir hönd Ríkisspítalanna hafnar engu að síður allri ábyrgð vegna van- rækslu tengdri gluggaumbún- aðinum og sömuleiðis er kraf- ist sýknu vegna atriða er snerta meint aðgæsiuleysi starfsfólks deildarinnar í þessu tilviki. Sýknu er semsagt kraf- ist hvað sem því líður að Álf- heiður Björk var svipt frelsi vegna brjálsemi og hafði sýnt af sér viðleitni til flótta. Fyrir þönd Álfheiðar sækir Ásgeir Á. Ragnarsson héraðs- dómslögmaður málið, en Jón G. Tómasson verst fyrir hönd íslenska ríkisins. Að öllum iík- indum er fordæmisgildi máls- ins umtalsvert, enda lengi ver- ið áhöld um ábyrgð ríkisins í málum sem þessu. Leitar hjálpar Það var fljótlega uppúr klukkan sjö að morgni mánu- dagsins 5. júní 1989 sem Áif- heiður Björk leitaði hjálpar hjá bráðamóttöku Landspítalans vegna langvarandi ofneyslu áfengis og Jyfja. Um langt ára- bil hafði Álfheiður misnotað fíkniefni og þegar þarna var komið hafði neyslan verið í há- marki í þrjár vikur, hún hafði ekki getað sofið nokkrar und- anfarnar nætur, var mjög æst og óróleg og farin að finna fyrir mikilli ofsóknartilfinningu, auk þess sem hún sá ofsjónir. Jóliannes Bergsveinsson yf- irlæknir tók á móti Álfheiði Björk og eftir viðtal var hún tafarlaust send til meðferðar. Klukkan tíu um morguninn var hún þannig lögð inná deild 33A við geðdeild Landspítalans. í bréfi Jóhannesar frá 8. okt- óber 1991 stendur, að augljóst hafi verið að hér var á ferðinni bráðveikur sjúklingur með ein- kenni er bentu til amphetamin psykosu. „Hún var því í þörf fyrir bráðameðferð, innlögn og vistun í að minnsta kosti 48 tíma, meðan hið bráða geð- veikisástand væri meðhöndlað og það gengi yfir,“ skrifar Jó- hannes. Mikil lyfjagjöf Þess má geta að þetta var ekki í fyrsta skipti sem Álfheið- ur Björk kom til meðferðar á geðdeild Landspítalans heldur hafði það ítrekað gerst áður. Skömmu eftir komu á deildina var henni gefið mikið magn af lyfjum, bæði verkjalyf og ró- andi lyf. Ströng gæsla er viðhöfð á 33A og sjúklingum er algjör- lega óheimilt að yfirgefa deild- ina nema með leyfi læknis. Afturámóti er deildin í raun tví- skipt: annarsvegar er um að ræða svokallaðan skammlegg þarsem vistaðir eru bráðveikir sjúklingar, umönnunin stöðug og gæslan mikil. Hinsvegar er almenn deild, en þar eru vist- aðir sjúklingar sem hafa náð sér niður úr bráðabrjálsemi og ekki er fylgst með hverju fót- máli þeirra, enda sjúklingarnir ekki lengur álitnir hættulegir sjálfum sér eða öðrum. Þegar Álfheiður hafði dvalið þarna á skammleggshuta deildarinnar í sólarhring — og sofið meðal annars fyrstu 16 til 17 klukkutímana — var hún að morgni þriðjudags metin í slíku ástandi að ekki væri leng- ur þörf á hinu sérstaka eftirliti og þeirri nánu umönnun sem viðhöfð er á skammleggnum. Var hún því færð yfir í almenna hlutann og þaðaní frá gáð að henni á um það bil hálftíma fresti. Reynir útgöngu Fljótlega eftir að Álfheiður Björk kom á deild 33A á mánu- deginum fór hún að tala um það við starfsfólkið að hún vildi hætta í meðferðinni þegar í stað og fara af spítalanum. Síðla þriðjudags ákvað hún að standa við þær heitingar. Á leiðinni út var Álfheiður hinsvegar stöðvuð og henni formlega tilkynnt að hún væri svipt frelsi á grundvelli svo- nefndrar 48 tíma reglu og fengi því ekki að yfirgefa deildina. Henni hafði fyrr verið tilkynnt að reglunni kynni að verða beitt ef hún leitaði útgöngu vegna þeirrar hættu sem henni var talin stafa af sjálfri sér. Ennfremur þótti lfklegt að Álf- heiður hæfi vímuefnaneysluna á nýjan leik ofaní sjúkrahúslyf- in og afleiðingar þess væru ófyrirsjáanlegar. Álfheiður tók frelsissvipting- una óstinnt upp líktog algengt er með sjúklinga við slíkar að- stæður, þráttfyrir að hún hafi virst sætta sig við hana til að byrja með. Hún taldi harkalega á sér brotið. í því samhengi skal ítrekað að þegar þarna var komið var Álfheiður enn í ann- arlegu ástandi vegna mikillar lyfjagjafar á spítalanum. Varð hún því enn staðráðnari í að komast útaf spítalanum og leit- aði allra útgönguleiða, sem vitaskuld voru engar. hafði heyrt — meðal annars frá sjúklingum deildarinnar — að sjúklingar 33A hefðu áður grip- ið til þess örþrifaráðs að forða sér útum glugga deildarinnar leitaði hún nú í örvæntingu að glugga sem mögulegt væri að komast útum, en fann engan. Úrkula vonar um að finna út- leið gekk Álfheiður þá til her- bergis síns, stofu númer 16, og lagðist til hvíldar. Eftir nokkra hríð kom hún auga á að festing á herbergisglugganum var brotin. Þarna er um að ræða velti- eða hverfiglugga, mikinn og þungan hlera, 95x150 senti- metra að stærð. Gluggar sem þessir eiga að vera öryggis- gluggar og eru afar algengir í sjúkrahúsum og skólum þar- sem þeir opnast ekki nema að mjög takmörkuðu leyti ef allt er með felldu. Svo var aftur- ámóti ekki í þessu tilviki, því þegar Álfheiður gekk að glugg- anum og ýtti á þá opnaðist hann um sextán sentimetra og það staðfestir skýrsla lögreglu- manna sem athuguðu hann eft- irá. Samkvæmt byggingar- reglugerð mega gluggarnir hinsvegar ekki opnast nema um tólf sentimetra. Álfheiður sá semsagt að þarna var flóttatækifærið kom- ið og fór útum gluggann með fæturna á undan, hékk fyrst á annarri hendinni og hugðist láta sig síga varlega til jarðar. Fallhæðin er rúmlega fimm og hálfur metri — eða rétt tæp- lega einsog að falla niðuraf þaki tveggja hæða húss — og þegar Álfheiður áttaði sig á því ætlaði hún að hætta við, en missti þá takið og féll til jarðar. Klukkan var 17:30. Fallið hafði alvarlegar afleiðingar Eftir fallið var Álfheiður flutt á slysadeild Borgarspítala og þaðan á bráðamóttöku Land- spítalans þarsem hún var skoðuð af bæklunarlækni. Sá „Skömmu eftirkomuá deildina uarhenni gefið mikið magn aflyfjum, bæði uerkjalyfog róandi. lyf. “ um í hrygg. Hún hefur af þess- um ástæðum gengist undir uppskurði, þurft á spengingu að halda og hefur verið lengi að ná sér eftir aðgerðirnar. Læknar hafa ráðlagt Álfheiði að stunda ekki íþróttir og fara að öllu leyti varlega með sig vegna beinflísar sem stendur út við mænuna. Slysið hefur því á heildina litið haft mjög al- varleg áhrif á líf Álfheiðar og takmarkað mjög svigrúm hennar til hverskonar líkams- beitingar í tómstundum og einkalífi. Miskabótakrafa á hendur ríkinu Örorka Álfheiðar Bjarkar var metin af Birni Önundarsyni sem 100% í sextíu mánuði og eftir það varanleg sem 40%. Örorkumatið er staðfest með bréfi dagsettu 31. maí á þessu „íbre'fi yfirlœknis kemurfram að uitað erum fjöl- marga sjúklinga sem farið hafa útum þennan glugga á deild 33A — eða að minnsta kosti ellefu talsins. í bréfinu erþess jafnframtgetið að „ekki séalueg uíst að upptalningin sé tœmandi“. “ Uppgötvar opnanlegan giugga Þarsem Álfheiður Björk ráðlagði stoðbelti og fótavist eftir getu og verkjum og eftir það fór Álfheiður aftur á geð- deildina og útskrifaðist þaðan 10. júní. Þremur dögum síðar kom hún reyndar aftur inná deildina og dvaldi þá til mán- aðarloka. Fallið var til þess að gera hátt, úr óvenjulegri stöðu og lendingin harkaleg í samræmi við það. Álfheiður slasaðist al- varlega í baki og hlaut meðal annars samfallsbrot á tveimur hryggjarliðum neðarlega í baki. Þetta hefur valdið því að Álfheiður hefur styst um heila tvo sentimetra og hefur verið í stöðugri meðferð frá þeim tíma. Síðustu misseri hefur komið í ljós að engar líkur eru á að hún nái nokkurntíma bata og sökum þess hefur hún lítið sem ekkert getað stundað vinnu. Slysið hafði verulegar jiján- ingar í för með sér og Álfheiður hefur til dæmis þjáðst af verkj- ári. Hinn 7. október 1991 óskaði þáverandi lögmaður Álfheiðar eftir afstöðu ríkis- sjóðs til bótaskyldu vegna tjóns hennar. Mánuði síðar barst lögmanninum bréf frá ríkislögmanni þarsem bóta- skyldu var alfarið hafnað. Álfheiður Björk telur því nauðsynlegt að höfða mál þetta á hendur íslenska ríkinu til greiðslu skaðabóta, vaxta og málskostnaðar. Fyrir dóm- inum er gerð sú krafa að ríkið greiði henni rúmlega 12,7 millj- ónir með almennum spari- sjóðsvöxtum og dráttarvöxt- um frá árinu 1989 og má leiða líkur að því að heildarupphæð- in sé rúmlega fjórtán milljónir. Það var Jón Erlingur Þorláks- son tryggingafræðingur sem gerði tjónsútreikninga Álfheið- ar. Kunnugir telja miskabóta- kröfunum mjög stillt í hóf. Álfheiður Björk byggir kröf- ur sínar á hendur íslenska rík- inu í fyrsta lagi á því að starfs- menn deildar 33A hafi í þessu tilviki gerst sekir um aðgæslu- leysi við eftirlit og umönnum og beri íslenska ríkið ábyrgð á því samkvæmt reglu skaða- bótaréttar um vinnuveitenda- ábyrgð. Starfsmenn hafi enn- fremur vitað af annarlegu ástandi sjúklingsins — og að hún væri hættuleg sjálfri sér — og þess vegna átt að gæta hennar betur. Frelsissviptingin hafi síðan einungis aukið á brjálsemi sjúklingsins og því hefði sérstaklega átt að fylgjast vandlega með henni eftir það. í öðru lagi byggjast kröfur Álf- heiðar á því að gluggabúnaður á umræddri stofu 16 hafi verið í óforsvaranlegu ástandi, sem sé afleiðing af hirðuleysi starfsmanna um viðgerðir. Þetta beri að meta til sakar. Vanræksla starfsfólks? Af málsatvikum má ráða að starfsfólk og yfirboðarar á deild 33A hefðu átt að reikna með að Álfheiður myndi reyna að fara útum glugga þarsem sjúklingar höfðu áður farið út- um glugga í umræddri stofu eða samskonar glugga í sam- bærilegum tilvikum. Útbúnað- ur gluggans uppfyllti að mati sækjanda ekki þær lágmarks- kröfur sem gera verður á slík- um deildum með tilliti til þeirra hegðunarafbrigða sem fram geta komið hjá geðveilu og bráðsjúku fólki; fólki sem gjarnan er hættulegt sjálfu sér. í bréfi Jóhannesar Berg- sveinssonar yfirlæknis frá 17. október 1991 kemur fram að vitað er um fjölmarga sjúklinga sem farið hafa útum glugga á deild 33A — eða að minnsta kosti ellefu talsins á tímabilinu janúar 1984 til október 1991. í bréfinu er þess jafnframt getið að „ekki er alveg víst að upp- talningin sé tæmandi". Sækj- andi leiðir rök að því, að þess- ar staðreyndir einar sér sýni að um vítaverða vanrækslu hafi verið að ræða hjá stjórn- endum spítalans. Það mun hinsvegar ekki hafa gerst fyrr- en ellefti sjúklingurinn brá sér útum glugga á deild 33A að stopparar eða krókar voru settir á glugga deildarinnar til að fyrirbyggja frekari atvik sem þessi. Ríkið hafnar ábyrgð í greinargerð lögmanns ís- lenska ríkisins kemur fram að þráttfyrir að frelsissvipting vegna brjálsemi hafi farið fram hafi ekki verið sérstök ástæða til að sjúklingurinn myndi fara sér að voða „eða grípa til svo áhættusamrar leiðar að láta sig falla út um glugga á 2. hæð hússins, enda hafi stefnandi ekkert gefið til kynna um þann ásetning sinn“. Einnig er til þess tekið að hvorki deild 33A né aðrar geðdeildir í landinu séu mannheldar og sjúklingur- inn í þessu tilviki hafi virst sátt við frelsissviptinguna. Á þess- um rökum og öðrum í svipuð- um dúr er ásökunum um að- gæsluleysi vísað á bug. Að lokum eyðir verjandi nokkrum orðum í gluggaum- búnaðinn sjálfan og telur hann hvorki hættulegan né óforsvar- anlegan ásamt því sem ill- mögulegt hafi verið að koma í veg fyrir það sem verjandi kall- ar ásetning sjúklingsins. Kröf- um sem byggðar eru á hirðu- leysi um ástand og umbúnað glugga á deildinni er þannig vísað á bug og sýknu krafist í öllum atriðum. Það stingur nokkuð í augu, að í greinargerð Jóns G. Tóm- assonar ríkislögmanns kemur fram að til „að fullorðinn ein- staklingur geti troðið sér út um 16 sentimetra gluggaop þarf mikinn vilja og trúlega sér- staka líkamsbyggingu“. Ekkert liggur fyrir þess efnis að Álf- heiður Björk eða hinir glugga- flóttamennirnir ellefu hafi sér- staka líkamsbyggingu. Enda harla ósennilegt, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Eftir að atburðirnir urðu árið 1989 hefur Álfheiður Björk tek- ið sig á í einkalífinu og sagt skilið við hverskonar óreglu. Hún er móðir þriggja barna og er í ágætri sambúð. Þegar blaðamaður grennslaðist fyrir um ástæðu þess að heil sex ár líða frá því að Álfheiður höfðar miskabótamál á hendur ríkinu fékk hann þau svör að hún hefði hreinlega ekki treyst sér í það fyrren nú, að hún leitast við að fá réttlætinu fullnægt.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.