Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 16

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995 TM Forsetaframbjóðandi vikunnar Dr. Óttar Guðmundsson Það má tíðindum sæta að nafn dr. Óttars skuii fyrst nefnt núna í þessu sambandi. Hann er hinn ídeali forseta- frambjóðandi. Þeir eriendu höfðingjar sem þyrftu að um- gangast dr. Óttar kæmu sko aldeilis ekki að tómum kofiin- um hjá þeim vísa manni. Ótt- ar hefur ákveðið forskot í kosningaslagnum: Þeir eru ófáir fjölmiðlarnir sem hafa leitað til hans um góð ráð — þar á hann aldeilis inni gúdd- vill. Þá er meirihluti þjóðar- innar á móti því að embættis- menn og pólitíkusar séu að djúsa um of, eins og glögg- iega kom fram í máli Magnús- ar Thoroddsen. Hver væri betur til þess fallinn að þurrka diplómasíuna okkar upp? Nei, spyr sá sem ekki veit. Slagorðið: Ó-Ó-Óttar inn — nú kjósum við öll doktorinn! HP vill stytta þjóðinni biðina eftir for- setaframbjóðendum með tillögum um ákjósanleg forsetaefni. /J Það er makalaust hvað Dóri Braga er gjarn á að dúkka upp hér á síðurn blaðsins. Og iesendur geta rétt ímyndað sér undr- unina sem greip um sig á ritstjórninni þegar bókin um Vil- hjálm Stefánsson landkönnuð barst henni í hendur. Ekki varð betur séð en Dóri væri þar lifandi kominn á einni myndinni norpandi í heimskautavindinum. Nú er ekki að Dóri liafi þann- ig andlitsfall að hægt sé að eiga von á öðru eins. Það var ekki frítt við að kvikmyndirnar um Leonard Zelig og Forrest Gtimp kæmu upp í hugann, en þegar betur var að gáð kemur í ljós að myndin er af Vilhjálmi sjáifum. Og enn sannast hið fornkveðna með útlitið og innrætið: Dóri Braga er fyrrverandi Vestur- íslendingur, nýlega kominn heim frá Kanada. Eflaust hefur hann notað tækifærið og ráfað um ísilagðar sléttur Alaska með gítarinn á öxlinni. Apple-umboðið hf. Skipholti 21, simi: 511 5111 HP FYRIR 15 ÁRUM Blaðamaður sleppur við kœru Ríkissaksóknari hefur í bréfi til lögreglustjórans í Reykjavík vísað frá kæru embættisins á hendur blaðamanni Helgarpósts- ins, Guðlaugi Bergmunds- syni, en lögreglan handtók Guðlaug síðla sumars í mið- bænum, þar sem hann var við störf í þágu blaðsins, og færði í fangageymslur lög- reglunnar. Var Guðlaugi gefið að sök að hafa truflað og tafið lögreglu og hafa haft uppi móðganir við lög- reglumenn. Guðlaugur íhugar nú í samráði við Iög- fræðing Blaðamannafélags íslands hvort hann höfðar mál á hendur lögreglunni fyrir handtöku og frelsis- sviptingu að ófyrirsynju. 12. desember 1980. „Það verður að beita ákveðinni tækni og ég verð stundum að halda hattinum. Ég er greinilega ekki eins lag- inn og sumir hattamenn að geta alltaf haft hausinn í vind- inn eins og mér skilst að þeir geri. En sennilega er maður heldur að komast upp á lagið. Þetta er æfing eins og með regnhlífina.“ Sú stórmerkilega kenning kom fram hjá Haraldi Blöndal fyrir viku að líkast til væri það Kennedy að kenna að hattar fóru að hverfa. Það var skylt að spyrja stjórnmálafræðing- Þetta er breskur hattur og ég segi alltaf að hann sé keyptur á Oxford Street, svo menn haldi að hann sé keyptur í fínni hattabúð. Svo útskýri ég það ekkert frekar,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur, en hann er hattamaður HP að þessu sinni. Ólafur á við sama vanda að etja og Haraldur Blöndal að fá á sig nægilega stóran hatt. Því varð hann harla glaður þegar hann fékk þennan. „Ætli við sé- um ekki svona höfuðstórir Is- lendingar," segir Ólafur. „Það er nú eina skýringin sem mér dettur í hug, ef þetta er algengt vandamál hér, sem ég vissi nú ekki.“ Ólafur á annan hatt sem er rússneskur, keyptur í Moskvu meðan Gorbasjev var enn við völd. „Ég fór í Gúmmið, sem er vöruhúsið við Rauða torgið, og í hattadeildina — þeir voru með mjög fína hatta Rússarnir. En þótt ég fengi stærsta hatt- inn er hann heldur þröngur þannig að ég á í vandræðum með að nota hann. Rússarnir virðast þannig fremur höfuð- litlir, altént voru þeir ekki með nógu stóra hatta. Þetta er stór- merkilegt rannsóknarefni." Ólafur hættir sér ekki út í of miklar bollaleggingar um hvað þetta segi almennt um vits- muni íslendinga. „Það er nátt- úrlega eins og alltaf með ís- lenska speki. Þeir eru tveir málshættirnir: „Oft er vit í vænum kolli" og „Heimskur er jafnan höfuðstór“. Það fer bara eftir því hvernig haus menn hafa hvorn þeir velja. Við skul- um vona að vitið eigi við ís- lendinga.“ Það er ekki langt síðan Ólaf- ur fór út ' hattamenn una. Það 1 fyrir tvein eða þrer árum. „Þí byrjaði upf fertugu mér. Ætli urgirnin ekki ráðið svo er þett bera hatt nátt- Guðlaugur Tryggvi úrlega forn og karl- mannlegur siður. Mikil synd og skömm ef hann af- leggst með öllu.“ Því miður á hatta- mennskan undir högg að sækja að mati Ólafs, sem I sýtir það ekki að j tilheyra minni- hlutahópum. „Ég tilheyri hvort sem } er minnihUutahóp pípureykinga- manna, sem verð- ur sífellt erfiðara." En þetta eru hin- ar heimspekilegu ástæður. Þær praktísku skipta ekki síður máli. „Það er afar fúnk- sjónalt fyrir þá sem eru augnfatl- aðir eins og ég og þurfa að ganga með gleraugu að nota hatta. Ég hafði reynt að ganga með húfur, sem voru náttúr- lega allt of óvirðu- legar, en dugðu nú svolítið í þetta samt. Ef það rignir verð- ur maður með gleraugu eins og blindur kettlingur án hatts- ins.“ Og talandi um rigninguna og rokið á íslandi þá dregur Ólaf- ur ekki úr því að veðurfarið hér sé fjandsamlegt hatta- mönnum og bendir á að það hái einnig þeim sem nota regn- hlífar. Hann notar gjarnan regnhlífar og var alltaf að lenda í því að þær fykju upp. Það væri mjög óþægilegt — þær hreinlega geta eyðilagst á því. En svo ná menn lagi á Siggi Hall Sigmundur Ernir Guðfinnur bílasali Ólafur Þ. Harðarson: „Ef það rignir verður maður með gler- augu eins og blindur kettlingur án hattsins." inn út í þetta atriði. „Ég hef nú ekki hugsað út í það, en líklega er þetta rétt hjá honum Haraldi. Maður sér til dæmis, ef myndabækur af stjómmálamönnum eru skoð- aðar, að það er á þeim tíma sem þetta breytist. Áður voru allir almennilegir og virðulegir menn með hatta. Það gæti mjög vel passað. Það er einnig rétt athugað hjá honum að Kennedy var stundum með pípuhatt við hátíðleg tækifæri, en þá hélt hann á honurn." JBG Dóri Braga Haraldur Blöndal Björn er laaaangflottastur * slenskir netmiðlarar hafa fyrir allnokkru áttað sig á stjórnmálavinkli netsins og þannig vistar Miðheimasíðan h ttp://centru m. is/island/- stjornm.html til dæmis síður þriggja stjórnmálaflokka og tveggja stjórnmálamanna. Fyrst er að telja Þjóðvaka og Náttúrulagaflokkinn, sem fyrir utan lítið fylgi kjósenda eiga það sameiginlegt að hafa ekki náð nokkrum tökum á tækn- inni og eru með gjörsamlega ómyndrænar og úreltar síður. Alþýðubandalagið er þriðji flokkurinn og hefur einnig ómyndrænt viðmót, en hefur það framyfir hina tvo að vera með nýlega uppfært efni. Guð- mundur Árai Stefánsson er annar stjórnmálamannanna á Miðheimasíðunni og hann á við svipaða hluti að stríða og Þjóðvaki og Náttúrulagaflokk- urinn: síður hans voru settar upp fyrir tæplega ári og hafa lítt verið uppfærðar frá þeim tíma. Guðmundur Árni hlýtur því sömu snuprur og flokkarn- ir. Og þá komum við að heima- síðu vikunnar: Bjöm Bjarna- son menntamálaráðherra er sá stjórnmálamaður íslenskur sem bestum tökum hefur náð á hinni nýju tækni og býr þar einkum að tveimur hlutum: annarsvegar fyrirtaksskilningi á tækninni og möguleikum miðilsins og hinsvegar af- bragðsgóðri ráðgjöf og stuðn- ingi nethausa. Björn flokkar efnið á skipulagðan hátt og í efnisflokkum má finna gnægð lesefnis og upplýsinga. Að- gengið í prýðisgóðu lagi; síð- urnar eru myndrænar og snyrtilega uppsettar. Þarna er semsagt bókstaflega allt sem maður vill vita um Björn Bjarnason og einnig margt af því sem maður vill alls ekki vita - en þá er bara hægt að fletta áfram. Rúsínan í pylsu- endanum er ákaflega persónu- legar hugleiðingar mannsins og hvatning Björns til net- hausa um að spjalla þráðbeint við sig gegnum tölvupóst. Und- irritaður veit nefnilega af eigin reynslu að Björn er pennaglað- ur maður og svarar jafnharðan skilaboðum: í þeirri staðreynd er auðvitað að finna einn fflii Kotscape: Heimasíða Björns Bjatnaxonar li <30 & 3 sss G 8í<*' f-v V.M Höftv* Iftvigfes Cp*n Prtot , FVtl . ! jon í: j r.tto ://yyv .c»otrum.f£ /bb / Vf<»trt N*w? ( Vhsrt^ Cool?} Hyxiboot: | N»t S»vch | N*t Dw »ctorv( ftov'tycupí { B jö rn Bjarnason Fytix stjónvatélitfíiexiii skiptir ck&puxa áð geta vtá 3 i rtánu saxftbánoj vi? umbiáðexnJw sif.e Leiðixnex til þfess vexðá sífeát flfcixi. Mtð því tð nýttxfiec þatm hfcixft. se«i þtssi nýj». sáxnskipteleið oj»n«x, vil égi sfcnxt koxft.a skoðunoxn rcánuxn 4 ixsxftf*xi og gfefe. öðwntíekiítexitil »3 k/nx>ft mfcrviðhGrf sb. Bg ttl, tð Jnttrftfctj? og vexoidarvefunnn gfen i slexidiftgum kleaft tð »flð str xtpplVsmgo og rcúðlft f.eim rafcð xnitía áhnf&cftfciri hsfetti ext vxð hofuxa nokkra sixuú áðux kynnst Áð Xftínu éltti tr f>að xftifolv*gt hlutvexk stjórnxuáhnwiítnft oð vcr * wior f>étttakend«xif>ess3/i gieðiiegu.firóuxi Ég vil mfeðaí sxatsxs itggjft rrutt af xftórkuift mtð f>vi, stxn óUura er htr boðið ftð kynxift séx. Hin afbragðs velheppnaða heimasíða Björns Bjarnasonar menntam; ráðherra á netinu. Bravó Björn! helsta kostinn við heimasíðu hans. Þarna er kærkomin leið fyrir kjósendur til að hafa milli- liðalaus samskipti við einn af æðstu stjórnmálamönnum þjóðarinnar og slík þjónkun við lýðræðið verður að teljast aðdáunarverð. Þess ber að geta að lokum að undirritaður hefur kynnt sér nokkuð góðan slatta af heimasíðum erlendra stjórnmálamanna og getur full- um fetum staðhæft, að fáir ef nokkrir þar ytra standa ís- lenska menntamálaráðherran- um á sporði - hvort sem verið er að tala um velheppnaða heimasíðu eða þátttöku og skilning á samskiptum á net- inu. Björn og aðrir íslenskir nethausar geta ófeimnir verið stoltir af því. (Að lokum eru netáhugamenn hvattir til að hafa samband við Helgar- póstinn gegnum tölvupóst um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta.) - shh (staffan*centrum.is)

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.