Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 31

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 31
FlMIVmJDAGUR 7. DESEMBER1995 31 Ef frægar sögupersónur væru teknar úr sínu rétta umhverfi og settar í nútímann sem raunverulegar manneskjur Hvar væru þær nú? Jakob Bjarnar Grétarsson og Egill Helgason skimuðu yfir bók- menntaarfinn og veltu því fyrir sér hvernig hefði farið fyrir hinum ýmsu persónum efþær þyrftu að pluma sig í nútímasamfélagi. Hending ein réð hvaða persónur urðu fyrir valinu en eðlilega voru íslendingasögurnar og verk Halldórs Laxness áberandi íþessu samhengi — þar er jú helst að finna karaktera sem hafa njörvað sig í þjóðarvitundina. GRETTIR ASMUND- ARSON (úr Grettlu) Allir þekkja Gretti í Grett- isvídeói en hann hefur komið víða við á löngum viðskiptaferli, meðal ann- ars í veitingabransanum. Grettir er harður í horn að taka í viðskiptum en þó er drýgsta að- ferð hans að láta ekki ná í sig. Ráð sem aldrei bregst. Hann gætir þess að svara aldrei sjálfur í síma og gegn þessum kraftmikla bissnessmanni standa rukkarar ráðþrota. En hvert sem hann fer finnur hann hvíla á sér Gláms-augu tollstjóra, sem vill fá vaskinn sinn refja- laust. ÓLAFUR PÁ (Ur Laxdælu) Ólafur Pá er eigandi herra- fataverslunar þar sem hann finnur sig vel. Skartgirni Ólafs er við brugðið og fötin verslun hans eru ekki hefðbundin eða grá heldur er þar að finna frumlegan og litríkan fatnað. Þá hentar það ekki höfðingjalundinni að reka einhverja sokkabúð heldur eiga einkunnar- orðin: „Allt frá toppi ofan í tá — hjá Ólafi Pá“ vel við. FJALLA- EYVINDUR Hann var náttúrlega útivistarmaður mikill og ákafur jeppa- og vélsleðamaður. En Eyvindur er ekki bara útivistarmaður heldur er hann til stöð- ugra vandræða. Hann er ákaflega óvinsæll hjá yfirvöldum og fjölmiðlum, því með reglulegu millibili þarf að kalla út björgunarsveitirnar og þyrlur Landhelgisgæslunnar til að gera að hon- um dauðaleit. En Eyvindur lætur sér ekki segj- ast. RAUÐSMYRARMAD- DAMAN (úr Sjálfstæðu fólki) Þjóðin kann vel að meta það hversu hlýlega henni liggur orð til landsins gæða og fólks- ins sem byggir landið. Hún hefur nú setið á Alþingi um nokkurt skeið við góðan orð- stír. Þaðan þurfti hún að hverfa til að sinna öðrum þjóðþrifaverk- um. Rauðsmýrarmaddaman er sterklega orðuð við forsetaframboðið. Henni hafa borist fjöl- margar áskoranir þar að lútandi frá kynsystrum sínum og er í öllum helstu skoðanakönnunum í öðru sæti yfir líklega kandídata. ORGANISTINN (úr Atómstöðinni) Organistinn situr löngum stundum á Mokka þar sem hann les blöðin og þusar um efni þeirra. Allt er það þó í góðlátlegum tóni en ekki er ör- grannt um að hinir fastagest- irnir séu orðnir eilítið þreyttir á honum. En vegna augljósrar hjartagæsku hans finna þeir aldrei hjá sér að neita honum um kakóbollann sem hann er sýknt og heilagt að slá þá um. HALLGERÐUR LANGBROK (úr Njálu) Hún er tíður gestur á vínveitingahúsum um helgar, og þegar sá gállinn er á henni dansar hún fáklædd og eggjandi uppi á borði, þótt raunar sé hún farin að láta ögn á sjá eftir ótal sambúðir og sambúðarslit. Karlmönn- um þykir hún þó enn heill- andi, en hún er ertistelpa og lætur þá engjast ef henni sýnist. Eftir tvær sambúðir í viðbót verður henni þó hált á þessu, því þá endar hún í félagslegri íbúð í Grafarvogi, í sam- búð með bílasala og hrappi. BJARTUR í SUMARHÚSUM (úr Sjálfstaéðu fólki) Bjartur lætur mikið á sér bera á fundum hjá Búnaðarfélaginu og hikar ekki við að hringja í Þjóðarsálina ef honum mislíkar eitthvað — sem er oft. Bjartur er alveg að því kominn að láta verða af hótun sinni, hótun sem Ari Teits- son og aðrir foringjar Bændasamtakanna hafa oft fengið að heyra, að hefja heima- slátrun og selja’ skrokka framhjá kerf- inu. OFVITINN (úr Ofvitanum) Ofvitinn er tölvu- áhugamaður, eiginlega kemst ekkert að hjá honum annað en tölv- ur. Elskan hans er stúlka sem hann hitti á vefspjalli Miðheima en áræðir ekki að hitta öðruvísi en í sýndarveruleikanum. Hann hefur hvort sem er ekki átt pening til að halda áskrift- inni að Netinu en er að reyna að vinna sér fyrir henni með sérkennslu fyrir byrjendur í Word Perfect. EGILL SKALLAGRIMSSON (úr Eglu) Egill átti erfiða æsku, honum lynti ekki við krakkana á leikskólanum og kerfið greip til sinna ráða. Hann var úrskurð- aður misþroska og átti lengi erfitt uppdráttar. — Andstætt eðli sínu komst hann hvorki lönd né strönd og leiddist út í hnupl og aðra smáglæpi. En kerfið hafði alltaf vökult auga með Agli — enn þann dag í dag hefur lögreglan hann af gömlum vana efst- an á lista þeirra sem grunaðir eru um græsku. En nú hefur Egill fundið starf við hæfi. Hann er langflutningabílstjóri og á löngum ökuferðum landshorna á milli dundar Egill sér við að setja saman vísur sem þykja lofa góðu. INDRIÐI Á HÓLI (úr Pilti og stúlku) Indriði er hamingjusamlega giftur Sigríði sinni — engan fölskva ber á þeirra sam- band. Þau ræða af einlægni öll þau vanda- mál sem upp koma í sambúðinni og draga ekkert undan. Þeim svíður hversu illa er komið fyrir hjónabandinu sem stofnun og því hafa þau orðið sammála um að Indriði sæki fundi hjá hópi karla sem ræða opin- skátt um stöðu karlmannsins í nútíma- samfélagi. Það gleður Sigríði þegar Indr- iði kemur heim af fundum, nokkurs vís- ari um karlímyndina, og segir henni að undirbúningur hópsins fyrir ferð- ina á karlaráðstefnuna í Osló næsta sumar sé vel á veg kominn. KJARTAN ÓLAFSSON (úr Laxdælu) Kjartan hefur þegar keppt á fernum Ólympíuleikum og er ekki hættur enn. Það fer reyndar ekki miklum sögum af af- rekum hans á leikunum og hefur það valdið þjóðinni nokkrum vonbrigðum, enda hafa miklar vonir verið bundnar við hann. Þó er ekki hægt að álasa Kjartani fyrir að hafa ekki unnið verðlaunapen- ing því meiðsl hafa háð hon- um á ögur- stundu og oft hefur keppni- sumhverfið ekki hentað honum, eins og hann hefur margoft tekið fram í viðtölum. En ekki er öll nótt úti enn og æfir markvisst fyrir fimmtu Ólympíuleikana sína. Hann lætur það ekki trufla sig við æfingar þó að úrtölumenn á borð við Önund Ásgeirsson skrifi í blöð og kvarti undan því hvernig sé mul- ið undir íþróttamenn. SALKA VALKA (úr Sölku Völku) Eftir erfið sambönd við karlmenn sem reynd- ust byggð á blekkingu einni hefur hún komist að því að það var ekki tilviljun ein sem réð því að hún klæddist karlmannsfötum ung stúlka. Hún hefur sagt smáborgaralegum viðhorfum stríð á hendur og er dugmikill talsmaður fyrir réttind- um fólks til að velja sjálft hvernig það kýs að haga sínu samlífi. Þá blöskrar henni mismunun- in, þögnin og skejdingarleysið sem ríkir um hag náungans á Islandi dagsins í dag. ÓLI (úr kvæðinu Snati og Óli) Eftir að hafa fengið látúnshálsgjörð besta vinar síns, Snata, að láni hélt Óli uppteknum hætti. Hann fékk lánað á báða bóga og borgaði aldrei aftur. Eða dettur nokkrum í hug að Snati hafi fengið kökuna? Ekki einungis urðu vin- ir hans fyrir lánafíkn Óla heldur og all- ar lánastofnanir sem starfræktar eru. Aldrei borgaði Óli nokkurn skapaðan hlut. Óla líður ekki vel með þetta en það er orð- ið of seint fyrir hann að iðr- ast. Enginn lánar Óla leng- ur. G ALDR A-LOFTU R Hann vekur hvarvetna athygli þar sem hann gengur um borgina í djúpum þönkum, svart- klæddur og þungur í fasi. Mörgum stendur stuggur af honum, ekki síst eldri konum, en margar yngri konur heillast af dulúðinni í fari hans. Loftur er spesíalisti í d u 1 - rænum fræðum, hann kann sinn Crowley utan að, og sumir segja að í hinum myrku vísindum eigi hann engan jafningja á Norðurlöndunum. En fræðin hafa þó ekki alltaf reynst honum vel því kona sem leigði honum kvistherbergi á námsár- um hans — áður en hann hrökklaðist úr skóla — lét læknavaktina sækja hann eftir að hafa fundið óþægilegan daun leggja úr herbergi hans. Var Loftur, gegn vilja sínum, lokaður inni á Kleppi um nokkurra mánaða skeið. Það varð þó frekar til að auka hróður hans í ýmsum kreðsum og er hann til dæmis sérstakur aufúsugestur við há- borðið á veitingahúsinu 22, þegar hann rekur þar inn svartar brýrnar. ÓLAFUR LIUURÓS (úr þjóðkvædi) Ólafur er náungi sem aldrei finnur frið í sálinni þegar konur eru annars vegar. Erfiðast (og best) finnst honum þegar á í hlut kona sem stendur í dyragætt og bendir honum vinsamlega að koma inn til sín. Þá er Ólafur á báðum áttum, hann veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga, en það er til- finning sem hann þekkir vel og vekur með hon- um nautnalega ráðleysiskennd. Vegna þess hversu fátíðar svona konur eru á íslandi eyðir Ólafur mestöllum tekjum sínum í ferðalög til út- landa. Þar er hann tíður gestur í rauðljósahverf- um þar sem hann stendur heilu kvöldin utan við dyr kvennanna sem vilja bjóða honum inn í hlýj- una með fyrirheitum og fagurgala, tvístígur og veit ekki hvort hann er að koma eða fara.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.