Helgarpósturinn - 07.12.1995, Síða 43
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995
viðtöl áður en endanleg
ákvörðun er tekin. Ég held að
það sé ekki nóg að kanna hug
fólks með einhverju krossa-
prófi, það þarf að ræða við
foreldra áður, og ég held ein-
mitt að Fjölskylduþjónusta
kirkjunnar sé nægilega hlut-
laus stofnun til að takast á við
það verkefni."
Guðfinna Eydal sálfræðing-
ur segir aðspurð það vera
grundvallarafstöðu að sam-
eiginlegt forræði, þar sem
börn eigi tvö heimili, sé ekki
heppilegt. „Slíkt getur hugsan-
lega gengið upp búi foreldrar í
sama hverfi og ef börnin eru
komin á þann aldur að þau
geti verið með í ráðum sjálf,
en ég myndi aldrei mæla með
slíkri forsjá fyrir Iítil börn,
sem þurfa stöðugleika. Ég úti-
loka samt ekki neitt, því svona
mál verður að meta hvert út af
fyrir sig með hagsmuni barns-
ins í huga.“
Guðfinna segir helminga-
skiptaforsjá þó geta verið af
hinu góða ef barn er jafn til-
finningatengt báðum foreldr-
um og ef báðir aðilar vilja
barninu mjög vel. Engu að síð-
ur þurfi að fara mjög vandlega
ofan í málið. „Á það má líka
benda að þótt vika og vika hjá
hvoru foreldrinu um sig geti
gengið vel um tíma þarf að
endurskoða slíka forsjá með
reglulegu millibili með þarfir
barnsins í huga.“
Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Hilmar Hjaltason ásamt dótturinni Onnu Björk. Þau eru ekki lengur fyrírmyndarpar
heldur fyrírmyndar fráskilið par. Þau eru sammála um að sameiginlegt forræði eða skipting í viku og viku hafi
veríð besta lausnin í stöðunni. Eftir að hafa skipt fæðingaroríofinu á milli sín gátu þau hvorugt hugsað sér að
annað þeirra fengi fullt forræði.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir deilir forræði með Hilmari
Verðum að gefa eftir
forréttindi okkar
Það kom aldrei neitt ann-
að til greina en sameigin-
leg forsjá. Annað hefði
verið ósanngjarnt, því ég og
minn fyrrverandi litum strax
svo á að það væri sameiginleg
ábyrgð okkar að eignast barn,“
segir Jóhanna Vilhjálmsdótt-
ir, þula og stjórnmálafræði-
nemi, en hún og barnsfaðir
hennar, Hilmar Hjaltason,
slitu sambúð fyrir ári.
Áður en dóttirin Anna Björk
fæddist fyrir um tveimur og
hálfu ári urðu þau ásátt um að
skipta fæðingarorlofinu um
það bil jafnt á milli sín og
ákveðið var að Jóhanna hæfi
vinnu sex vikum eftir fæðing-
una. Þess má geta að þá og
undanfarin sumur hefur Jó-
hanna starfað sem flugfreyja
hjá Flugleiðum. Það starf býð-
ur upp á þokkalegan sveigjan-
leika og hentaði því vel nýorð-
inni móður. „Þótt aldrei hafi
neitt annað komið til greina af
minni hálfu en sameiginlegt
forræði olli það mér auðvitað
togstreitu að þurfa að horfast í
augu við að geta ekki haft hana
alltaf hjá mér. Á móti kemur að
mér líður samt mjög vel með
þá tilhugsun að hún fái tæki-
færi til þess að kynnast föður
sínum jafn vel og mér.“
Vika og vika
Formið sem þau Hilmar hafa
á hinni sameiginlegu forsjá er
að hvort um sig hefur dóttur-
ina hjá sér viku í senn og segir
Jóhanna það hafa gengið von-
um framar, þrátt fyrir að þau
hafi rennt blint í sjóinn með
þá ákvörðun. „Það hefur alltaf
staðið til að við leituðum ráð-
gjafar, en vegna þess hve allt
hefur gengið vel höfum við
ekki látið verða af því enn. Að
barnið sé sátt við þetta skiptir
höfuðmáli. Við höfum líka
reynt að samræma uppeldis-
reglur þannig að hún upplifi
ekki eitt hér og annað þar. Og
sem betur fer get ég ekki ann-
að séð en að hún sé eins og
hvert annað barn.“
Jóhanna viðurkennir að hún
hafi víða fengið að heyra að
þetta sé „alltof mikið rót fyrir
barnið" og „barnið verður að
hafa einn samastað". „Þessar
neikvæðu raddir eru þó ekki
nema eðlilegar, þar sem
normið hefur verið allt annað
til þessa. Ég hafði heyrt um
sameiginlegt forræði en
þekkti engan sem stóð í slíku,
þannig að auðvitað tókum við
áhættu, en sem betur fer hef-
ur allt gengið vel.“
Góð vinátta Jóhönnu og
Hilmars endurspeglast meðal
annars í því að hún gerir sér
oft ferð til feðginanna þegar
þau eru saman og syngur
dóttur þeirra í svefn með
„Jesú bróðir besti". „Hilmar
kemur hins vegar sjaldan til
okkar mæðgnanna núorðið,
eftir að ég fór aftur í sambúð.
Það breytir því ekki að hann
hringir oft og spjallar við
Önnu Björk í síma.“
Konur rétthærri
en karlmenn
En svo við komum inn á
annan vinkil í lífi Jóhönnu,
sem ef til vill skýrir að hluta
hennar frjálslyndu viðhorf,
má geta þess að hún er ein af
þeim sem starfað hafa af mikl-
um móð með Sjálfstæðum
konum, janfréttishreyfingu
Sjálfstæðisflokksins. Sem slík
viðurkennir hún líka — en
með örlítilli glettni samt — að
hún geti ekki verið þekkt fyrir
annað, sem talsmaður jafn-
réttis og jafnra tækifæra kynj-
anna, en að taka upp sameig-
inlegt forræði. „Að öllu gamni
slepptu held ég að það sé ekki
raunhæft að tala um jafnrétti
á vinnumarkaðnum, bæði til
launa og vinnu, nema áherslu-
punkturinn sé á jafna ábyrgð
foreldra inni á heimilunum.
Ef við skoðum lagalegu
stöðu kynjanna kemur í ljós
að konur eru mun betur
staddar en karlmenn. Á með-
an varla er unnt að finna
dæmi um lagalegan mismun
kynjanna körlum í hag er svo
komið að finna má nokkurn
fjölda lagaákvæða þar sem
konur eru rétthærri en karlar.
Hilmar Hjaltason deilir forræði meö Jóhönnu
Sameiginlegt
forræði kallar
á tillitssemi
Hilmar Hjaltason, fyrrver-
andi sambýlismaður Jó-
hönnu og barnsfaðir, segir að
forsenda þess að þau ákváðu
að deila með sér forræðinu sé
að hann hafi tekið fæðingaror-
lof til jafns við Jóhönnu. „Þar
til við skildum hafði ég annast
Önnu Björk til jafns við Jó-
hönnu og því var sameiginleg
forsjá ekki nema eðlilegt fram-
hald mála. Annað kom aldrei
til greina."
Þau Jóhanna létu aldrei erf-
iðar tilfinningar, sem yfirleitt
fylgja skilnaði, hafa áhrif á
framtíð barnsins. „Það fylgdi
því auðvitað tregi að skilja en
ákveðinn léttir líka, því sam-
bandið gekk ekki upp. Við höf-
um eðlilega oft á þessu eina ári
þurft að gera málin upp, en ég
held að það, að skipta uppeldi
barnsins jafnt á milli okkar,
hafi ýtt undir það strax í upp-
hafi að við létum aldrei vaða
heldur sýndum hvort öðru til-
litssemi og töluðum saman af
skynsemi."
Hilmar viðurkennir að hann
hefði heldur viljað hafa málin
þannig að Anna Björk hefði
tækifæri til að alast upp með
báðum foreldrum sínum og
mælir því ekki með skilnaði
fyrr en í lengstu lög. „Eins og
Jóhanna vil ég auðvitað alltaf
hafa hana hjá mér, en eins og
málum er háttað er ég ekki í
vafa um að sameiginleg forsjá
er besta lausnin fyrir alla, ekki
síst fyrir dóttur okkar. Ég ein-
hvern veginn ímynda mér að
hefði ég bara orðið helgar-
pabbi væri ég alltaf í vörn. Með
þessum hætti hef ég meira um
líf Önnu Bjarkar segja. Á móti
kemur líka að bæði ég og Jó-
hanna höfum tækifæri til að
gera eitt og annað sem við gæt-
um ekki gert ef annað hvort
okkar sæi nær alfarið um barn-
ið.“
Meðlagið látið
niður falla
Samkvæmt lögum verður
Anna Björk að hafa lögheimili
hjá öðru hvoru foreldrinu. í
hennar tilfelli kusu þau að hafa
lögheimilið hjá móður hennar.
Og þar sem málum er svona
háttað komust foreldrarnir að
samkomulagi um að meðlagið
yrði látið niður falla. „Ég geri
mér samt fyllilega grein fyrir
því að ef það kastaðist í kekki
milli mín og Jóhönnu með for-
sjána yrði rétturinn alfarið
hennar megin. Þrátt fyrir að
lögin kveði á um sameiginlegt
forræði hefur það sýnt sig að
konur eru rétthærri en karlar
gagnvart afkvæmum sínum.“
Þótt skiptingin sé í grófum
dráttum vika og vika gengur
sameiginlega forræðið þó ekki
svo langt að þau breyti ekki
stundum til, til dæmis verður
skiptingin öðruvísi um hátíð-
irnar og þegar Anna Björk veik-
ist er það ekki svo að sá, sem
Dæmi um það er fæðingaror-
lofið, sem hlýtur að skipta
mjög miklu varðandi jafna
ábyrgð forelda á heimilum og
svo varðandi forsjá barna,
sem enn er í flestum tilfellum
konum í hag. Auðvitað eru
það ekkert annað en forrétt-
indi að geta verið með börn-
unum sínum, en þetta er nokk-
uð sem margar konur vilja
ekki missa og halda því sem
fastast í. Einmitt þetta held ég
að hafi haft hvað mest áhrif á
stöðu kvenna í þjóðfélaginu.
er með hana einmitt þá vikuna,
taki sér alfarið frí til að sinna
henni heldur skiptast þau á
um það. „Samkomulagið á milli
mín og fyrrverandi tengdafor-
eldra minna er líka það gott að
ég get leitað til móður Jó-
hönnu og systur til jafns við
móður mína ef svo ber undir.“
Mikil breyting verður oft í lífi
barna þegar þau byrja í skóla
sex ára, en hefur það eitthvað
verið rætt? „Við höfum aðeins
rætt það og komist að þeirri
„...égmyndi aldrei
mœla með slíkri forsjá
fyrirlítil börn sem þurfa
stöðugleika. “
niðurstöðu að þar verðj hún
að fá að ráða einhverju sjálf.
Þá kemur kannski að því að
maður þurfi að láta f minni
pokann fyrir eigingirninni, því
ég á von á að þá þurfi Ánna
Björk fastan samastað. En hver
veit nema vandamálið leysist
óvænt með því að við Jóhanna
flytjum í sama hverfi. Annars
er ómögulegt að sjá það fyrir.
Ég gæti þess vegna verið kom-
inn í samband við konu í svip-
aðri aðstöðu og ég,“ segir
Hilmar kíminn.
Ekkert hrifínn af samúð
annarra
Líkt og Jóhanna hefur Hilm-
ar fengið að heyra að fólk, sér-
staklega eldra fólk, sé ekki par
hrifið af þessum „tætingi á
barninu". „Foreldrar okkar
styðja við bakið á okkur en
segja gjarnan en samt, en
samt... Annars fæ ég iðulega
að heyra hvað ég sé duglegur á
meðan Jóhanna fær gjarnan að
heyra: Hvernig gastu gert
þetta?! Ég verð nú að segja að
ég er ekkert ofsalega hrifinn af
því að fá samúð annarra.
Ólíkt Jóhönnu fann ég samt
fyrir tortryggni í minn garð
þegar við sóttum um leikskóla-
pláss fyrir Önnu Björk. Þegar
ég hringdi til að ítreka málið
kom hik á liðið og ég fékk á til-
finninguna að þau þarna hin-
um megin væru að velta því
fyrir sér hvort við værum að
svindla á kerfinu og værum
enn saman. Menn eru greini-
lega ekki vanir því að gott sam-
komulag ríki milli fólks.“
En það er ekki allt á þennan
veg, því vinnuveitendur Hilm-
ars í Tékkkristal hafa sýnt hon-
um mikinn skilning. Það var til
dæmis ekkert vandamál fyrir
hann að fá fæðingarorlof, auk
þess sem ekkert stendur í vegi
fyrir því að hann láti sig hverfa
frá vinnu fyrir klukkan fimm þá
daga sem hann er með dóttur-
ina. „Á móti kemur að ég vinn
meira þegar ég er ekki með
hana, þó ekki miklu meira.“
Ef við konur viljum í raun
njóta sömu tækifæra og karl-
menn á vinnumarkaði verðum
við jafnframt að vera tilbúnar
að gefa eitthvað eftir af þess-
um forréttindum okkar. Að
mínu mati er grundvallarfor-
sendan fyrir því að staða
kvenna á vinnumarkaði batni
sú að karlmenn auki þátt sinn
í heimilisstörfum. Þetta er
samt eitthvað sem hver og
einn verður að ákveða fyrir
sig, því auðvitað eru aðstæð-
ur fólks mismunandi.“
Bíóborgin
Dangerous Minds ★* Michelle
Pfeiffer reynir að bjarga ungling-
um í stórborgarslömmi með því
að kenna þeim ljóð. Ósköp vel
meint.
Showgirls 0 Ljót, löng og leiðinleg
mynd um andstyggilegt fólk. Nóg
er af holdinu — en hvað með það?
Brýrnar í Madisonsýslu The Bridges
of Madison County ★** Clint
hefði kannski mátt skjóta smá, en
gerir þetta samt fjarska vel.
Bíóhöllin
Benjamín dúfa **** Hugljúf
mynd sem rambar stundum á
barmi tilfinningaseminnar en dett-
ur þó aldrei fram af.
Netiö The Net ★* Sandra Bullock
er.sæt og tæknin voða ný, en það
kviknar aldrei í púðrinu.
Ógnir í undirdjúpunum Crimson Tide
*★* Smart mynd en hljóðið er
smartast. Gefið því eyra.
Háskólabíó
Jade * Óspennandi tryllir sem
dregst skelfilega á langinn og lofar
mikíu meiru en hann getur staðið
við.
Fyrir regniö ***** Gagnmerk
og átakanleg mynd sem lýsir því
hvernig kynþáttahatur eyðileggur
gamalgróið samfélag á Balkan-
skaga.
Glórulaus Clueless ★*★*
Alicia Silverstone er æðisleg
smápía og stelpurnar eru sætar,
klárar og klikkaðar. Ferlega sniðug
mynd.
Aö lifa
*****
Epísk og stórbrotin mynd þar sem
er rakið líf falleraðrar landeig-
endafjölskyldu á tíma Maós for-
manns. Fyrir bíófólk en þó ekki
síður áhugamenn um sagnfræði.
Apollo 13 **** Tæknin er stór-
kostleg en það er maðurinn sem
er mesta undrið.
Vatnaveröld Waterworld ** Kevin
Costner er með tálkn og sundfit,
kannski háir það honum svolítið.
Laugarásbíó
Hættuleg tegund Species **
Einhvers staðar á milli Aliens og
Invasion of the Body Snatchers —
og ansi slepjulegt.
Einkalíf ** Þráinn er eins og full-
orðinn maður sem villist óboðinn
inn í partí hjá unglingum — en
reynir að þrauka.
Regnboginn
Kids ★ Sérdeilis óskemmtileg
mynd um unglingalýð í stórborg.
Mikið aí hálfberum smástrákum,
en myndin hefur varla annan til-
gang en að hneyksla.
Un coeur en hiver *** Listræn
frönsk mynd sem gætir þess
máski fullmikið að vera hrein í
stílnum, en launar manni samt
þolinmæðina.
Aö yfirlögöu réöi Murder in the First
★ ** Nöturleg mynd um dóms-
morð og niðurlægingu. Kevin Ba-
con er átakanlegur að sjá.
Braveheart *** Mitt í blóðinu og
forinni nær Mei Gibson að kveikja
í þessu líf. Það leynir sér ekki
hvað hann er vel heppnaður
tappi.
Sagabíó
Dangerous Minds ** Michelle
Pfeiffer reynir að bjarga ungling-
um í stórborgarslömmi með því
að kenna þeim ljóð. Ósköp vel
meint.
Hundalíf 101 Dalmatians ***
Hundarnir eru ósköp sætir en
kvenvargurinn svakalegt flagð.
Stjörnubíó
Benjamín dúfa *★** Strákarnir
fjórir leika af innlifun og sannfær-
ingarkrafti — sem einkennir raun-
ar myndina aila.
Tér úr steini ***★ Fín mynd og
á allt annan hátt en þær íslensku
bíómyndir sem rísa undir nafni, al-
vörumeiri, vandaðri, stærri í snið-
um.
Netiö The Net ** Sandra Bullock
er sæt og tæknin voða ný, en það
kviknar aidrei í púðrinu.