Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 45

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995 45 4 '« 4 4 i 4 4 f I j| jörg Ingadóttir tískuhönnuður er önnur tveggja . kvenna sem reka verslunina Spakmannsspjarir 'við Þingholtsstræti. Þess misskilnings gætir víða að verslunin sé í senn tískuverslun og saumastofa sem sáumi eftir höfði fólks. „Við ætlum að vera leið- andi. — ekki láta fólk leiða okkur,“ segir Björg ákveðin. „Ef fatnaðurinn sem við eigum fyrir passar ekki, eða fer Íekki vel þeirri sem þó langar í hann, lögum við hann hins vegar að manneskjunni, tii dæmis með því að víkka hálsmál, þrengja og svo framvegis. Ég og Val- gerður Torfadóttir erum jafnframt hönnuðir sem er- um til taks og leiðbeinum fólki við fataval. En það er af og frá að við störfum þannig að það geti komið til okk- ar manneskja og beðið okkur að sauma kjólinn sem hún sá í Vogue.“ Eins og við var að búast gengur Björg eingöngu í eig- in fatnaði, fyrir utan auðvitað skó og nærfatnað. „Þar sem ég er útivinnandi og ofboðslega upptekin kona kýs ég að vera þægilega klædd en um leið svolítið töff; ég vil í senn vera fín og pínulítið drusluleg. Ef konur sa ekki upp á hina hárfínu línu á milli þess að vera r og smart eiga þær á hættu að verða afar kerling- legar. Það er nefnilega nauðsynlegt að hafa pínulít- inn húmor í klæðaburði.“ Þessum húmor segist Björg reyna að ná fram með því að brjóta upp aðferðir í saumaskap og velja saman óhefðbundin efni, henni er enda lífsnauðsynlegt að finna ódýrar vinnsluleiðir við að gera flíkur sem eru samt sterkar og endingargóðar. Sem dæmi má nefna að Björg og Valgerður hafa að undanförnu eytt drjúgum tíma í að endurvinna gamlan herrajakkafatalager í dömudragtir. Björg hefur smátt og smátt, á þeim rúmum tveimur árum sem hún hefur rekið Spakmannsspjarir, náð að skapa sér nafn sem tískuhönnuður. Það sem lýsir •'innski þankagangi hennar best er að hún hefur ekki luga á að vera ein af þeim konum sem fá strax at- ygli. „Mig hefur aldrei langað til að vera þessi í rauða rönga flegna kjólnum, af því einfaldlega að mér finnst sú kona hallærisleg. Ég hef aldrei kunnað að meta þessa pússí-tísku. Heldur vil ég vera sú kona sem fólk tekur eftir með tíð og tíma af því hún er smart. Ég vil þó taka fram að mér finnst ekkert ljótt. Allt getur orðið flott setji maður flíkurnar rétt sarnan." Dulan? „Þetta er bara efnisstrangi sem við höfum saumað úr buxur, skyrtur og pils. Ég vona að fólk fari ekki að panta nákvæmlega þennan „kjól“. En ef til vill sauma ég mér jóladressið úr þessu efni. Svo mikið er víst að ég — fatafíkillinn — fer ekki í jólaköttinn.“ Asgeir Oskarsson. „En ég er ekkert sérlega kómersíal og það er ekkert hver sem er opinn fyrir því að gefa mann út.“ Ásgeir Óskarsson, sem margir telja trymbil nr. 1 á Islandi, var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu. I kvöld verða útgáfutónleikar þar sem fram kemur landsliðið í poppi — hvorki meira né minna. „Þetta er heilmikið málu Allt frá því Ásgeir Óskarsson kom fyrst fram á sjónar- sviðið, í kringum 1970 í hljóm- sveitunum Mods, Trix og síðan Rifsberju, hefur hann verið í fremstu röð trommuleikara. Það má tíðindum sæta að þessi snjalli trymbill er nú að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu — Veröld stór og smá. „Þetta er svona prógressíft popp. Annars á ég mjög erfitt með að lýsa þessu sjálfur," segir Ásgeir, en hann verður með útgáfutón- leika í kvöld í Loftkastalanum. Ásgeir gefur plötuna út sjálf- ur og þarf að standa í öllu því sem fylgir útgáfustússinu. Þó að hann hafi starfað sem at- vinnutónlistarmaður í ein 25 ár samfleytt er þetta nýtt fyrir honum. „Ég hef alltaf haft einhverja aðra menn í þessu. Og það hef- ur ekki staðið á mér að kvarta og kveina ef mér hefur ekki fundist þeir standa sig nógu vel. Ég hef oft verið óánægður og ekki skilið neitt í af hverju þetta getur ekki verið svona og svona; Ég segi ekki neitt næst,“ segir Ásgeir nánast afsakandi. Það hefur ekki farið hátt, en Ásgeir hefur fengist við að semja tónlist í þrjátíu ár. „Fyrsta lagið var á Pelican-plöt- unni Uppteknir og hét „How do I get out of New York City?“. „Það var svona frasalag með trommusólói," segir Ásgeir. Og þá er tónlistarmönnum minnis- stætt lagið „Þögull eins og meirihlutinn" sem Ásgeir gerði við texta Einars Más og Þursa- flokkurinn tók á pönktímabil- inu. Bæði þessi lög ætla Ásgeir og hans menn að taka á tónleik- unum, auk þess sem flutt verða óútkomin lög sem og að sjálf- sögðu þær tónsmíðar sem finna má á nýju plötunni. Ásgeir segir það ekkert eins- dæmi að trommuleikarar semji lög og nefnir Rabba og Sigga Karls sem dæmi. Gamli Þokkar- bótarjálkurinn Ingólfur Steins- son semur alla textana á plöt- unni. Ásgeir segir aðspurður að hann viti ekki hvernig það hefði reynst að fá verðlaunaskáldið Einar Má til verksins. „Þögull eins og meirihlutinn var samið við textann. Þetta voru allt lög sem mig vantaði texta við. Ég veit ekkert um það hvernig Ein- ari hefði gengið með það. Hann er náttúrlega skáld en ekki textasmiður.“ Ásgeir á efni á þrjár til fjórar plötur til viðbótar en segist þó ekki vita hvenær hann ráðist í gerð næstu piötu. „Þetta er heilmikið mál. Ef ég gæti fengið útgefanda myndi ég byrja strax á nýju ári. En ég er ekkert sér- lega kómersíal og það er ekkert hver sem er opinn fyrir því að gefa mann út.“ jbg Bakhliðin • Jón Gnarr atferiisfræðingur: Biskupinn skuldar mérpylsu ogkók Finnst þér vanta veitinga- staði í miðborgina? „Mér finnst að Feiti dvergur- inn mætti vera víðar.“ Hvert er mest góðmenni nú- lifandi íslendinga? „Hallbjörn Hjartarson vinur okkar allra. Eða gleðigjafinn André Bachmann. Það er ekki til neitt illt í honum.“ Hvort vildirðu heldur vera Felix Bergsson eða Gunnar Heigason? „Hverjir eru það?“ Hvaða hlutur i þinni eigu er í mestu uppáhaldi? „Macintosh-tölvan mín.“ Hvor finnst þér sætari, Silja Aðalsteinsdóttir eða dr. Sig- rún Stefánsdóttir? „Silja. Hún er stórglæsileg kona.“ Hvort finnst þér Eirikur betri sem útvarpsmaður eða sjón- varpsmaður? „Mér finnst hann njóta sín betur í sjónvarpi en þó finnst mér hann albestur í heita pottinum í Vesturbæjarlaug- inni.“ Hver er skemmtilegasta starfsstéttin? „Tæknimenn ýmiss konar. Mér finnst þeir alveg indælir og ótrúleg kraftaverk sem þeir geta unnið á skömmum tíma. Og lögfræðingar." Heldurðu að Bjami Ara eigi eftir að ná hápunkti ferils síns? „Hann er iiðinn." Ef Anna Kristine myndi hætta sem útvarpsmaður, hvað ætti hún þá að taka sér fyrir hendur? „Anna Kristine má bara ekki hætta í útvarpi. Ef það gerist þá drep ég mig.“ Hvaða fþróttamaður er van- metnastur að þfnu viti? „Þeir eru nú ofmetnir flestir. Sjálfur held ég með Póllandi í öllum íþróttagreinum en ég sjáifur er mjög vanmetinn. Ég hef reynt fyrir mér en komst aldrei í liðið og virðast flestir búnir að gleyma því að það var ég sem skoraði mark Kjal- arneshrepps gegn Kjósarsýslu árið 1978 og tábrotnaði S leið- inni.“ Finnst þér Guðmundur Andri Thorsson myndarlegur mað- ur? (Ef svo er — hvað er það einkum sem gerir hann að þessu glæsimenni?) „Æinei. Mér finnst hann nú ekkert glæsimenni." Hvað myndirðu gefa Kaila i Pelsinum f afmælisgjöf ef hann byði þér f afmælið sitt? „Flösku af Admiral. Það má drekka það þegar ekkert ann- að er til.“ Hver er eftirlætisþulan þín? „Gerður G. Bjarklind, tvímæla- laust. Það er þuia sem ber af öðrum þulum og mætti heyr- ast á öðrurn útvarpsstöðvum. Það er þula sem aðrar þulur mættu taka sér til fyrirmynd- ar.“ Af hveiju hefur enginn stungið upp á dr. Ottari Guð- mundssyni sem næsta for- seta? „Ég hef margoft stungið upp á honum. Meira að segja lagt að honum og hvatt hann í fram- boð. Óttar má vita það að ef hann býður sig fram á hann allan minn stuðning. Hann er miklu fýsilegri kostur en bisk- upinn, sem skuldar mér alltaf pylsu og kók.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.