Helgarpósturinn - 07.12.1995, Side 47

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Side 47
FlMIVmiDAGUR 7. DESEMBER1995 47 1. í hvaða kirkju á Vesturlandi er fræg altarisbrík frá því fyrir siðaskipti sem var sýnd á heimssýningunni í París árið 1900? 2. íslenskur fótboltamaður lék um tíma með Glasgow Ran- gers, en hér heima spilaði hann með KR. Hann heitir? 3. Þessi náungi er einhver frægasti njósnari allra tíma, Breti sem flúði land og gerðist Sovétborgari. Hann hét? 6. Hvað heitir áin sem rennur í gegnum Varsjá og til norðurs út í Eystrasalt? 7. Hvað hét þessi franski kvik- myndaleikstjóri, sem var einn af frumkvöðlum „nýbylgjunn- ar“ en náði kannski mestri frægð þegar hann lék í mynd Spielbergs, Close Encounters of the Third Kind? 8. Hvaða ár urðu Edmund Hill- ary og Tenzing Norgay fyrstir manna til að klífa Everest-tind? 4. Hver er höfundur sögunnar um Frankenstein, sem ótal kvikmyndir hafa verið gerðar eftir? 5. Einn þekktari lærisveina Jesú var Jóhannes, en hvað hét bróðir hans, sem líka var lærisveinn? 9. Haft er fyrir satt að Halldór Laxness hafi setið við Miðjarð- arhafið, nakinn með einglyrni, og skrifað Vefarann mikla frá Kasmír. í hvaða borg? 10. Af hverju dregur Baróns- stígur í Reykjavík nafn sitt? 11 . Þessi kanadíska söngkona er meðal annars fræg fyrir að hafa samið lagið Woodstock og plötuna Blue. Hún heitir? 12. Um hvern orti Jóhann Sig- urjónsson kvæðið sem byrjar svona: Dregnar eru litmjúk- ar/dauðarósir/á hrungjörn lauf/í haustskógi? 'uossuiuSneH seuof 'z\ •||3M0i!H| |U0f -n ■jeij ifsiaj ‘lufeu ge nea|||og ‘uo -jeq jnqsuejj uias nuisolfsupjeg fv '0T 'Xaipiis b euiuuoex '6 '£S6I '8 ‘fneffnjx sioíubjj 'i ■einjsiA '9 ■qoi|ef 's ■XaiiaqS Xjbw 't- ■Xqimd ui|H •£ ■qoaa jnjipjpd ■pupjfssgjeqs e nft|j|)|spje)|s I 'I nieg||o>j gjA joas Vín vikunnar Loksins kominn ákrana Um helgina sannaðist enn og aftur að írar og íslendingar eru skyldir: Eftir að skrúfað var frá Guinness-krana í fyrsta sinn hér á landi, nánar til- tekið á nýja írska pöbbn- um Dubiiner í Hafnarstræti, má heita að runnið hafi stans- laust úr honum fram á sunnudagskvöld. Þeim sem kunna hvað best að lesa í þjóðarsálina kom þessi maltbjórsþorsti íslend- inga ekki á óvart, — íslendingar eru jú flestir aldir upp á Egils- maltöli. Þótt öðru sé kannski ekki saman að jafna en maltbragðinu má geta þess að íslenskt malt og mjólkurblandaður Guinness eiga það sameiginlegt að hafa um ára- bil verið aufúsugestir í nestisbox- um skólabarna. Kemur það til af því að Guinnessinn þykir afar nær ingarríkur, en hann er sérstak- lega járnríkur, og hafa írskir læknar löngum mælt með Gu- inness við slappleika. Fyrir fólk sem gjarnt er á að fá bjórvömb má einnig geta þess að mun færri kaloríur eru í Guinness en venju- legum bjór, auk þess sem þemba er ekki fylgifiskur þess dökka. Guinness fæst reyndar einnig á flöskum í ríkinu og kostar kippan 900- kall. Sérfræðingarnir segja hann þó ekki nándar nærri eins góðan á flösk- unum og úr krana. Magnus Axelsson. „Svo er þetta eiginlega smáskot á Reif í þetta og hitt — safnplötur sem tröllrið- ið hafa markaðnum undanfarið en ekki haft neitt nýtt fram að færa.“ framtíðinni? „Ja, ég geri mér að sjálfsögðu vonir um að leggja undir mig ís- lenska útgáfubransann eins og hann leggur sig. Það er kominn tími til að útgáfufyrirtæki gefi ungum tónlistarmönnum tæki- færi því það er meira en nóg af góðum hljómsveitum að spila inni í bílskúr, hljómsveitum sem þora ekki að koma fram í dags- ljósið vegna þess að útgáfustarf- semi er í svo stöðluðum far- vegi.“ Magnús er á því að ef hann hefði tekið þann kostinn að gefa út þekktari listamenn þá hefðu þeir krafist þess að meiri pen- ingar yrðu lagðir í útgáfuna — peningar sem ekki var til að dreifa. „Svo þekki ég fólk í flest- um þessara hljómsveita. Ég hringdi í meðlimi og bað þá að leggja til efni. Síðan spurðist það út og fleiri hringdu. Þannig vatt þetta upp á sig.“ Hvað kostar svona fyrirtæki? Magnús segir að fyrirtækið hafi kostað sig kvartmilljón og diskurinn sé gefinn út í fimm hundruð eintökum. Hærra var ekki hægt að fara, því fjármagn- ið þraut. „Ég geri mér vonir um að selja það. Síðan sér maður til. Ef vel gengur má kannski gefa út meira.“ Magnús er reyndar í þremur þeirra hljómsveita sem koma fram á diskinum (Dýrðin, Sovk- hoz, Gísli, Eiríkur og dr. Helgi), en hann spilar á bassa og trommuheila. Og hann neitar því ekki heldur aðspurður að nafnið Strump í fótinn sé nett skot: „Safnspólurnar sem ég gaf út hétu Strump og þetta er eðli- legt framhald. Svo er þetta eig- inlega smáskot á Reif í þetta og hitt — safnplötur sem tröllriðið h^fa markaðnum undanfarið en ekki haft neitt nýtt fram að færa.“ JBG Magnús Axelsson er líkast til yngsti plötuútgefandinn á íslandi — aðeins 22 ára. Sam- hliða því að reka útgáfustarf- semi starfar hann sem tækni- maður á röntgendeild Landspít- alans. Nú fyrir þessi jól gefur Magnús út safndiskinn Strump t fótinn en þar má finna tólf hljómsveitir sem flytja alls ní- tján lög. Hljómsveitirnar eru ekki þekktar meðal almennings — flokkast sem neðanjarðar- hljómsveitir. Þekktasta númerið er Heiða og þá sem trúbador! „Þarna má finna surfrokk, ambi- ent-tölvupopp, trúbadortónlist, rokkabillí...“ segir útgefandinn ungi aðspurður. Hann segist vera að láta gamlan draum ræt- ast jafnframt því að bjarga skemmtilegum lögum sem ella ættu á hættu að falla í gleymsk- unnar dá. Magnús byrjaði á að gefa út safnspólur árið 1991 en nú er hann að færa útgáfuna í sölu- vænlegra horf með því að gefa út disk. Það lítur allt út fyrir að Jón Ólafsson megi vara sig í Yngsti útgefandi á landinu gefur út safndisk þar sem finna má neðanjarðartónlist af ýmsu tagi. Hann segir tíma til kominn að útgáfufyrirtæki gefi ungum tónlistarmönnum séns. Ætlar að leggja undir sig útgáfu- bransann HP mælir með: Það er sárafátt um fína drætti á dagskrá RÚV núna í upphafi sjálfs sjónvarpsmánaðarins fyrir utan nokkra fasta clagskrárliði á borð við Guiding Light á fimmtu- og föstudag, Tinna og Strandverði á laugardag og Radíus á laugardags- kvöld. Einkennilegt að bregð- ast við aukinni samkeppni á þennan veg. Ætli þetta sé eitt- hvert nýtt trix hjá Heimi: Að drepa alla samkeppni með ein- skærum leiðindum? Eða er hann með þessu að benda fólki á að hugieiða jólaboðskapinn í ró og næði? Þetta hlýtur að vera lognið á undan stormin- um. Cariito’s Way ★★★1/2 (Stöð 2 fim. 23.30) A1 Pacino leikur krimma eins og honum einum er lagið og Sean Penn af öilum mönnum ieikur dóphioss eins og engill. Lögreglustöðin (Stöð 3 fös. 20.20) Breskir grínþættir með Ro- wan Atkinson — hinum sér- deilis leikna grínista sem var í aðalhlutverki í The Biack Ad- der. Haligrímur Heiga (Stöð 2 fös. 20.25) Upptökur frá standgrínspró- grammi altmúlígmannsins Hallgríms frá því fyrr í vetur. íslensk dagskrárgerð á Stöð 2? Horror of Dracula ★★★ (RÚVfös. 23.20) Enn ein svarthvít á f ös t u d ags- kvöldi. Bresk frá árinu 1957, byggð á Dra- kúla greifa eft- ir Bram Stoker. Gamli skelfir- inn Cristopher Lee leikur í myndinni. Rolling Stones - órafmagnaðir (Stöð 2 lau. 13.25) HP varar við Intersection (Stöð 2 lau. 21.25) Sápa þar sem Gere þarf að velja á miili Stone, sem leikur vinalega eiginkonu til tilbreyt- ingar, og Davidovich, sem leik- ur hjákonuna. Æi. Hönd á plóginn (RÚVsun. 13.35) Þáttur um atvinnumál þroskaheftra gerður af nem- endum í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla íslands. Police Academy 5 (RÚVsun. 15.30) Atnerískur aulahúmor eins og hann gerist verstur. HP leyf- ir sér að halda því fram að myndin hafi beinlínis skaðleg áhrif á smekk fólks. Það ætti að banna myndina innan sextán. Myndin var áður á dagskrá 1993 og það vekur furðu að það skuli ákveðið að endur- sýna þessa hörmung. Sjónvarpsmaður vikunnar Ragnheiður Elín Clausen Þær eru margar framúrskar- andi þulurnar hans Heimis en engin er þó eins fjallmyndar- leg, alúðleg og hressileg í bragði og hún Ragnheiður Elín. Það er eins og hún sé í per- sónulegu sambandi við hvern og einn sjónvarpsáhorfanda og út frá því atriði mætti hún huga að því að breyta upphafs- ávarpi sínu úr: „Komið þið nú öll hjartanlega sæl og bless- uð!“ f: „Komdu nú heill og sæll, kæri sjónvarpsáhorfandi!" Þá sakar ekki að hún er af góðum ættum og ber það með sér að hún hefur gengið í einkaskóla víða um heim. Með fullri virð- ingu þá mættu hinar þulurnar taka hana sér til fyrirmyndar hvað menningar- og fagmann- legt yfirbragð snertir. Og ef ekki er þegar búið að ganga frá vaktafyrirkomulaginu yfir há- tíðirnar þá er þeirri ósk hér með komið á framfæri að hún verði á skjánum á jóladag. sjonvarp 4 LAUGARDAGUR Deep Jimi, þessi dúndurgóða keflvíska sveit, heldur kynningar- tónleika vegna nýrrar plötu. Karma og Bjöggi Hall- dórs með dansleik og stórsýningu á Hótel Is- landi. Enn eru gömlu góðu dagarnir rifjaðir upp. Hálft í hvoru og ör- ugglega einhver jólalög á Kaffi Reykjavík. Stefán Jökulsson og Raggi Bjarna aftur á Mímisbar og í enn meira jólastuði. Saga Klass og fleiri koma fram í Súlnasaln- um. Sól Dögg heldur því fram að hún sé eitt besta dansbandið í bæn- um. Við skulum vona það. Á Gauknum. Djassbandið, nú af fingrum fram á Blús- barnum. SUNNUDAGUR Páll Óskar, Emilíana, Kolrassa krókríðandi, Borgardætur, Caput, Bubbi og fleiri koma fram í „Veislu til vernd- ar mannréttindum" í ís- lensku óperunni. Skemmtunin er á vegum Samtakanna ‘79, sem enn berjast fyrir sínum mannréttindum og eiga Iangt í land. Carl Möller, Guð- mundur Steingrimsson og Róbert Þórhallsson koma fram á sérstakri ljóða- og djasshátíð í Hafnarborg í kvöld. Bjami Ara og Grétar Örvars bæta hvor ann- an upp. Á Kaffi Reykja- vík. Sól Dögg heldur von- andi áfram að véra „besta dansbandið í bænurn". Aftur á Gaukn- um. SVEITABÖLL Skálafell, Mosfellsbæ Jólaæði verður með hin- um kímna Sixties-flokki á föstudagskvöld. Sól- strandargæjarnir, sem einnig eru nýbúnir að gefa út plötu, leika á laugardagskvöld. Hótel Akranes Enn meira „Jólaæði" og enn meira Sixties á laugar- dagskvöldið. Apple-umboðið hf. Skipholti 21, simi: 511 5111

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.