Helgarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 48
HELGARPOSTURINN
Rassía' skattrannsóknarmanna
á vegum Skúla Eggerts
Þórðarsonar í veitingabrans-
anum um daginn, sem HP skýrði
frá, skaut mörgum veitingamannin-
um skelk í bringu. Einn viðmælandi
HP, sem rekur mjög vinsælan veit-
ingastað, fullyrti að það væri nán-
ast ógjörningur að ná endum sam-
an í rekstrinum án þess að lauma
nokkrum krónum framhjá ríkiskass-
anum, slík væru gjöldin og álögurn-
ar sem veitingahús þyrftu að þola. Af samtölum við koll-
ega sína réð sami viðmælandi að með örfáum undantekn-
ingum, líklega teljandi á fingrum annarrar handar, stund-
uðu allir staðir skattsvik í einhverjum mæli. Hinn kostur-
inn væri einfaldlega að hætta rekstrinum...
Ein af mest seldu bókunum fyrir þessi jól mun að lík-
indum hvergi sjást á metsölulistum blaðanna. Hún
heitir því yfirlætislausa nafni Samningar og skjöl og
hefur að geyma alla helstu viðskiptasamninga sem eitt
fyrirtæki þarf að gera starfsemi sinnar vegna. Bókin kem-
ur út á vegum Bókaklúbbs viðskiptalífsins, sem Framtíð-
arsýn starfrækir, og fylgir sögunni að fyrsta upplag hafi
selst upp á svipstundu. Bókinni fylgir tölvudiskur sem
geymir skjölin í bókinni, en pakkinn er ekki í ódýrari kant-
inum, eða á milli sjö og átta þúsund krónur. Bissniss-
menn segja þó að sú fjárfesting borgi sig fljótlega, þetta
jafngildi ekki ýkja mörgum útseldum tímum hjá lögfræð-
ingi sem annars þyrfti að fá til verksins...
Stundum er erfitt að halda utan
um alla þræði í stóru fyrirtæki.
Það gæti Póstur og sími staðfest.
Þar á bæ var fyrr á árinu ákveðið að
breyta póstnúmerinu á Flúðum í 845
Flúðir, en áður voru Flúðir undir 801
Selfoss. Ekki virðist breytingin hjá
póstinum hafa komist til skila innan-
húss hjá fyrirtækinu, því á reikning-
um símnotenda þar eystra stendur
nefnilega enn 801 Selfoss, eins og
ekkert hefði í skorist. Ólafur Tómasson póst- og síma-
málastjóri þarf því greinilega að huga svolítið að upplýs-
ingaflæði innan fyrirtækisins...
Greiddu atkvæði!
39,90 kr. mtnútan
Síðast var spurt:
Heldur þú að
útlendingar fái ven
meðferð í íslenska
dómskerfinu en
íslendingar?
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeir geta kosið um í síma 904 1516.
Er brýnt að
ija tónlistarhús
SÓLON ISLANDUS
!
HELGARPÓSTURINN
Fréttaskotið
552-1900