Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1964, Qupperneq 4
k.
Liincoln Center: — 1. Pliilharmonie Hall. 2. New York State Theater. 3. Vi vian Beaumout Theater. 4. Liörary
Museum. 5. Metropolitan Opera. 6. Juillard- skólinn.
er til að þær hafi örvandi áhrif hver á
aðra. Nemendur skólans ættu þannig að
fá tækifæri til að fylgjast með vinnu-
brögðum hinna færustu listamanna,
söngvara, leikara, dansara, hljóðfæra-
leikara, leikstjóra, söngstjóra, hljóm-
sveitarstjóra, balletthöfunda (ehorao-
grapha) og svo mætti lengi telja. Sdðan
flytja nemendurnir áhrifin með sér til
annarra staða, þar sem þeir ráðast til
starfa. Geta þessir möguleikar, ef vel
eru notaðir, orðið ómetanleg lyftistöng
alls listræns uppeldis komandi kynslóða
í Bandaríkjunum.
Fyrirhugað er, að hópar listamanna
frá Lincoln Center heimsæki skóla, bæði
innan New York og utan, og haldi þar
sýningar af ýmsu tagi.
Þegar veturinn 1960—61, meðan Phil-
harmonic Hall var í byggingu var byrj-
að á slíkri starfsemi — svo kölluðu
„stúdent-program“ eða nemenda áætlun.
Nemendur Juillard-skólans gáfti bama-
og unglingaskólum kost á að velja
milli sjö hljómieikaskráa þar sem
leikið var á fiðlu, píanó eða celló,
strengjakvartettar og blásarkvintettar
skólans lékiu eða fluttur var ýmiss kon-
ar söngur, einsöngvara, kóra o.s.frv. Af
hálfu Metropolitan óperunnar var séð
fyrir flutningi óperunnar „Cosi fan
tutte“ eftir Mozart fyrir skólana, haldn-
ar 32 sérstakar skólasýningar. Þá var
u. þ. b. hundrað þúsund nemendum á
gagnfræðaskólastigi gefinn kostur á að
hlýða á æfingar hjá New York Phil-
harmonic hljómsveitinni undir stjórn
Leonards Bernsteins, sem er annálaður
íyrir hæfileika sína til að vekja áhuga
ungs fóiks á músik. Ennfremur voru
haldnir sérstakir tónleikar fyrir unga
fólkið. Þannig hefur verið haldið áfram
ár frá ári. Á síðasta ári var stofnaður sér
stakur sjóður, er hefur það markmið að
standa undir ýmiss konar ráðstöfunum,
einkum til kynningar og fræðslu, .sem
ekki geta staðið undir sér. Með þessum
sjóði hefur verið haldið áfram fyrr-
greindum námsmanna áætlunum og
þátttaka unga fólksins farið ört vaxandi.
Sjóðurinn stóð ennfremur að nokkru
leyti undir síðdegishljómleikum, sem
haldnir voru með þeim hætti, að
sætin í hljómleikasalnum í Philhar-
monic Hall voru tekin upp og borð og
stólar settir í staðinn þannig, að fólk
gat setið þar og fengið sér eitthvað að
drekka, meðan það hlustaði á létta
rnúsik og horfði á danssýningar og fleiri
skemmtiatriði. Skólanemendur fengu að
göngumiða að þessum skemmtunum
fyrir sáralágt verð, eða um fimmtíu
cent.
L iður í námsmannaáætluninni fyr-
ir næstu tvö árin eru verðlaunaveitingar
— verður u. þ. b. þúsund nemendum,
sem t. d. skara fram úr við nám í skól-
um, sýna lofsverða framkomu eða hafa
sérstakan áhuga á músik, gefinn kostur
á að sækja — þeim að kostnaðarlausu
— sex tónleika New York Philharmonic
hljómsveitarinnar og hlýða á fyrirlestra
um músik. Pyrirhugað er að færa mjög
út þennan lið, þannig að hann nái jöfn-
um höndum til tónlistar, dans- og leik-
listar. Hefur Lincoln Center samvinnu
við forráðamenn skólanna um hvernig
þessu skuli háttað. Fyrrgreindur sjóður
stendur undir þessu að nokkru leyti og
ennfremur styrkir hann starfsemi The
Reportory Theater og New York City
Ballet, auk þess sem undirbúningur að
fyrirhugaðri árlegri listahátíð Lincoln
Centers og sumarnámskeiðum kenn-
ara í túlkandi listgreinum er kostaður
af sjóðnum.
Hér að framan hefur aðeins verið
drepið lítillega á heiztu byggingar Lin-
coln Centers — sem þó eflaust eru og
verða í framtiðinni efni í margar blaða
greinar hver fyrir sig. En með þeim er
þó vissulega ekki allt talið. Útundan
í þessari frásögn hafa orðið hin miklu
mannvirki neðanjarðar, sem vegfarend-
ur aldrei sjá — bifreiðageymslan mikla
fyrir 732 bifreiðir, undir Lincoln Center
Plaza og trjágarðinum Damrosch Park.
Garður sá verður milli Metropolitan
byggingarinncir, New York State Theat-
ers, 62. strætis og Amsterdam Avenue.
Ennfremur mannvirkið mikla undir
North plaza, þar sem eru miðstöð'var
fyrir r^fmagnshita og loftræstingarkerfi
bygginganna allra auk hvers konar
tæknibúnaðar annars.
L incoln Center bætir ú.r brýnni
þörf margra aðila fyrir nýtt húsnæði.
Sem fyrr segir er Philharmonic Hall
fyrsti fasti samastaður Philharmonic
hljómsveitarinnar. Hefur hún yfirleitj;
haldið hljómleika sína í Carnegie Hall
— en um tima stóð til að rífa það hús
og var þá ekki fyrir hendi neinn staður,
sem hljómsveitin gat sætt sig við til
frambúðar. Um New York City Ballett
er -það að segja, að hann hefur alla tíð
verið á hrakhólum, starfað og sýnt við
afleitar aðstæður — enda er sagt, að
Balanchine hafi gengið um sem í draumi
fyrst eftir að hann komst í New York
State Theater. Og þá Metropolitan óper-
an — . Þótt „Met“ sé jafnan talin í hópi
hinna beztu í heimi verður ekki sama
sagt um húsakynni hennar. New York
hefur ekki getað státað af óperuhúsi, er
stæðist samanburð við Parísaróperuna,
Rikisóperuna í Vín, Festival Hall í Lond-
don eða konunglegu óperurnar í Kaup-
mannahöfn og Stokkhólmi. Húsið við
Broadway og 391. stræti er í fyrsta lagi
ákaflega Ijótt — má þó segja, að það
sé smekksatriði — og að sögn kunnugra
eru aðstæður allar fyrir starfsfólkið af-
leitar og tæknibúnaður ófullnægjandn
í hinu nýja húsi Lincoln Center verður
sviðs — og tækniútbúnaður allur eina
fullkominn og hugsanlegt er. Hafa sér-
fræðingar ferðast ásamt arkitektinum,
Wallace Harrison, um alla Evrópu og
kynnt sér aðstæður óperuhúsanna þar.
Áhorfendasalurinn mun taka 3.765
manns í sæti og 164 stæði. Þegar hljóm-
sveitin er lítil verður hægt að bæta við
einni 35 sæta röð. I húsinu verður hin
ágætasta starfsaðstaða á öllum sviðura
og fyrir gesti verða þar m.a. þrjár veit-
ingastofur, og stórir og skrautlegir for-
salir. Vonir standa til að óperan geti
flutt í nýja húsið áður en vetrardag-
skráin 1966 hefst.
c
kJ aga Lincoln Centers er í raún-
inni nátengd Metropolitan óperunni. Má
rekja hana allt til áranna 1920—30, þeg-
ar John D. Rockefeller keypti fyrstu
lóðina í Rockefeller Center, sem nú er,
í því augnamiði að þar yrði reist nýtt
óperuhús. Hugmyndin hjaðnaði á kreppu
árunum — og þó ekki alveg. Einstöku
menn héldu áfram að láta sig dreyma
og ungur arkitekt, Wallace K. Harrison,
sem kunnugur var Rockefeller fjölskyld
unni gerði árið 1930 hvern uppdráttinn
á fætur öðrum. Þetta vakti enn áhuga
fjölskyldunnar, einkum Nelsons, sonar
Johns D. og núverandi ríkisstjóra New
York. Komst fjölskyldan að þeirri
niðurstöðu, að lóðirnar norður af 50.
stræti yrðu ákjósanlegur staður. Skyldi
rísa þar óperuhús, hljómleikasalur, bún
ingasafn og safn fyrir nútímalist —
Museum of modern art, sem raunar var
byggt þar síðar. Um þessar mundir
þótti hinsvegar óráðlegt að leggja í slík
ar framkvæmdir nema því aðeins, að
ríkisstjórnin tæki þátt í þeim. Þáver-
t forsal Phi Iharmonie HalL
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS-
38. tbl. 1864