Vísir - 04.03.1978, Síða 3
vism Laugardagur 4. marz 1978
3
I
ins á Akureyri
er hafið:
um 23
ðendur
I
bæjarstjórnarkosningar og er
aðalmaður flokksins i bygginga-
nefnd.
Tryggvi Pálsson er 39 ára
gamall framkvæmdastjóri
byggingafyrirtækisins Smára.
Varaformaður Sjálfstæðisfélags
Akureyrar.
Sverrir Leósson er 39 ára og
fulltrúi útgerðarfyrirtækis. Situr
m.a. i stjórn Ltú og er formaður
Sjálfstæðisfélags Akureyrar.
Hrefna Jakobsdóttir er 41 árs
húsmóðir. HUn hefur starfað mik-
ið að félagsmálum Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri.
óli G. Jóhannsson listmálari er
33 ára, eigandi Gallery Háhóls á
Akureyri. Hann hefur starfað að
ýmsum félags- og menn-
ingarmálum.
Þórunn Sigurbjörnsdóttir
hUsmóðir er 46 ára og er
varaformaður Sj'álfstæðis-
kvennafélagsins Varnar. HUn
hefur átt sæti i fræðsluráði og
skólanefnd um árabil
Steindór G. Steindórsson
verður 25 ára á mándudaginn og
er yngsti frambjóðandinn. Hann
er plötu- og ketilsmiður og mikill
áhugamaðurum félagsmál.
Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri Slippstöðvar-
innar er 39 ára og formaður
FulltrUaráðs Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri.
Björn Þórðardóttir er 32 ára
hUsmóðir og kaupkona og hefur
áhuga á bæjarmálum almennt.
Sigurður Jóhann Sigurðsson er
31 árs og er yngsti bæjarfulltrUi
Sjálfstæðisflokksins. Hann er
framkvæmdastjóri Skeljungs á
Akureyriog hefur gengt mörgum
trUnaðarstörfum á sviði félags-
mála.
Margrét Kristinsdóttir hUs-
stjórnarkennari er 40 ára og
stjórnar HUsstjórnarskólanum á
Akureyri.
Jón Viðar Guðlaugsson lyfja-
tæknir er 43 ára og tók virkan þátt
i starfsemi ungra sjálfstæðis-
manna.
Arni Arnason framkvæmda-
stjóri hefur verið varabæjar-
fulltrUi flokksins s.l. tvö kjör-
timabil.
Ingi Þór Jóhanns-
son.framkvæmdastjóri er 33 ára
og er varabæjarfulltrUi Sjálf-
stæðisflokksins.
Óli D. Friðbjörnsson
skrifstofumaður hefur mikið
starfað að félasmálum og er nU
formaður Málfundafélagsins
Sleipnis.
Gisli Jónsson menntaskóla-
kennari er 52 ára og hefur verið
aðalfulltrUi eða varamaður i
bæjarstjórn frá árinu 1958.
Freyja Jónsdóttir hUsmóðir er
54 ára hefur tekið mikinn þátt I
störfum sjálfstæðisfélaga á
Akureyri og er einnig i stjórn
La n d s s a m b a n d s sjálf-
stæðiskvenna.
Sigurður Hannesson
bygginga m e i star i varð
varamaður i bæjarstjórn 1962 og
hefur verið aðalfulltrUi siðasta
kjörtimabil.
Ilermann Haraldsson banka-
fulltrUi er 26 ára. Hann situr i
stjórn Varðar og er gjaldkeri KA.
Sveinbjörn Vigfússon
viðskiptafræðingur hefur starfað
með ungum sjálfstæðismönnum
og var um árabil formaður
Varðar.
Höskuldur Helgason bilstjóri er
66 ára og var meðal stofnenda
Bilstjórafélags Akureyrar og
mörg ár i stjórn þar.
Oddur C. Thorarensen apótek-
ari er 48 ára og formaður félags
apótekara i dreifbýli. Hann hefur
m.a. verið i stjórn Tollvöru-
geymslunnar og Sparisjóðs
Akureyrar. s.G.
Sverrir
Hrefna
Gunnar
Ingi
Sveinbjörn
Björg
Óli D.
Höskuldur
Sigurður J.
Gisli
Oddur
Alþjóðleg bílasýning
haldin í Reykjavík
Fyrsta alþjóðiega bilasýning-
in á islandi verður haldin dag-
ana 14.—23. april. Þetta verður
jafnframt stærsta vörusýning
sem hér hefur veriö haldin og
fer hún fram i nýju húsi Sýning-
arhallarinnar við Bildshöfða.
Bilgreinasambandið gengst
fyrir sýningunni i samvinnu viö
framleiðendur og er hún viður-
kennd af alþjóðasamtökum
þeirra.
Þarna veröa til sýnis yfir 150
bifreiðarog i anddyri hallarinn-
ar verður yfirlit yfir sögu
bifreiðarinnar og gamlir bflar
sýndir. 011 bilaumboð hér á
landi eru þátttakendur nema
eitt og verðmæti bifreiða og
sýningarmuna er eflaust hátt i
einn milljarð króna. Þarna
verða ýmsir bilar sem ekki eru
sledir hérlendis og má segja að
hér sé um stórviðburð að ræða
fyrir allan almenning.
1 undirbUningsnefnd sýning-
arinnar eru SigfUs SigfUsson,
Þórir Jensson, Ragnar Ragn-
arsson og örn Guðmundsson.
Nánar verður sagt frá sýning-
unni AUTO 78 siðar hér I blað-
inu.
—SG
Gœsluvarðhald Hauks Heiðars kœrt til Hœstaréttar
I
Játning lá fyrir
á þriðja í jálum
,/Játning lá fyrir á öllu
þessu máli í þriðja i jólum
og ég hef nú í annað skipti
kært framlengingu á
gæsluvarðhaldinu. Það er
mjög óvanalegt að gæslu-
varðhaldi í fjárdráttar-
málum sé breytt og það
framlengt", sagði Sveinn
Snorrason hæstaréttarlög-
maður i samtali við Vísi.
Hann er réttargæslumaður
Hauks Heiðars, en á miðvikudag-
inn var gæsluvarðhald Hauks
framlengt til 15. mars. Krafist
hafði verið áframhaldandi gæslu-
varðhalds til 22. mars en Birgir
Þormar aðalfulltrUi sakadóms
kvað upp Urskurð til 15.
„Sönnunargögn i fjárdráttar-
málum eru með þeim hætti að það
þarf ekki að beita svo löngu
gæsluvarðhaldi”, sagði Sveinn
ennfremur, en Haukur Heiðar var
fyrst Urskurðaður i gæsluvarð-
hald 23. desember.
Sveinn Snorrason sagði að frá
þvi hegningarlögin frá 1940 tóku
gildi hefðu tvö eða þrjU mál af
þessu tagi komið fyrir Hæstarétt
þar sem gæsluvarðhaldi hefði
verið beitt en þá aðeins i örfáa
daga. Það væri þá til þess að
sannreyna hvort samstarfsmenn
innan einhverjar stofnunar væru
sekir. Sönnunargögn væru fyrst
og fremst endurskoðunaratriði
sem væru hjá viðkomandi fyrir-
tæki eða stofnun.
Þvi hefur Sveinn kært gæslu-
varðhaldsUrskurðinn frá þvi á
miðvikudag til Hæstaréttar.
—SG
Vetrarvöru r
Shell!
Sterkt vopn í baráttunni viö Yttur konung
Startgas (svari fyrir blöndunga Sætaáklæði í flesta bíla
Rakaþerrir
Gluggahreinsiefni
Frostlögsmælir
Rafgeymar,
flestar gerðir
Ljóskastarar í bíla/ Tjöruhreinsiefni
íseyðir fyrir rúðusprautur
Lásaolía, hindrar ísingu í bílaskrám
njóskóflur, 2 gerðir
Hleðslutæki,
4 og 7 amper
Geymasambönd
Startkaplar
Dráttartóg
Fjölmargar gerðir
af gúmmímottum
(ssköfur, margar gerðir
Fást á bensínstöðvum Shell
Dekkbroddar, skyndikeðjur, 3 gerðir
Oliufélagið Skeljungur hf
Shell
Smávörudeild
Simi 81722