Vísir - 04.03.1978, Qupperneq 4
4
Laugardagur i. marz 1978 VTSIR
Viðtol: Póll Pólsson
„Ég er fæddur og uppalinn í Kaupmannahöfn,
en kominn af miklum prestaættum á Islandi, þar
sem móöir mín var héðan. Ég fluttist síðan hing-
. aöásautjánda aldursári. Það var rétt eftir stríð-
ið. Og þá byrjaði maður á vitleysunni."
Helgarblaðið er komið í heimsókn til Gunnars
Ormslevs en hann er, einsog flestum er vist
kunnugt, einn mesti jazzleikari islendinga fyrr
og síðar.
Jazzinn átti sitt blomaskeið á árunum '45-'64-5
hérlendis eða þar til ,,bitlaæðið" gekk í garð hér
emsog annars staðar i hinum vestræna heimi En
ekki var hann þó buinn aö syngja sitt siðasta
Undanfarm ar hefur honum vaxið ört fiskur um
hrygg. Bæði hefur hann blandast mikið dægur-
tonlistinni og svo hefur áhugi almennings aukist
til muna a hreinræktuðum afbrigðum jazzins.
Og til þess að fræðast nánar um hin góðu „guli-
aldarár" og stöðu jazzins i dag erum við staddir
hja Gunnari Ormslev.
Rætt við Gunnar Ormslev
sGxofónleikara
I Breiðfirðingabúð
— Varstu ekkert. farinn að
spila áður en þú komst til Is-
lands?
Jú, maður hafði gutlað við
þetta á skólaárunum en min
fyrsta alvöruspilamennska var
með Hljómveit Björns R. Ein-
arssonar sem spilaði aðallega i
Breiðfirðingabúð. í þeirri hljóm-
sveit voru, auk min og Björns,
Haraldur Guðmundsson sem nú
er skólastjóri á Norðfirði, Gunn-
ar Egilson og Arni Elvar. Allt
saman finir strákar og góðir
hljómlistarmenn.
Svo komu þeir félagar K.K. og
S.G. úr sinni frægu Bandarikja-
reisu og var ég um stund með
þeim eða þar til ég fór til Svi-
þjóðar, þar sem ég dvaldist i tvö
ár.
Spilað á hverjum degi
I Sviþjóð lék ég með Hljóm-
sveit Simon Brehm og þar
kynntist ég mörgu góðu fólki
sem ég nýt góðs af enn i dag.
Þarna úti var spilað á hverjum
degi og var árinu skipt þannig,
að á veturna lékum við alltaf á
sama staðnum, en á sumrin var
ferðast um landið þvert og endi-
langt og aldrei tvö kvöld i röð á
sama staðnum. Stundum þurft-
um við að fara 100-200 km á dag
en aldrei var kvöldi sleppt úr,
þannig að þetta var oft ansi erf-
itt en mjög skemmtilegt og lær-
dómsrikt.
Til Rússlands
Ég kom svo heim aftur ’57 og
stofnaði hljómsveit með Hauki
Mortens. Við spiluðum i Tjarn-
arbúð og með okkur voru Arni
Elvar, Viðar Alfreðsson og fleiri
góðir strákar. Þá var,,gullöld”
jazzins i hámarki.
— Geturðu ekki sagt okkur frá
einhverju skemmtilegu sem
gerðist á þessum árum?
Jú ég ætlaði einmitt að fara að
minnast á skemmtilega reisu
sem þessi hljómsveit fór. Hauk-
ur er nú einsog hann er, alþýðu-
maðubog honum tókst einhvern
veginn að koma okkur til Rúss-
lands. Við vorum nú fyrst á báð-
um áttum, hvort við ættum
nokkuð að fara þetta. Þetta var
rétt eftir uppreisnina I Ung-
verjalandi og almenningsálitið
hér heima ekki beinlinis Rúss-
um i hag. Það var þvi smá
þrýstingur á okkur, að vera ekki
að fara i þessa ferð.
En við létum nú ekki i minni
pokann fyrir almenningsálitinu
enda viljum við alls ekki blanda
saman pólitík og tónlist. Og það
þarf ekki að spyrja að þvi, ferð-
in austur var ákaflega ánægju-
leg og fólkið veitti okkur góðar
móttökur. Þarna vorum við svo
i fjórtán daga.
Mogginn birti ekki frétt-
ina
Hápunktur þessarar Rúss-
landsferðar var að við unnum til
gullverðlauna á einhvers konar
Youth Festivali i Moskva.
Fengum þar mjög góðar viðtök-
ur og vorum bornir á gullstóli
um allt. Við höfðum lika gaman
af þvi að verða til þess að kynna
ísland á þennan hátt.
Daginn sem við fengum þetta
gull sendi ég fréttaskeyti heim
til Morgunblaðsins og Þjóðvilj-
ans. En okkur fannst það ansi
skitt þegar kom i ljós að Mogg-
inn hafði ekki birt fréttina og
ekki góð blaðamennska. Þetta
var jú aðeins frétt og að okkar
áliti ekkert skyld pólitik, nema
kannski að þvi leyti að sýna
fram á að i Rússlandi býr gott
fólk en það var sennilega mein-
ið.
Gripsholm
Næstu árin eða allt fram til ’68
lék ég svo til skiptis með K.K. og
Birni R., en þá fór ég til Dan-
merkur og dvaldist þar af per-
sónulegum ástæðum i 18 mánuði
og spilaði litið sem ekkert. Svo
þegar ég er að leggja af stað
heim, þá býðst mér starf sem
hljómsveitarstjóri á sænska
skemmtiferðaskipinu Grips-
holm og var sagt að mæta i
Gautaborg næsta dag. Þar
mætti ég svo, mér til mikillar
undrunar, nokkrum islenskum
hljóðfæraleikurum sem höfðu
einnig verið ráðnir á skipið. Það
er eitt besta sumar sem ég hef
lifað.
Allt til helv...
— Svo við vikjum okkur að
öðru —-hvað breyttist þegar The
Beatles komu til sögunnar?
Það breyttist allt með tilkomu
„bitlaæðisins”. Þá fór allt til
helv... Það varð m.a. til þess að
margir góðir hljómlistarmenn
heltust úr lestinni vegna þess að
hljómsveitirnar minnkuðiy
þ.e.a.s. þá þurfti færri menn en
áður til þess að skila músikinni.
Áður en þetta skeði voru t.d. 8-
mannabönd á Hótel Borg og
þótti ekki mikið. Að minu áliti
hvarf með þessu öll breidd úr
tónlistinni og hún varð mjög
einhæf og leiðigjörn. Þetta var
stórt skref afturábak.
Sérstök útvarpshljóm-
sveit
— Hvað viltu svo segja um
þessi mál einsog þau eru i dag?
Það sem mér finnst sérstak-
lega ábótavant i tónlistarmál-
um dagsins i dag, er að Rikisút-
varpiðskuli ekki hafa neina sér-
staka útvarpshljómsveit. Hún
þyrfti ekkert frekar að spila ein-
göngu jazz en eitthvað annað.
Nú er þetta stofnun sem á að
stuðla að og örva hina ýmsu
menningarþætti i þjóðfélaginu,
en hvað þennan þátt varðar má
ljóst vera að hann er vanræktur.
Að visu var Sinfóniunni þröngv-
að uppá útvarpið en það er eng-
in afsökun. Aður fyrr voru
svona hljómsveitir til s.s. Dans-
hljómsveit Rikisútvarpsins o. fl.
en nú er öldin önnur. A hinum
Norðurlöndunum er þetta allt
öðruvisirt.d. eru fjórar svona
hljómsveitir á launum hjá
danska útvarpinu. Siðan ég varð
fulltrúi Islands i Nord-Jazz,sem
er félag sem hefur það markmið
að efla norræna samvinnu á tón-
listarsviðinu, hef ég fengið ör-
litla nasasjón af þvi hvernig að
þessum málum er staðið hjá
okkar góðu nágrönnum.
Sænska, danska og norska út-
varpiðleggja fram árlega hvert
um sig, 10 milljónir króna til
styrktar rythmatónlist. Þetta er
viðurkennd listgrein sem má
ekki vanrækja.
Kynna tónlist i skólum
Svo er gert alltof litið af þvi að
kynna rythmatónlist fyrir ungl-
ingunum og efla áhuga þeirra á
músik yfirleitt. Unglingsaldur-
„VIÐ LIFUM ENN
Á 16. ÖLDINNI.."