Vísir - 04.03.1978, Page 19
VISIB Laugardagur 4. marz 1978
19
BETRA ER GEYMT
EN GLEYMT
Pappírinn dýr
Erlendur sagðist yfirleitt
safna þvi sem honum hefði fallið
i skaut fyrirhafnarlitið. Þó sagði
hann að söfnunin væri nokkuð
dýr.
Hann gengur þannig frá eld-
spýtustokkunum, að hann fletur
þá út og limir þá á karton og
geymir þá siöan i möppum.
Þessi karton sagði hann að væru
orðin dýr og það hefði hamlað
þvi að hann gæti gengið þannig
frá öllu safninu.
Svo til allir stokkarnir eru
komnir erlendis frá, enda er úr-
valið hér á landi ekki mikið. A
Norðurlöndunum eru stokkarnir
til dæmis notaðir fyrir aug-
lýsingar og verður það til þess
að fjölbreytni þeirra er mikil.
1 safni Erlendar eru bæði
stórir stokkar og litlir. Frá íta-
liu fékk hann kringlótta stokka
og frá Bretlandi voldugar
kaminueldspýtur. . Nokkrir
stokkanna eru til minja um St.
Georgsgildin.
Einvígi aldarinnar og
þorskastríö
Eins og áður sagði safnar Er-
lendur einnig blaðaúrklippum.
Hann valdi að safna öllu sem
hann náði saman um tvö mál,
„Einvigi aldarinnar” milli
Fischers og Spasskýs og siðasta
þorskastriðið. Sögu þessara
tveggja viðburða má nú lesa i
möppum þar sem blaðafregnum
um þá er haldið saman. Mest
sagðist Erlendur hafa klippt út
úr Morgunblaðinu, þar á meðal
teikningar Sigmunds og Hall-
dórs Péturssonar af einviginu
en einnig nokkuð úr Visi og
Timanum.
En hvers vegna valdi hann
einmitt þessi mál?
,,Ég kann ekki að tefla svo
ekki var það skákáhuginn, sem
varð til þess að ég safnaði úr-
klippum um „Einvigi aldarinn-
ar” sagði hann. „En mér þótti
þetta merkilegt mót og þvi datt
mér i hug að halda þessu
saman. Og hvað þorskastriðiö
varðar, hlýtur það að teljast
mikilvægur viðburður fyrir okk-
ur islendinga.”
Smiöaöi allt sjálfur
Fyrir gestkomandi á heimili
þeirra Erlendar og Ástu vekur
það athygli að þar er mikið af
sérsmiðuðum húsgögnum og
munum. Við spurðum Erlend
hvort hann hefði smiðað þetta
allt sjálfur.
„Já, ég hef eiginlega smiðað
allt sjálfur nema útvarpið og
pianóið. Pianóið keypti ég einu
sinni fyrir 600 krónur. Okkur er
sagt að Indriði Einarsson hafi
átt það áður.”
í stofunni ber mest á stórum
Erlendur Jóhannsson ásamt konu sinni Astu Þorgrímsdóttur, við sveinsstykkið,
serti hefur prýtt heimili þeirra nærri hálfa öld.
og fallegum skáp, sem Erlendur
sagði að væri prófstykkið sitt.
Skápurinn er nú um 44ra ára.
Erlendur sýndi okkur lampa
og könnur sem hann sagðist
hafa smiðað úr sandsteini frá
Stykkishólmi en þar er hann
fæddur og uppalinn.
„Þessa muni smiðaði ég i
matar- og kaffitimunum minum
á meðan ég var i vinnu,” sagði
hann. „Ég gat ómögulega setið
inni og talað um pólitik og þvi
notaði ég timann til að búa til
ýmislegt fyrir sjálfan mig.”
Nú hafa smiðarnar legið á
hillunni um nokkurn tima en
Erlendur sagðist vonast til að
geta gert meira heima fljótlega.
En á meðan er timinn notaður
til að dytta að safninu.
„Ekki neita ég þvi aö ég hafi
haft ánægju af þessu”, sagði
hann. „Það er nú svo að þótt
ekki sé allt eins og maöur óskar
að hafa það getur maður ekki
bara lagt árar i bát.”
Nokkur póstkortanna eru með myndum af Ástar-
Brandi og Oddi af Skaganum í fornmannabúningi
sínum.
iþróttagreinum. Þá eru þarna
myndir af Hallgrimi Benedikts-
syni. fööur Geirs Hallgrimsson-
ar forsætisráðherra og er hann
þar i glimubúningi.
Inni á milli eru svo kort með
myndum af sérkennilegum per-
sónuleikum eins ogAstar-Brandi
og Oddi af Skaganum i forn-
mannabúningi sinum. Þann
búning hafði hann fengið fyrir
Alþingishátiðina og gekk siðan
mikið I honum.
Þegar við skoðuðum þessar
myndir rifjaöi Jón upp sögur af
þessum mönnum. Ein þeirra er
af lýsingu Odds á slagsmálum
sem hann á aö hafa lent i. Ekki
vildi Jón sverja fyrir að hún
væri sönn, en svo á Oddi að hafa
sagst:
„Ég var með krepptan hnef-
ann i annarri hendinni og tó-
baksbaukinn i hinni. Svo gaf ég
honum á kjaftinn rétt á bak við
eyrað. Og hann hljóp og ég hljóp
og ég á undan!”
Um Astar-Brand sem var hálf-
gerður förumaöur og óþreyt-
andi hlaupagikkur var sagt að
þegar hann eitt sinn missti af
strandferöaskipi hafi hann
hlaupið yfir fjallgarö á milli
Vestfjarða og tekiö skipið i
næstu höfn.
360 stimplar á sama frí-
merkinu
Eins og áður sagði safnar Jón
ýmsu öðru en kortum og eitt af
þvi merkara er safn eins fri-
merkis með mismunandi
stimplum.
„Þetta frimerki er 20 aura
merki frá 1925”, sagði Jón.
„Upplagið var á 5. milljón og á 7
ára timabili var þetta merki á
hverju einasta bréfi. Ég á þetta
merki núna með 360 mismun-
andi stimplum.”
A þessum tima voru 300
númerastimplar notaðir á land-
inu og sagði Jón að hugsanlega
væru 250 þeirra til á þessu
merklen hann á nú um 200.
Einn stimplanna i safninu er
sá fyrsti sem geröur var á ís-
landi en hann er frá 1873. Þá má
sjá þarna ýmis einkennileg
fyrirbæri. Nokkur merkjanna
eru póststimpluðerlendis bæði i
Bretlandi og Danmörku og
viðar og hafa þvi bréfin sem þau
voru á farið utan áður en þau
voru sett i póst. Nokkur merki
eru stimpluð með dönskum aug-
lýsingum.
Þá kemur þarna fram aö ekki
hefur póstkerfið alltaf verið i
fullkomnu lagi. Til dæmis er eitt
merkið ógilt með bleki sem
bendir til þess að stimpillinn
hafi verið týndur. Annaö merki
erstimplað með dagsetningunni
14.8.1918 en þá voru énn 7 ár i að
merkið kæmi út og hefur þvi sá
stimpill verið laglega vitlaust
stilltur.
Gömlum auglýsinga-
myndum haldið saman
I safni Jóns eru fjölmargar
myndir af islenkum leikurum i
islenskum leikritum.
„Þessar myndir voru látnar
fylgja Teofanisigarettum á ár-
unum 1920-30,” sagði hann. „Ég
á hérna fjölmargar myndaseri-
ur sem gefnar voru með ýmsum
vörutegundum i auglýsinga-
skyni á þessum árum, eöa þar
til það var bannað.
Myndir af islensku landslagi
og skipum voru gefnar með
Commandersigarettunum. Meö
kaffitegundinni „Bláu könn-
unni” frá KRON voru myndir af
islenskum vitum og fleira.
Svo á ég hérna gamlar
myndir frá Islandi sem gefnar
hafa verið með súpukrafti er-
lendis. Ég fékk 3 slikar serlur
frá Englandi. Textarnir með
myndunum eru á mörgum
tungumálum en enginn er á is-
lensku.”
Engar fréttir á 200 kort-
um
Frá auglýsingamyndunum
snerum við okkur aftur aö kort-
unum. Jón sagði að flest kortin
hefðu aldrei verið send.en þó
væru sum þeirra með mjög
skemmtilegum frimerkjum og
stimplum.
— Er það rétt sem sagt er að
kortasafnarar skoði sjaldnast
það sem skrifað er á kortin?
„Já, bakhliðin á kortunum
skiptir okkur engu máli nema
þá frimerkin. Það er lika mjög
sjaldgæft að nokkuð sem heitið
geti standi i kortum. Ég á hérna
i safninu til dæmis 200 kort sem
þrjár systur sendu milli sin um
eða upp úr 1930. A þeim flestum
stóð: „Ég hef engar fréttir aö
segja þér”, orðað meö ýmsu
móti. Það heyrði til undan-
tekninga að nokkuð annaö væri
sagt i þeim.”
Hvar var sólarlagið?
Jón sagði aö þaö væri
eins með kortin og frimerki að
ýmis mistök kæmu þar fram.
Hins vegar kvaöst hann ekki
telja að þau yrðu verömætari
við þaö. Sem dæmi um slik mis-
tök eru nokkur kort sem sögö
eru eiga að vera frá konungs-
komunni 1908, en konungur kom
bara alls ekki i heimsókn 1908,
heldur 1907. Þá er i safninu kort
með textanum: -;,Sólarlag I
Reykjavik”, en Jón sagöi að svo
vildi til að myndin væri tekin i
Stykkishólmi og gæti þvi tæpast
sýnt sólarlag i Reykjavik.
,,Eitthvaðá maður af því"
Flest kortanna og gömlu
myndanna sagðist Jón ýmist
hafa keypt eða fengið i skiptum.
Hann sagði aö enn leyndist mik-
ið af þessu i kommóðuskúffum
hingað og þangaö, — það væri
bara að finna það.
Jón sagði okkur sögu sem
dæmi um það hvernig hann
kemst yfir viðbætur i safnið. Til
hans kom i haust ungur
blaðsölustrákurog sagðist hafa
heyrt aö hann keypti kort. Jón
spurði þá hvort strákur ætti
kort.
„Jú eitthvað á maður nú af
þeim,” sagöi hann hinn búra-
legasti og bætti við að verið gæti
að hann vildi selja,en sagði svo:
„Heyröu viltu kaupa Visi?”
Jón sagðist hafa hlegið.keypt
Visi og dáöst aö söluhæfileikum
drengsins en ekki búist við að
sjá hann aftur. En viku seinna
birtisthann og þá með bunka af
gömlum kortum. Þau vildi hann
selja og sagðist eiga mörg fleiri
heima.amma sin heföi gefiö sér
þau.
Þannig leynast viða þessir
gömlu hlutir, þótt flestum finn-
ist þeir einskis virði. Og á
hverju ári bætist i safn Jóns.
Þetta er eitt af kortunum sem Andrés Johnsen gaf út,
en þau eru alls um 20—30. úr myndunum má lesa
þessa visu:
Seðlar, kopar, silfur, mynt,
svigar, depill, komma,
pundið, lóðið, kiló, kvint,
kvartel, alin, tomma.