Vísir - 04.03.1978, Side 20
20
im HELGINA
Laugardagur 4. marz 1978 vism
YÐAR ANÆGJA - OKKAR STOLT
Önnumst öll mannamót, stór og smá. Að-
eins nokkur ,,nútima” hænufet frá ys og
skarkala höfuðborgarinnar. Við bjóðum
alla þá aðstöðu til hvers konar mannamóta,
er best gerist. Þjónustan er indæl og verð-
ið eftir þvi.
FÉLAGSHEIMILIÐ FESTI
GRINDAVÍK - SIMI 92-8255 og 92-8389
augiysingasimn
a'-r-m
nvn frh mn»
Þessar kápur eru
nýkomnar í verslunina
Tegund: Ullarkápur m/lausri hettu
Efni: LODEN, satinfóður
Stærðir: 34-^2
Litir: Drapp, camel, svart, grátt, grænt,
dökkbrúnt, blátt
SEnaum GEcn pústkrúfu
Um HELGIlMA
ÖÐRUVÍSI LEIKHÚS
1 SVIÐSL3ÖSINU Ul*l HELGINA
í Reykjavik er til litið leikhús
sem lætur ekki hátt, en nýtur
mikilla vinsælda hjá þeim sem
hafa sótt það. Þar eru auðvitað
frumsýningar, en þær eru með
nokkuð öðru sniði en hjá öðrum
leikhúsum, til dæmis eruleikar-
arnir úr tuskum og öðru tilfall-
andi.
Þetta litla leikhús heitir Leik-
brúðuland og á að baki tiu ár af
samfelldum leiksigrum. Núna á
morgun, sunnudag, eru til sýn-
ingar f jórir nýir leikþættir. Sýn-
ingin verður að Frikirkjuvegi
11, eins og venjulega, og hefst
kl. 15.
Brúðuleikhús á sér ekki langa
söguá íslandi, miðað við ýmsar
aðrar þjóðir. Ekki er vitað gerla
um uppruna brúðuleikhúsa en
þessi grein leiklistar var lengi
framanaf tengd trúariðkunum.
Sennilegt er talið að vagga
hennar sé i Asiu, en þó er engan-
vegin vist að allar tegundir leik-
brúða séu þaðan runnar.
Grikkir fyrstir
Grikkir tóku fyrstir upp leik-
brúðulist i Evrópu, en þaðan
barst hún með Rómverium
norður alla álfu Fyrst voru leik-
brúðurnar hreyfanlegar guða-
likneskjur og oft leikið inni i
kirkjum.
Seinna meir var svo farið að
setja upp leikhús á götum og
torgum. Þar þróuðust ýmsar
skemmtilegar persónur sem
hafa orðið mjög lifseigar Upp úr
þessum jarðvegi er til dæmis
Meistari Jakob sprottinn, en
hann hefur verið fastur gestur
hjá Leikbrúðulandi svo að segja
frá upphafi.
Einn aðstandenda Leikbrúðu-
landser Erna Guðmarsdóttir og
hún var jafnframt einn af stofn-
endunum, fyrir tiu árum.
„Upphafið á þessu var að fyr-
ir tiu árum hélt Kurt Zier, fyrr-
verandi skólastjóri Handiða og
myndlistarskólans námskeið i
gerð leikbrúða,” sagði Erna
þegar hún var spurð um tilurð
leikhússins.
Lika fyrir fullorðna.
„Þrjár okkar sem vorum á
námskeiðinu héldum saman að
þvi loknu. Með mér voru Helga
Steffensen og Bryndis Gunnars-
dóttir. Bryndis er reyndar i árs-
frii núna og i hennar stað er
Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Við gerum auðvitað flest það
sem þarf til að koma sýningu á
fjalirnar. Við búum til brúðurn-
ar, stjórnum þeim og tölum oft
fyrir þær. Hinsvegar gerum við
litið af þvi að semja verk fyrir
þær, þau eru flest þýdd”.
,,Eru þá skrifuð sérstök leik-
rit fyrir brúðuleikhús, erlend-
is?”
„Já, mikil ósköp, um allan
heim. Við viljum auðvitað
gjarnaii fá islensk verk til sýn-
ingar, en af þeim er ekki mikið.
Við reynum þó eins og við get-
um og nú hefur til dæmis Böð-
var Guðmundsson skrifað fyrir
okkur leikrit upp úr Völsunga-
sögu, sem við ætlum að taka til
sýningar, þóttekki viti ég alveg
hvenær af þvi verður”.
„Eru gestirnirekki svo til ein-
göngu börn?”
„Börn eru auðvitað i meiri-
hluta, en margirforeldrar koma
með börnin sin og það þykir
okkur vænt um. Það hefur lika
komið i ljós að þeir foreldrar
sem koma, hafa ekki siður gam-
an af þessu en börnin”.
„Hvaða framtiðardrauma
eiga leikhússtjórarnir i Leik-
brúðulandi?”
,,Ja, okkur dreymir til dæmis
um að setja upp verk fyrir full-
orðna. Erlendis, þar sem brúðu-
leikhús eru háþróuð list, eru
skrifuð og sett á svið leikrit sem
gerð eru fyrir fullorðna áhorf-
endur, og njóta mikilla vin-
sælda.
Þetta er hlutur sem okkur
þætti gaman að gera þvf það er
alltaf spennandi að spreyta
sig á einhverju nýju. Hinsvegar
vil ég taka fram að við erum
hæstánægð með áhorfendahóp-
inn okkar eins og hann er i
dag”. Og þeir sem vilja
kynna sér þessa tegund leiklist-
ar, geta semsagt gert það á
sunnudaginn. Þá sýnir Leik-
brúðuland „Vökudraum”, sem
fjallar um litinn strák sem fer i
ferðalag til annarra stjarna.
Þar á eftir fylgir þáttur sem
byggður er á kvæðinu um Litlu
Gunnu og litla Jón, eftir Davið
Stefánsson. Einnig á dagskrá er
ævintýrið um Eineygu, Tvieygu
og Þrieygu og svo æsispennandi
stykki sem heitir „Drekinn”.
—ÓT.
ÚTl/ARP
Laugardagur
4. mars
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Vikan .framundan.
Sigmar B. Hauksson kynnir
dagskrá útvarps og sjón-
varps.
15.00 Miðdegistónleikar a.
15.40 tsienskt mál.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Davíð
Copperfield” eftir Charles
Dickens
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Frél^ir. Fréttaauki.
19.35 VatnajökuII Fjórði og
síðasti þáttur: Rannsóknir
og ferðalög. Umsjón:
Tómas Einasson.
20.05 Hljómskálamúsik
20.40 Ljóðaþáttur
21.00 Walter Klien leikur á
pianósmálög eftir Mozart.
21.20 Tveir á tali Valgeir
Sigurðsson ræðir viö Helga
Gislason, bónda i Skógar-
gerði i Fellum.
21.45 Divertimenti fyrir tvö'
barytón-selló og selló eftir
HaydnJanos Liebner leikur
á öll hljóðfærin.
22.00 Úr dagbók Högna Jón-
mundar
22.20 Lestur Passiusálma Geir
Waage guðfræðinemi les 34.
sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
5. mars
8.00 Morgunandakt
8:r0 Fréttir. 8.15 Veður-
fregnir. Útdráttur úr
forustugr. dagbl.
8.35 Morguntónleikar:
Tónlist eftir Johann Sebast-
ian Bach a.
9.30 Veiztu svarið?
10.10 Veðurfregnir. Fréttir.
10.30 Morguntónleikar, — frh.
11.00 Messa i Hafnarfjarðar-
kirkju á æskulýðsdegi þjóð-
kirkjunnar.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Orsakir vangefni.
14.00 Miðdegistónleikar: Frá
Beethoven-hátiðinni i Bonn i
sept. i haust a.
15.10 Ferðamolar frá Guineu
Bissau og Grænhöfða-
eyjum: III. þáttur.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Endurtekið efni. a. „Ég
hef smátt um ævi átt”
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Dóra ” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur
17.50 Harmónikulög:
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Elskaðu mig...”
19.50 Kammertónlist: Sextett i
G-dúr eftir Brahms.
20.30 Útvarpssagan: ,,PíIa-
grimurinn” eftir Par
L_a g e r k v i s t
21.00 tslenzk einsöngslög
1900-1930: IX. þáttur.
21.25 Dulræn fyrirbæri i
islenzkum frásögnum,
21.55 Konsert i F-dúr fyrir
þrjár fiölur og strengjasveit
eftir Telemann
22.10 iþróttir
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikar
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
S30NUARP
Laugardagur
4. mars 1978
16.30 tþróttir
17.45 Skiðaæfingar(L)
18.15 On We GoEnskukennsla.
18.30 Saltkrákan (L)
19.00 Enska knattspyrnan (L)
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Menntaskólar mætast
20.55 Dave Allen
21.40 Kaldi Luke (Cool Hand
Luke) Bandarisk biómynd
frá árinu 1967. Leikstjóri
Stuart Rosenberg. Aðalhlut-
verk Paul Newman, George
Kennedy og Dennis Hooper.
Luke Jackson er dæmdur til
tveggja ára þrælkunarvinnu
fyrir óspektir á almanna-
færi. Hann stiorkar fanga-
vörðunum og nýtur brátt
mikils álitshinna fanganna.
Myndin er ekki við hæfi
barna. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
23.40 Dagskrárlok
Sunnudagur
5. mars 1978
16.00 Húsbændur og hjú (L)
17.00 Kristsmenn (L)
18.00 Stundin okkar (L)
19.00 Skákfræðsla
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Konungur breiðunnar
Kvikmynd þessi var tekin
sumarið 1976 við ýmsar
bestu veiðiár landsins.
20.55 Röskir sveinar (L)
21.55 Andaskurðlækningar —
kraftaverk eöa blekking?
23.10 Að kvöldi dags (L) Esra
Pétursson læknir flytur
hugvekju.
23.30 Dagskrárlok