Vísir - 04.03.1978, Blaðsíða 25
VISER Laugardagur 4. marz 1978
25
við hvernig þessi nýja fisktegund
litur út, en vissulega er gott til
þess að vita að eitthvað
skuli koma i staðinn þegar þorsk
urinn er að klárast. Vonandi
verður útgerðarmönnum gert
kleift að gera út á slatta, ef það
getur orðið til þess að bjarga
þjóðarbúinu.
— 0 —
t Mogganum á þriðjudaginn
var dálitið skondin yfirlýsing frá
Geir Hallgrimssyni, forsætisráð-
herra: „AÐGERÐALEYSI
RtKISVALDSINS HEFÐI
STEFNT ÖLLU í ÓEFNI.” Og ég
sem hélt að það væru einmitt að-
gerðirnar.
— 0 —
Margir tóku andköf af létti þeg-
ar þeir sáu fyrirsögnina i Visi á
þriðjudaginn: „MATTHtAS t
KREML”. En það dofnaði yfir
mönnum þegar þeir lásu fréttina
sem fylgdi, þvi þar kom i ljós að
þetta var Matthias sjávarútvegs-
ráðherra og hann var meira að
segja kominn aftur til landsins.
—0—
Alþýðublaðið sannaði á þriðju-
daginn að enn eru til hetjur á ts-
landi. Þar var frétt höfð eftir for-
ráðamönnum Sigósildar:
„ÓTTAST EKKI AÐGERÐIR AF
HALFU STJÓRNVALDA.”
Þeir eru ekki margir eftir á
landinu sem hafa slíkt hugrekki
til að bera.
— 0 —
Það var fullt af merkilegum
fréttum í blöðunum á miðviku-
daginn. Sú gagnmerkasta var lik-
lega i Timanum og hún var höfð
eftir bandastjórum Landsbanka
tslands. Fyrirsögnin var svona:
„NAUÐSYNLEGT AÐ VAXTA-
AUKALAN AUKIST MEIRA EN
ÖNNUR ÚTLAN SVO UNNT
REYNIST AÐ STANDA UNDIR
V AXTABYRÐI AF VAXTA-
AUKAINNLANUM.”
Þeir sem skilja þessa fyrirsögn
geta valið um hvort þeir vilja
verða bankastjórar við Lands-
bankann....eða ritsjórar Timans.
— 0 —
Svo var dálitið skemmtileg
auglýsing i Timanum þennan
dag. Hún var frá Félagi Ungra
Framsóknarmanna, vegna máls-
háttahappdrættis sem þeir höfðu
efnt til.
Félögum var tilkynnt að búið
væri að draga og hvert vinnings-
númerið hefði orðið. Þeim var
einnig sagt að vinnings-málshátt-
urinn hefði verið „HVER ER VIÐ
HEIMSKUNA BUNDINN”.
Þetta GETUR nú ekki verið til-
viljun.
— 0 —
Alþýðublaðið var á miðviku-
daginn með frétt sem hefði þótt
stórmerk i henni Ameriku:
„MATTHÍAS SYNIR OPINBER-
UM STARFSMÖNNUM TENN-
URNAR.”
Það varð heimsfrétt á sinum
tima þegar Lyndon Johnson, for-
seti Bandarikjanna, sýndi frétta-
mönnum ör eftir uppskurð, á
mallanum á sér.
Og það hefði örugglega verið
fréttamynd á heimsmælikvarða
ef einhver ljósmyndari hefði ver-
ið viðstaddur þegar opinberír
starfsmenn komu töltandi til að
kikja uppi fjármálaráðherra.
— 0 —
Þjóðviljinn hefur verið í sælu-
vimu undanfarna daga, eins og
jafnan þegar eitthvað nálgst upp-
lausn, iþjóðfélaginu. Oghann var
með dálitla æsifrétt á miðviku-
daginn.
Það var ályktun frá Iðnnema-
sambandi islands: „HRINDUM
KJAR ASKERÐING ARAÐ-
GERÐUM.” Nú vita allir að það
er ljótt að hrinda, enda er neðar á
siðunni ályktun frá Sambandi
islenskra barnakennara: „AL-
GERT SIÐLEYSI.”
— 0 —
Frétt vikunnar var þó (að.sjálf-
sögðu) I Visi, á föstudaginn. Yfi-
fyrirsögnin var: „VANDI
FRYSTIHÚSANNA” og undirfyr-
irsögn: „ÆTLA AÐ ÚTHLUTA
850 MILLJÓNUM”. Ef þeir fara
svona með peningana, er ekki
n.ema von að þeir séu i vandræð-
um. —óT.
(Smáauglýsingar — sími 86611
Bílaviðskipti
Vil kaupa
Toyta Mark 11.
Arg. 1976. Upplýsingar i sima
83820. Staðgreitt.
Moskvitch
árg. 1970 til sölu, mjög vel útlit-
andi. Góð vetrar- og sumardekk á
felgum. Verð 150 þúsund. Stað-
greiðsla. Simi 34663 milli 1-4 i dag.
Land Rover.
Framdrifslokur i Land Rover til
sölu á hálfvirði, spara bensin.
Upp. i sima 30143.
B.M.V. 1600
árg. 1967, gullfaliegur en með bil-
aða vél til sölu. Uppl. i sima 53733.
Toyota Corolla
30 árg. 1976 til sölu. Fallegur og
vel með farinn bill. Skoðaður ’78.
Upplýsingar i sima 72226.
Saab 96 árg. 1971
til sölu. Sérlega fallegur bill.
Skoðaður 1978. Upplýsingar i
sima 72226.
Til sölu
VW 1300 árg. 1966. Hvitur, mjög
gott Utlit að utan og innan. Sum-
ar- og vetrardekk á felgum.
Þarfnast viðgerðar á ventlum.
Staðgreiðsluverð 220 þús. Uppl. i
sima 34518 (eftir hádegi) laugar-
dag og sunnudag milli kl. 1-7.
Mazda 929
Til sölu er Mazda 929 árg. 1975,ek-
inn 64 þús. km. Uppl. i sima 84113
eftir kl. 8.
Rambler
Til sölu Rambler Classic árg. ’65.
Selst ódýrt. Uppl. i sima 85969.
Toyota
Ef kaupa viltu vinur bil,
vagn ég hef með sjarma og stil.
Aldur er á annað ár.
Allur er billinn töff og klár.
Láttu ekki dragast að
leita tilmin.
Ef lánið er meö þér er
Corollan þin.
Til sýnis i Toyotaumboðinu,
Nýbýlavegi 8, Kópavogi, simi
44259.
Hægra innrabretti
óskast á Fiat 127. Uppl. i sima
22789 e. kl. 4.
Mazda 929
sportárg. ’74-’76 óskast til kaups.
Uppl. i sima 74853 eða 37126.
Citroen Dyanne
6. árg. ’71 til sölu. Einnig á sama
stað juke box spilakassi fyrir 100
plötur. Uppl. i sima 33170 milli kl.
17 og 20.
VW 1200 árg. 73.
Mjög vel með farinn og fallegur
bill til sölu. Uppl. i sima 51572.
Volkswagen árg. 1967 til sölu
skemmdur eftir árekstur. Selst
ódýrt. Einnig Telefunken 201 seg-
ulbandstæki. Verð30 þús. Uppl. i
sima 44752.
Moskwich ’73
til sölu, ekinn 62 þús. km. Uppl. i
sima 81228.
Til sölu
Rambler American árg. ’67.
Uppl. i sima 74130 e. kl. 20 á
kvöldin og um helgar.
Óska eftir
að kaupa Ford-vél 6-8 cyl.
Upplýsingar i sima 99-5621 eftir
kl. 8 á kvöldin.
Til sölu
V.W. 1300 árg. 1970, hvitur að lit.
Uppl. eftir kl. 4 i dag og allan dag-
inn á morgun i sima 33114.
Bílaviðgeróir^]
Bifreiðaviðgerðir,
vélastillingar, hemlaviðgerðir,
vélaviðgerðir, boddýviðgerðir.
Stillum og gerum við sjálf-
skiptingar og girkassa. Vanir
menn. Lykill/ bifreiðaverkstæði,
Smiðjuvegi 20, Kópavogi simi
76650.
Bílavélar — girkassar.
Höfum fyrirliggjandi 107 hp. Bed-
ford diselvélar, hentugar I Blazer
og G.M.C. Einnig uppgerða gir-
kassa og milligirkassa i
Land-Rover og 4ra gira girkassa.
Thems Trader og Ford D seria.
Vélverk Bildshöfða 8, sima 82540
Útveguin fjölmargar stærðir
og gerðir af fiskibátum og
skemmtibátum. Seglbátar, hrað-
bátar, vatnabátar. Ótrúlega
hagstætt verð. Höfum einnig til
sölu 6—7 tonn anýlegan dekkbát i
góðu ástandi og 1 1/2—2 tonna
mjög góðan Bátalónsbát, tilval-
inn grásleppubát. Sunnufell,
Ægisgötu7.Reykjavik. Simi 11977
og 81814 á kvöldin. Pósthólf 35.
4 tonna dekkuð trilla
til sölu. Uppl. i sima 92-1415 eftir
kl. 5.
Til sölu
góður 10 tonna bátur, súðbyggð-
ur. Búinn nýju linu- og netaspili
frá Elliða, 24 volta. Handfæra-
vindur. Hagstæð kjör, ef samið er
strax. Uppl. i sima 92-7654.
,-------------
Verdbréfasala )
Skuldabréf.
Sparisklrteini rikissjóðs óskast.
Salan er örugg hjá okkur. Fyrir-
greiðsluskrifstofan, Vesturgötu
17, simi 16233. Þorleifur Guð-
mundsson, heimasimi 12469.
JÖRÐ TIL SÖLU
Tilboð óskast i jörðina Sölvanes i Skaga-
firði. Skipti á fasteign i Reykjavik koma
til greina. Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar veitir
Pétur Viglundsson, simi um Mælifell.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 74. 75. og 76. tölublaöi Lögbirtingablaös-
ins 1977 á eigninni Breiðvangi 28, Ibúð á 2. hæö C Hafnar-
firði, þingl. eign Haraldar Arnasonar, fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsbanka íslands og Baldvins Jónssonar
hdl., á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. mars 1978 kl. 2.00
e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Fró Jasskjallaranum
Frikirkjuvegi. Opið i kvöld. Hljómsveitin
Melkjör leikur.
Jassvakning.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans I Reykjavik, Gjaldheimtunnar,
skiparéttar Reykjavikur, banka, stofnana og ýmissa lög-
manna fer fram opinber uppboð I uppboðssal tollstjóra I
ToIIhúsinu við Tryggvagötu, laugardag U.mars 1978 og
hefst það kl. 13.30.
Seldar verða ýmsar ótollafgreiddar vörur svo sem, skó-
fatnaður, kvenfatnaður, herrafatnaður, vefnaöarvara,
matvara, bifreiðavarahlutir, gólfteppi, plastbátur, hljóm-
plötur, litsjónvarpstæki, orgel, veiöafæri, skrifstofuáhöld,
húsgögn, lim, frystivélar, glervara, fittings, jólaskraut,
myndavélar, hjólbarðar, rafmagnslyftari og margt fleira.
Ennfremur skrifstofuvélar, skrifstofuáhöld, hljómburöar-
tæki, sjónvörp, myndvarpi, heimilistæki, húsmundir,
málverk og veggmyndir, sandblásari, bilskifrshurð, bif-
reiðin R-57642 Fiat 127 1974 og úr þb. Iðntækni h.f. : Ohm-
former 27 kw dc inn-115 kw út (spennubreytir) málmleit-
artæki (taska og stöng) mikrofonfilmulesari o.fl.
Agisanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með sam-
þykkti uppboöshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við ham-
arshögg.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nouðungaruppboð
sem auglýst var i 94., 97. og 100. tbl. Lögbirtingablaðsin á
Logalandi40 þingl. eign Hallgrims Sandholt fer fram efir
kröfu Veödeildar Landsbankans, Verslunarb. tsl. h.f. og
Jóns Ólafssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudag 8 mars.
1978 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Hraunbæ 130 þingl. eign Sigurð-
ar Nielssonar fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag 8.
mars 1978 kl. 14.30
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 78. 79. og 80. tbl. Lögbirtjingablaðs 1977 á
hluta i Frakkastig 19, þingl. eign Magnúsar Garðarssonar
fer fram eftir kröfu Jóns E. Ragnarssonar hrl. og Lands-
banka tslands á eigninni sjálfri miðvikudag 8. mars 1978
kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 54., 59. og 63. tbl. Lögbirtingablaös 1977 á
Keilufelli 23, þingl. eign Lúöviks Guðmundssonar fer fram
eftir kröfu Einars Viðar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudag
S.mars 1978 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem agulýst var 154., 59. og 63. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á
hluta i Grettisgötu 52, talin eign Viggós Helgasonar fer
fram eftir þröfu Lifeyrissj. verslunarmanna á eigninni
sjálfri miðvikudag 8. mars 1978 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 38., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1976 á
hluta I Gnoðavogi 66, þingl. eign Sigurðar Sigurðssonar fer
fram eftir kröfu Arna Guðjónssonar hrl., Ingvars Björns-
sonar hdl, Kristins Björnssonar hdl., Einars Viöar hrl„
Helga V. Jónssonar hrl., Guðm. Péturssonar hrl. og Út-
vegsbanka tslands á eigninni sjálfri miðvikudag 8. mars
1978 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53. 57. og 61. tölublaði Lögbirtingablaös-
ins 1977 á eigninni Hagaflöt 3, Garðakaupstað, þingl. eign
Guðrúnar Eiriksdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu Garða-
kaupstaðar, á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. mars 1978
kl. 3.00 e.h.
Bæjarfógetinn i Garöakaupstaö.