Vísir - 22.06.1978, Page 2
‘VISIR
spyr
Telur þú að skoðanakönn-
un Visis sýni hvert straum-
urinn liggur i kosningun-
um?
Runólfur Kristjánsson vinnur hjá
Essó: Ja, ég veit nú ekki hvaö á
að segja. Ég trúi nú varla aö
breytingin veröi eins mikil og
kom fram i skoöanakönnuninni.
Ætli fylgi flokkanna veröi ekki
eitthvaö svipaö eftir kosningar og
veriö hefur.
Brynhildur Pétursdóttir húsmóö-
ir: Nei, þaö held ég ekki. Ég trúi
ekki aö Sjálfstæöisflokkurinn fari
svona illa út úr þessu. Ég held að
einhver feill hafi veriö tekin á
landskjöri og borgarkjöri þarna.
Geirmundur Vaitýsson, fyrrver-
andi bóndi: Nei, ég held aö þaö sé
nú ekki rétt. trtkoman úr kosnin-
unum veröur llklega eitthvaö
svipuö og i fyrra. Þó getur veriö
að Alþýöuflokkurinn vinni eitt-
hvað á.
Ragna Siguröardóttir starfar I
sveit: Ég gæti vel trúaö þvi. Mér
sýndist allt benda til þess aö
kosningarnar fari eins og útkom-
an úr skoöanakönnuninni sýnir.
Rut Arnadóttir, húsmóöir: Ég
held ekki aö þaö veröi eins mikil
breyting og fram kemur i skoö-
anakönnuninni. Allavega vonar
maöur þaö. Ég tel aö viö fáum
hægri stjórn eftir kosningar en
ekki vinstri stjórn eins og útkom-
an úr skoðanakönnuninni viröist
benda til.
Fimmtudagur 22. júni 1978
'VISIB
Vilhjálmur Einarsson
Visismynd: Þórir
Hótel Edda í Reykholti:
BJÓÐA GEST-
UM UPP Á
NÁMSSKEIÐ
í MYNDGERÐ
,/Myndnám hefur að mínum dómi verið allt of einhliða í
íslenskum skólum og nemendur hafa ekki fengið rétta
hugmynd um myndsköpun", sagði Vilhjálmur Einarsson
nýskipaður skólameistari á Egilsstöðum i samtali við
blaðamenn er hann kynnti nýbreytni í starfsemi Eddu-
hótelsins í Reykholti.
Vilhjálmur var i forsvari fyrir
hópi áhugamanna sem hefur
samiö viö Hótel Eddu i Reykholti
um aöstööu til helgardvalar á
hotelinu fyrir fólk sem hefur
áhuga á sjálfstæöri myndsköpun
og náttúruskoðun. Dvölin, frá
föstudegi til sunnudags, kostar
um 9800 fyrir manninn og er inni-
falið i þvi tilsögn i myndiö, fæöi og
húsnæöi, sund og gufubaö og
stendur þetta til boða i júlimán-
uöi.
Vilhjálmur sagði að dagskráin
væri mjög frjáls og menn gætu
ráðið tima sinum að mestu sjálfir
og sinnt þeim áhugamálum sem
hugurinn girnist. Unnið veröur i
hópum með tilsögn kennara i
teiknun, málun með vatnslitum
eða oliulitum, ljósmyndun og
myndgerð, t.d. klippimyndir,
spónmyndir, mynsturgerö og
fleira. Vilhjálmur benti á að i ná-
grenni Reykholts væru margir
stórmerkir staöir frá myndrænu
og náttúrufræöilegu sjónarmiði
svo sem Hraunfossar og Barna-
fossar.
Fjöldi leiöbeinenda fer eftir
þátttökunni og taldi Vilhjálmur
aö hér væri höföað til áhugafólks
á breiðu sviöi a.m.k. eftir þeim
fjölda málverkasýninga sem
skjóta upp kollinum vitt og breitt
um landið. Allt efni sem notað er
viö myndiöina fæst á staðnum
Þaö er einnig ætlunin aö sinna
sköpunarþörf barna og fá þau
ókeypis þekjuliti og pappir. Fyrir
börn á aldrinum 6-12 ára greiöist
hálft gjald en ókeypis er fyrir
yngri. Ef menn vilja dvelja leng-
ur er mögulegt aö semja viö hót-
elið um að tengja saman tvær
helgar. Verðiö er miöað við aö
þátttakendur komi sjálfir meö
rúmfatnað og skili herbergjunum
hreinum. Hins vegar geta þeir
fengið rúmfatnaö leigöan. —KS.
Málamiðlun á sögulegum grunni
I
Skoöanakannanir siödegis-
blaöanna benda til mikilla sig-
urmöguleika Alþýöuflokksins.
Nýtur flokkurinn þar stjórnar-
andstööu sinnar, og einnig þess
aö fram á sjónarsviöiö hafa
komiö ungir menn, sem áöur
hafa ekki gefiö sig aö stjórnmál-
um svo teljandi sé, og svo, aö sá
hópur flokksins, sem hreiöraö
haföium sig iReykjavik og vildi
ekki nema þaö fylgi sem hægt
var aö sinna meö sæmilegri
yfirferö og fyrirgreiöslum,
hefur ekki náö fötfestu I forust-
unni.
Og enn kom til, aö f jórtán þús-
und manns ákváöu á eigin spýt-
ur I prófkjörum hverjir skyldu
veröa næstu frambjóöendur
flokksins.
Núverandi formaöur Alþýöu-
flokksins, Benedikt Gröndal, er
kominn tíl valda fyrir tilstuölan
landsfulltrúa á flokksþingi.
Hefur þaö löngum veriö venjan,
aö flokkurinn hefur kjöriö sér
formann, sem ekki nýtur fylgis
Reykjavikurhópsins, og svo var
einnig þegar Benedikt var kjör-
inn. Flokkurinn hefur þvi fram
aö þessu veriö klofinn hvaö
þetta snertir hvaö sem veröur
eftir kosningarnar, þar sem
kannanir sýna aö nýir menn
kunna aö komast I trúnaöar-
stööur.
Stundum er talaö um óreynda
menn I pólitfk, og er þá átt viö
nýliöa eins og þá sem nú berjast
til þingsæta fyrir Alþýöuflokk-
inn. Þetta reynsluleysi hefur
vissakostii för meö sér, og m .a.
þann, aö galmar klisjur veröa
mönnum siöur aö fótakefli.
Engu aö siöur blöur mikill
stjörnmálalegur vandi Alþýöu-
flokksins, þótt ekki nema aöeins
hluti þeirra spádóma rætist.sem
nú eru uppi um fylgisaukningu
hans. Vandinn sem fylgir hugs-
anlegri stjórnarmyndun getur
oröiö mikill sé ekki stuöst viö
sögulegar staöreyndir siöustu
áratuga og pólitiska þróun I
Iandinu frá 1930.
Þaö er staöreynd, aö hér I
Reykjavik er mikill fjöldi Al-
þýöuflokksmanna, sem kærir
sig kollóttan um kosningasigur,
og mun t.d. kjósa allt fremur en
Vilmund Gylfason á þing, 1
þeirra augum er Vilmundur
svona ámóta pólitiskur aöskota-
hlutur og þeir formenn, sem
landsfulltrúarnir hafa veriö aö
setja yfir flokkinn i óþökk
Reykjavikurhópsins.
Þótt svo tækist til, aö Björgvin
Guömundsson næöi nógu góöri
kosningu I borgarstjórnarkosn-
ingunum til aö færa annan full-
trúa meö sér I borgarstjórn,
heyrir stuöningsliö Björgvins til
þeim hópi flokksmanna I
Reykjavík sem vilja sem'
minnstafhinu nýja umrótil Al-
þýöuflokknum vita. Björgvin
hefur einmitt undanfariö veriö
aö setja „sína” menn I trún-
aöarstööur án þess aö
spyrja kóng eöa prest, og hefur
þvl um leiö veriö aö innsigla
þaö, aö hann mun ekki þykja
nothæfur hjá Alþýöuflokknum
komi hiö nýja liö til meö aö
vinna umtalsveröan kosningsig-
ur. Vinnubrögö hans og val
manna passar einfaldlega ekki
viö þá imynd, sem nýja liöiö er
aö reyna aö skapa. Uppgjör
þarna á milli er þvi óhjákvæmi-1
legt fyrr eöa siöar.
En önnur og vandasamari af-
staöa biöur Alþýöuflokksins
eftir kosningar, fari svo aö þeir
veröi aftur sterkt afl I þjóömál-
um, og þaö er afstaöan tii
Framsóknarflokksins. Báöir
þessir flokkar hafa borist á
banaspjót á undanförnum ár-
um, þótt þeir væru báöir runnir ,
úr sama islenska hugmynda-
kerfinuá sinum tlma meö Ivafi
breskrar verkamannastefnu frá
öörum tug aldarinnar. Samleiö
þeirra á fyrri hluta aldarinnar
var þýöingarmikil fyrir tsland.
Þótt nú séu „köld og komin I
mold, Kormáks augun svörtu”,
mundisamtsem áöurekk'i saka
aö gera sér grein fyrir þvi aö
þessir flokkar geta átt miklu
sögulegu hlutverki aö gegn i ná-
inni framtiö fáist þeir til aö
sliöra sveröin og ganga til sam-
starfs meö Sjálfstæöisflokkn-
um.
Svarthöföi.