Vísir - 22.06.1978, Page 16
JAFNTEFU
í KRIKANUM
FH-ingar og Víkingar geröu
jafntefli, hvort liöiö geröi þrjú
mörk er þau áttust viö I fyrstu
deild islandsmótsins i knatt-
spyrnu. FH-ingar komu mjög á
óvart i ieiknum, og heföu átt sig-
urinn fyllilega skiliö.
A 23. minútu skoruöu FH-ingar
fyrsta markiö i leiknum, og var
Leifur Helgason þar aö verki,
skaut af stuttu færi. Ekki liöu
nema þrjár minútur er FH-ingar
bæta viö ööru marki sinu, en þaö
geröi Janus Guölaugsson af tutt-
ugu metra færi. I seinni hálfleik
komu Vikingar mjög sterkir til
leiks, og skoruöu tvö mörk meö
stuttu millibili. Fyrst Arnór Guð-
jónsen meö skalla, og siöan
Gunnar Orn Kristjánsson gullfal-
legt mark af löngu færi. Um miöj-
an hálfleikinn bættu FH-ingar viö
þriðja markinu, og var Ólafur
Danivalsson þar á feröinni meö
góöum skalla. Rétt fyrir leikslok
jafna Vikingar leikinn með marki
frá Lárusi Guömundssyni af
stuttu færi. FH-ingar verða aö
teljast óheppnir að fara ekki meö
sigur af hólmi i þessum leik, þvi
aö þeir voru miklu betri aöi íinn i
þessum leik. Dómari leiksins var
Guömundur Haraldsson, og
dæmdi vel.
—JKS
Fram með stig
fró Keflavík
Keflvikingar og Framarar
geröu jafntefli, eitt mark gegn
einu, I fyrstu deild islandsmótsins
i knattspyrnu, er liöin kepptu I
Keflavik i gærkvöldi. Hávaöarok
var meöan á leiknum stóö, og
geröi leikmönnum erfitt um vik.
Framarar léku undan vindi I
fyrri hálfleik, og sóttu öllu meira.
Framarar komust i mörg góð
tækifæri, t.d. átti Eggert Stein-
grimsson tvö þrumuskot aö
marki Keflvikinga, en Þorsteinn
Bjarnason varöi vel i bæöi skipt-
( STAÐAN )
T .. V
Staöan I fyrstu deild tslands-
mótsins i knattspyrnu er nú
þessi:
Akranes
Valur
Fram
tBV
Vikingur
Þróttur
KA
Keflavik
FH
Breiöablik
8710 25-7 15
6 6 0 0 17-5 12
8 4 13 11-8 9
7322 12-10 8
7313 13-15 7
7142 9-11 6
6 1 3 2 6-7 5
8134 10-14 5
7044 12-22 4
7 0 1 6 4-18 1
Næsti leikur er I kvöld. Þá leika
Valur og KA á Laugardalsvelli og
hefst leikurinn kl. 20.00.
Mark Fram kom á 35. minútu,
er Asgeir Eliasson gaf háan bolta
fyrir markiö, Guðjón Guðjónsson
hugöist hreinsa frá, en mistókst,
og þaö var Kristinn Jörundsson,
sem afgreiddi knöttinn meö
snöggu skoti i mark Keflvikinga.
I seinni hálfleik höföu Keflvik-
ingar hins vegar vindinn meö sér,
og fóru aö sækja talsvert. Þaö bar
árangur á 3. minútu, er Einar As-
mundsson gefur góöa sendingu
fyrir markiö, og þar kemst Stein-
ar Jóhannsson inn á milli, og
skorar örugglega.
Þaö sem eftir lifði hálfleiksins
skiptust liðin á marktækifærum
sem sköpuöu mikla hættu, en inn
vildi knötturinn ekki fara.
—JKS.
LIDII) MITI
Atkvœðaseðill í kosningu VÍSIS um vinsœlasta
knattspyrnuliðið sumaríð 18
P.O. Box 1426, Reykjavik.
LIÐIÐ MITT ER:
NAFN
HEIMILI
BYGGÐARLAG
Sendu seðilinn til VÍSIS Siðumúla 14, Reykjavik
strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr
nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni
og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna
úttekt á sportvörum hjá ÚTILÍF 1 GLÆSIBÆ
Aukavinningurinn er dreginn er út i lok kosning-
arinnar úr atkvæðaseðlum þeirra, sem greiddu
vinsælasta iiðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna
úttekt á sportvörum i _ VERSLUNINNI
(JTILÍF í GLÆSIBÆ
VINNINGAR HÁLFSMÁNAÐARLEGA
y
Argentina'78
Hvað sögðu þeir?
„ttalirnir komu okkur mjög i opna skjöldu
meö leik sinum i fyrri hálfleiknum og þá gát-
um viö ekki leikiö okkar venjulegu knatt-
spyrnu. En viö náöum undirtökunum I siöari
hálfleik, og sigur okkar i þessum leik var
sanngjarn” sagöi Ernst Happel, fram-
kvæmdastjóri hollenska liösins, eftir sigur-
inn gegn ttaliu i gærkvöldi.
„Italirnir léku mjög skemmtilega i fyrri
hálfleiknum.eneftiraö églét Neeskens fara I
sóknina I siðari hálfleik fór dæmiö að ganga
upp, og nú förum viö aö huga aö leiknum á
sunnudaginn”.
„Auðvitað heföi ég viljaö sitja uppi meö
sigur og enda feril minn meö' v-þýska liöiö I
3. sæti, en við þessu er ekkert aö segja. Viö
eigum hreinlega ekki eins gott liö núna og
1974 og veröum að taka afleiöingunum af
þvi” sagði hinn frægi v-þýski þjálfari
Helmut Schön eftir tapleik sinna manna gegn
Austurríki, en Schön kveður nú sem lands-
liðsþálfari eftir 14 árangursrikt starf.
„Það var hryllilegt að missa Zico útaf I
fyrri hálfleik og setti okkur úr jafnvægi”
sagði Coutinho framkvæmdastjóri Brasiliu
eftir leik sinna manna viö Pólland, en bætti
við að hann vildi ekkert segja nánar fyrr en
eftir leik Argentinu og Perú sem hann ætlaöi
aö sjá I sjónvarpi ásamt sinum mönnum.
„Þetta tókst og það var stórkostlegt” sagöi
hinsvegar þjálfari Argentinumanna, en hann
var varla viðmælandi eftir leikinn viö Perú
sökum ánægju, og lái honum hver sem vill.
Búbbi mœttur
í slaginn
Jóhannes Eövaldsson er kominn heim til aö
leika landsleikinn gegn Dönum I næstu viku.
Hann kom igærdag, og brá sér strax á æfingu
hjá gömlu félögunum sinum hjá Val. Var
ekki annað aö sjá en kappinn væri i góöu
„formi” og er vissulega mikill styrkur af
honum i leikinn gegn Dönunum.
i dag á Jóhannes að fara á æfingu hjá Youri
Ilitchev scm ætlar að kanna i hvaða ástandi
Jóhannes er, og sföan hefjast æfingar hjá
landsliðshópnum um helgina en hann veröur
tilkynntur á blaðamannafundi á mórgun
Jóhannes sagði aö ekkert heföi gerst I
samningamálum sinum hjá Celtic, þeir væru
, ekki á blaði þessa dagana. Nú hugsaði hann
bara um leikina gegn Dönum.
klp—.
Akurnesingor
enn ósigrandi
Akurnesingar halda slnu striki i ls-
landsmótinu i knattspyrnu. t gærkvöldi
lögðu þeir Vestmannaeyinga aö velli
með þremur mörkum gegn tveimur,- I
leikhléi var staðan 2-1 Akurnesingum I hag.
Pétur Pétursson var mjög atkvæðamikill I
leiknum, og geröi tvö góð mörk, og Matthfas
Hallgrimsson geröi eitt mark, og jafnframt
tiunda mark hans I deildinni i ár. Karl
Sveinsson gerði bæöi mörk Eyjamanna.
Leikurinn þótti mjög fjörugur á köflum, sem
Eyjamenn áttu öll meira f, og voru óheppnir
að ná ekki aö minnsta kosti jafntefli.
Akurnesingar virðast vera í mjög miklum
ham um þessar mundir, hver sigurleikurinn
á fætur öörum, og er greinilcgt hvert liðiö
stefnir.
—JKS.
Fimmtudagur 22, júnl 1978 VÍSIR __________VtSTR Fimmtudagur 22. júni 1978
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
Mario Kempes sýndi frábæran leik I gærkvöldi, og skoraði tvö mörk. Hann gerði einnig tvö mörk gegn
PóIIandi. En á þessari mynd sést hann liggja I valnum I leiknum gegn Pólverjum.
Argentínumönnum
tókst að komast
í úrslitaleikinn
— Eftir glœsilegan 6:0 sigur gegn Perú í síðasto
leiknum í milliriðtakeppninni
Argentfnsku knattspyrnumenn-
irnir sem i gærkvöldi unnu Perú
6:0 og komust þar meö i úrslit i
heimsmeistarakeppninni eru nú
þjóðhetjur i heimalandi sinu, og
e.t.v. ekki að ástæöulausu. Þeim
tókst það ótrúlega, að sigra Perú
með meira en þriggja marka mun
i gærkvöldi, og það nægði til að ná
hagstæðara markahlutfalli en
Brasiliumenn, sem verða nd aö
gera sér að góðu að leika um 3.
sætið í keppninni.
Já, leikmenn Argentinu léku
snilldarknattspyrnu i gærkvöldi,
og Perúmenn áttu ekkert svar.
Mörkin hlóöust upp, voru oröin
tvö i hálfleik, og 6 talsins áöur en
yfir lauk. Veröi argentinsku leik-
mennirnir I þessum ham gegn
Hollandi, má svo sannarlega bú-
ast viö æsispennandi úrslitaieik á
sunnudaginn.
Argentlnsku leikmennirnir hófu
ieikinn meö sókn undir eins og
fyrsta tækifæriö til aö skora kom,
á 4. mínútu.
Þaö var Mario Kempes,sá sem
skoraði bæöi mörkin gegn Pól-
landi, sem skoraöi fyrsta mark
leiksins á 20. minútu. Kempes
fékk þversendingu fyrir markiö,
og eftir aö hafa leikið á varnar-
menn Perú skoraði hann 1:0.
Siöan átti Luque skot i stöng og
Ortiz skot i þverslá, en Arantini
skoraöi glæsilegt skallamark á
43. minútu — staðan 2:0.
Og áfram hélt sókn Argentlnu.
Varla voru áhorfendur búnir aö
koma sér fyrir er staöan var oröin
3:0. Þaö var strax á 3. minútu I
siðari hálfleik að Kempes skor-
aöi. Bartoni tók frispark, Kempes
tók boltann fallega niður, lagöi
hann fyrir Luque sem gaf aftur á
Kempes og .... 3:0.
Og þremur minútum siöar var
staöan oröin 4:0. Þá var þaö
Luque sjálfur sem skoraöi með
gullfallegu langskoti.
A 66. minútu bætti Rene House-
man fimmta markinu við, en þá
var hann nýkominn inná sem
varamaður, og Luque átti loka-
orðiö, skoraöi 6. mark Argentinu
á 72. minútu og þar viö sat.
Eins og nærri má geta varð allt
vitlaust I Argentinu eftir þennan
sigur. Þar var dansaö og sungiö
um allt land i alla nótt, fólk hrein-
lega tryllt af fögnuöi.
Og nú biöa menn spenntir eftir
sunnudeginum, þvi þá fæst spurn-
ingunni svaraö: Hvort veröur þaö
Holland eða Argentina sem
hreppir heimsmeistaratitilinn I
knattspyrnu áriö 1978? gk-.
Holland
aftur
í úrslit
ó HM!
Hollendingum tókst þaö, —
þeir eru komnir I úrslit heims-
meistarakeppninnar i knatt-
spyrnu I annaö skiptið i röð,
eftir að hafa unnið stórkostleg-
an 2:1 sigur gegn ttaliu I Buenos
Aires I gærdag.
Það merkilegasta við þennan
sigur er þó það að Holland var
einu marki undir i hálfleik eftir
að Ernie Brandts haföi skorað
sjálfsmark og ekki nóg meö það.
Markvörður þeirra Schrijvers,
var borinn af velli slasaöur um
miðjan fyrri hálfleikinn.
En i siöari hálfleiknum sýndu
þeir hollensku virkilega hvers
þeir eru megnugir. Þeir léku þá
stórkostlega knattspyrnu og tvö
mörk þeirra, skoruö af mjög
löngu færi,tryggöu þeim sigur
og sæti I úrslitaleiknum á
sunnudaginn gegn Argentinu.
En Italirnir voru óheppnir aö
ná ekki þaömiklu forskoti i fyrri
hálfleik aö það heföi nægt þeim
til sigurs þvi ekki hefði verið
ósanngjarnt aö þeir heföu haft
yfir 3:0strax eftir 10 minútur og
allan fyrri hálfleikinn virtust
þeir hafa góð tök á leiknum.
Italia tók forustuna á 19.
minútu eftir aö hafa pressað
nær stanslaust aö hollenska
markinu, og átt mörg góð mark-
tækifæri. Paolo Rossi átti þá
sendingu á Roberto Bettega
sem komst framhjá Schrijvers I
markinu. En þá kom Ernie
Brandts þar aö og ætlaöi aö
hreinsa frá. Þaö tókst þó ekki
betur en svo aö hann sendi bolt-
ann I markiö og sparkaði um
leiö i markvöröinn svo bera
varð hann af vellinum!
Þaö sem eftir var hálfleiksins
sóttu Italir mun meira en þeim
tókst ekki aö bæta viö markatöl-
una.
Þaö var allt annaö hollenskt
liö sem kom til leiks i siöari
hálfleiknum, og munaði miklu
aö Johan Neeskens sem haföi
gætt Paolo Rossi I fyrri hálf-
leiknum fór aö taka meiri þátt i
sóknarleiknum.
Og Ernie Brandt átti eftir aö
bæta fyrir sjálfsmark sitt á
besta hátt. Hann jafnaði leikinn
meö þrumuskoti af 20 metra
færi á 50. minútu/ algjöru
„dúndurskoti” sem Dino Zoff
átti ekki möguleika á aö verja.
Arie Haan skoraöi siöan
sigurmarkiö á 75. minútu, og
ekki var þaö siöur glæsilegt en
fyrra mark Hollands.
Bakvöröurinn Jan Poortviet
gaf þá á Haan og hann skoraöi
með þrumufleyg, af 40 metra
færi/sem söng og hvein I itölsku
netamöskvunum.
Mikil harka var i leiknum
Rudi Krol, fyrirliöi HolIendinga,hefur átt frábæra leiki meö hollenska
liöinu I Argentlnu, og veriö sá brimbrjótur sem andstæöingum hans
hefur gengiö illa aö sneiöa hjá.
eftir aö Holland haföi jafnaö
leikinn og ekki færri en fimm
leikmenn fengu aö sjá gula
spjaldið hjá dómaranum. Það
var vissulega sárt fyrir Italiu aö
missa þetta niöur og leikmenn
liösins brugöu fyrir sig hörkunni
er á móti blés.
Þaö kann að veröa þeim dýrt.
Romeo Benetti og Marco
Tardelli, lykilmenn I miðjuspili
þeirra,voru báöir bókaöir i 2.
skipti i keppninni og geta ekki
tekiö þátt I leik Italiu gegn
Brasiliu um 3. sætið á laugar-
daginn. gk-
Lokastaöan i milliriölunum i
heimsmeistarakeppninni i
Argentinu varö þessi:
A-riöill:
Holland
italia
V-Þýskaland
Austurriki
l
B-riöill:
Argentina
Brasilia
Pólland
Perú
3 2 1 0 9:4 5
3 1 1 1 2:2 3
3 0 2 1 4:5 2
3 1 0 2 4:8 2
3 2 1 0 8:0 5
3 2 1 0 6:1 5
3 1 0 2 2:5 2
3003 0:10 0
KRANKL SÁ UM
V-ÞJÓÐVERJA!
— Skoraði tvívegis og Austurríki sigraði 3:2
HM I KNATTSPYRNU 1978
Vonir Brasilíumanna
skyndilega að engu!
„Vonir Brasiliumanna um að
komast I úrslit i heimsmeistara-
keppninni eru nú geysilega mikl-
ar” sagöi I fréttaskeyti Reuter
eftir 3:1 sigur Brasiliu gegn Pól-
landi i gærdag. — En eins og fram
kemur hér á siöunni urðu þær
vonir að engu um miönættið I
gærkvöld, er Argentinumenn tóku
Perúmenn I karphúsiö og unnu þá
með nægilega miklum mun til aö
komast sjálfir i úrslitaleikinn
gegn Hollendingum.
Brasiliumenn leika þvi gegn
ítaliu um 3. sætið i keppninni, en á
tímabili I gærkvöldi leit ekki út
fyrir aö svo myndi fara.
Það var bakvörðurinn Nelinho
sem skoraði fyrsta mark Brasiliu
gegn Póllandi, er hann tók auka-
spyrnu eftir aö Gil hafði veriö
brugðiö fyrir utan vitateig. Ne-
linho sendi boltann meö glæsilegu
skoti yfir varnarvegg Pólverja og
i markiö.
Pólverjar sóttu siöan grimmt
og allan hálfleikinn lá jöfnunar-
mark þeirra i loftinu.
Það kom svo á 44. minútu.
Boniek átti þá sendingu inn i vita-
teiginn ætlaða Deyna. Hans var
hins vegar vel gætt af þremur
varnarmönnum, og er boltinn
hrökk frá þeim var Lato á auðum
sjó og skoraöi örugglega.
1 siðari hálfleik skoraði svo Ro-
berto tvivegis fyrir Brasiliu bæði
á 57. og 62. minútu, og áttu þá
flestir von á aö þessi sigur myndi
fleyta Brasiliu i úrslitaleikinn. En
leikmenn Argentinu hafa greini-
lega veriö á ööru máli.
Þaö er talið sem meiri háttr
áfall i Brasiliu ef landsliöi þeirra
tekst ekki aö komast i úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar
hverju sinni, og hætt er viö aö
margir þar i landi hugsi nú ljótar
hugsanir I garð argentinsku leik-
mannanna.
gk—.
Fyrsti ósigur V-Þýskalands
gegn nágrönnum sinum frá
Austurriki i knattspyrnu I 47 ár
kom svo sannarlega á slæmum
tima fyrir V-Þýskaland. Ekki þaö
aö sigur hefði fært V-Þjóöverjum
möguleika á aö endurheimta
heimsmeistaratitil sinn i Argen-
tinu, en sigur gegn Austurriki
eftir ósigur ltaliu gegn Hollandi
heföi gefið V-Þjóöverjum tæki-
færi til aö ná i 3. sætiö i keppninni,
og meö þvi heföu þeir bjargaö
andlitinu dálitiö. En þaö tókst
ekki, og V-Þjóöverjarnir snúa nú
tómhentir heim á leið.
Þaö var hinn marksækni mið-
herji Austurrikis, Hans Krankl,
sem sá um að afgreiöa V-Þjóð-
Argentina '78
verjana,öörum fremur,i Cordoba i
Argentinu i gærkvöldi. Hann
skoraði tvö af mörkum Austur-
rikis sem sigraöi 3:2, og það siö-
ara var úrslitamark leiksins
tveimur minútum fyrir leikslok.
V-Þjóðverjar tóku þó forustuna
i leiknum á 18. minútu er Karl-
Heinz Rummenigge skoraöi, og
þannig var staöan allt fram á 59.
minútu. Þá varð fyrirliöa V-Þjóö-
verja, Berti Vogts, það á aö skora
sjálfsmark, þegar honum mis-
tókst aö skalla frá marki háa
sendingu sem kom fyrir markiö.
Austurriki náöi siöan forust-
unni á 65. minútu er Hans Krankl
skoraöi meö góöu skoti I fjærhorn
eftir sendingu frá Eduard Kreig-
er.
En stuttu siðar var aftur jafnt.
Þá tók Bonhof eina af sinum góöu
aukaspyrnum inn i vitateiginn og
Hozenbein skallaöi laglega i
markiö — 2:2.
Viö þetta mark færöist nokkur
harka i leikinn, en marktækifæri
voru ekki mörg eöa mjög hættu-
leg fyrr én markaskorarinn mikli
Hans Krankl skoraði sigurmark
„litla” Austurrikis yfir „stóra”
nágranna sinum og stórveldinu I
knattspyrnu.
En fögnuður Austurrikismanna
var mikill i leikslok. Þeim haföi
tekist aö leggja heimsmeistara ab
velli, takmarkinu sem þeir höföu
lýst yfir fyrir leikinn var náö,
heimsmeistararnir lágu sigraöir
eftir i valnum i bókstaflegri
merkingu.
gk—.
Hans Krankl. Þessi sókndjarfi
leikmaöur skoraði tvivegis gegn
V-Þjóöverjum I gærkvöldi.