Vísir - 22.06.1978, Síða 22
22
Fimmtudagur 22. júni 1978 VISIR
<•
Léttar-
meófærilegar
viðhaldslitlar
Stöíö
ESTA8USHE01B7S
VA1
DÆLUR
Ávallt fyrirliggjandi. Góó varahlutaþjónusta.
ÞÞ þ. ÞORGRÍMSSON & CO
WW 'Armúla 16 ■ Reykjavík • sími 38640
þjbppur
slipivélar
&
vihratorar
o
sagarbloð
Jt/
steypusagir
þjoppur
V
bindivirsnillur
Heilsuræktin HEBA Auðbrekku 53— Sími 42360
Dömur athugið!
Nýtt 4ra vikna námskeið i
leikfimi hefst 3. júli.
Kvöldsímar, nudd, sauna
og Ijós.
Pantanir i síma 86178.
10 tíma nuddkúrar eða
stakir nuddtimar.
86178-86178-86178
KOSMNGA
HUDBOKM
Békabúðir og söluturnar
Ódýrari, en vandaðri
Aðeins 800 kr.
Tryggvagötu 4
Reykjavik
simi 12040
Á framboðsfundi á Akureyri:
PRÚÐIR MENN
í SJALLANUM
t ræöustól er Jón Geir Lúthersson og fyrir neöan sviöiö má greina frá vinstri: Inga Tryggvason, Lárus
Jónsson og Jón Sólnes, Arna Gunnarsson, Braga Sigurjónsson, Jón Helgason og Astu Jónsdóttur.
Þaö var farið að gæta
nokkurrar þreytu hjá
frambjóðendum stjórn-
málaflokkanna á Norður-
landi eystra er þeir héldu
sameiginlegan fund á
Akureyri. Þetta kom með-
al annars'fram í því, að
sumir ræöumanna fóru að
svara mótframbjóðanda
sem þá hafði ekki tekið til
máls á fundinum heldur
einhverjum öðrum fund-
um.
Annars er þaö ekkert skritiö 1
þótt menn hafi veriö orönir
þreyttir. Fundurinn á Akureyri á
þriöjudagskvöldiö var sá siöasti
af mörgum sameigiinlegum
Sverrir Pálsson fundarstjóri til vinstri og Rafn Hjaltalfn tima-
vöröur.
fundum sem flokkarnir hafa
haldiö I kjördæminu á undanförn-
um vikum og þetta eru langir
fundir. Aheyrendur fá að horfa á
ræðumenn og hlusta, en þaö er
lika allt sem þeir mega gera á
þessum fundum. Efstu menn list-
anna geröu meö sér þaö sam-
komulag aö ekki mætti bera fram
fyrirspurnir og þar viö sat þrátt
fyrir óánægju kjósenda.
Hluti áheyrenda sést hér klappa fyrir einum ræöumanna. Til hægri
er Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri og gengt honum viö boröiö
sitja Sigurður óli Brynjólfsson og Siguröur Jóhannesson sem sitja i
bæjarstjórn fyrir Framsókn.
Fólk sem ég hitti á götum seinni-
hluta dags vissi almennt ekki um
neinn fund. „Hvaöa fundur er
þaö?” var spurt þegar þaö var
innt eftir því hvort þaö ætlaði á
fundinn.
Veður var mjög kalt þennan
dag og menn héldu sig innan
dyra. Kosningasmalar voru von-
daufir um aösókn en sögöu aö
ákveöiö heföi veriö aö útvarpa
fundinum um endurvarpsstööina
i Skjaldarvik.
Þegar útvarpa þarf frá Akur-
eyri þá er það númer eitt að tala
viö Björgvin Júniusson, eöa
Badda Jún eins og hann er gjarn-
an nefndur. Hann stjórnar öllu
svoleiðis af röggsemi og tilfinn-
ingu, passar að draga niöur i
ræöumönnum ef þeir brýna
raustina og auka styrk á þeim
sem kjósa að tala i lágum trún-
aöartón við áheyrendur. tltsend-
Hvaða fundur?
Fundurinn á Akureyri var hald-
inn i Sjálfstæðishúsinu og hófst
klukkan 20.30..Eitthvaö haföi boö-
un fundarins fariö i handaskolum.
Baddi stjórnar útvarpssendingum.
Texti: Sœmundur Guðvinsson Myndir: Jens Alexandersson