Vísir - 22.06.1978, Qupperneq 23
23
VISIR Fimmtudagur 22. júni 1978
ing sem Baddi stjórnar bregst
ekki tæknilega en enga ábyrgö
tekur hann á efninu sem flutt er.
Þegar viö Jens ljósmyndari
komum í Sjallannstuttufyrir aug-
lýstan tima voru fáir komnir.
Fundarstjóri var Sverrir Pálsson
skólastjóri Hann kenndi mér is-
lensku i eina tiö meö þeim ár-
angri aö mitt lifibrauö byggist aö
miklu leyti á þvi sem ég læröi þá.
Timavöröur er Rafn Hjaltalin,
bæjargjaldkeri á Akureyri og
kunnur knattspyrnudómari. Gott
aö hafa dómara til aö passa aö
enginn hafi rangt við og steli
meiri tima en honum ber.
Ræðumenn flokkanna sitja við
borö fyrir framan senuna og
hefur hver flokkur sitt borö. Þor-
steinn Jónatansson efsti maður á
lista Samtakanna hefur sér til
fulltingis þá er skipa næstu þrjú
sæti á listanum, Jóhann Her-
mannsson, Jón Geir Lúthersson
og Eirik Jónsson.
Við næsta borö er Bragi Sigur-
jónsson efsti maður á lista Alþýðu-
fiokks með sitt fólk, Arna Gunn-
arsson, Jón Helgason og Astu
Jónsdóttur. Siðan kemur borö
Sjálfstæöisflokksins þar sem Jón
Sólnes situr eins og kóngur I riki
sinu en Jón er i efsta sæti. Með
honum eru Lárus Jónsson sem er
i öðru sæti og Halldór Blöndal
sem er i þriðja.
Fjórir efstu menn á lista Fram-
sóknarflokksins eru næstir en þaö
eru Ingvar Gislason, Stefán Val-
geirsson, Ingi Tryggvason og
Pétur Björnsson. Lokst er það svo
borð Alþýðubandalsgs. Þar eru
bara þrir ræðumenn eins og hjá
Sjálfstæðisflokknum. Stefán
Jónsson, Soffia Guðmundsdóttir
og Helgi Guðmundsson.
Hver flokkur fékk samtals 40
minútur til umráða og voru um-
ferðir þrjár, 20 minútur og siðan
tvisvar 10 minútur.
Samtakamaðurinn Jón Geir
talaði fyrstur og siðan hver á fæt-
ur öðrum fram til miðnættis er
Bragi Sigurjónsson flutti siðustu
ræðuna.
Ekki er ástæða til að rekja hér
hvað hver sagði. Deilt var um
þessi venjulegu mál á sama hátt
og á öðrum fundum og i fjölmiðl-
um. Aheyrendur hafa eflaust
verið hátt i 300 þegar flest var og
klöppuðu eftir hverja ræöu af
stakri kurteisi.
Þótt pólitikusarnir væru ekkert
að æsa sig brá þá stundum fyrir
nokkurri tiibreytingu.
Þorsteinn Jónatansson var bú-
inn a bauna nokkuð á „þurrabúð-
arbóndann Stefán Jónsson á
Hóli”. Jafnframt lýstu þeir Sam-
takamenn þvi yfir að Magnús
Torfi kæmist inn i Reykjavik og
það þýddi að flokkurinn fengi 3-4
menn á þing.
Af þessu tilefni sagði Stefán að
hver maður vissi að Magnús
kæmist ekki inn. Þetta minnti sig
á söguna af þvi þegar maður kom
á bæ nokkurn. Þar sat bóndinn og
var að reyna að troða graut i
kerlingu eina en hún tók illa við.
Gesturinn spurði bónda hvort han
sæi ekki að kerlingin væri dauð. —
Jú, svaraði bóndi, en þetta er nú
lika þrjóska!
Ingvar Gislason og aðrir fram-
sóknarmenn sáu ástæðu til að
vara fólk hvað eftir annað við hin-
um óttalegu siðdegisblöðum og
mátti skilja að þaðan væri allt illt
komið og þá ekki sist efling Al-
þýöuflokksins. Menn tóku þessum
viðbrögðum með jafnaðargeði.
Arni Gunnarsson lýsti yfir
óánægju sinni með þetta fundar-
form og er ég ekki i vafa um að
áheyrendur voru honum sam-
mála.
Ég hef aldrei verið á svona
stilltri samkomu i Sjallanum.
Þarna sátu menn stilltir og hljóð-
ir i hátt i fjóra tima og gátu ekki
keypt sér kaffi né aðra vökvun.
Aheyrendur voru á öllum kosn-
ingaaldri úr öllum flokkum ásamt
flokksleysingjum. Ekki var að sjá
að þeim leiddist en það var heldur
ekki að sjá að þeir skemmtu sér.
Maður var alveg jafn-nær um hug
fólksins til manna og málefna.
Það var boðað á þennan fund til
að hlusta en ekki til að láta i ljós-
skoðanir.
—SG.
Litið inn á kosningaskrifstofur á Akureyri:
##
FAUM KOSINN MANN
— segir Steindór Gunnarsson hjá Alþýðuflokki
##
Á kosningaskrifstofu
Alþýðuflokksins var
fólk i óða önn að stinga
bæklingum i umslög
sem siðan átti að senda
nýjum kjósendum. í
þessum bæklingum var
meðal annars að finna
stefnuskrá Alþýðu-
flokksins og gerð grein
efnahagsstefnu
fyrir
hans.
Kosningastjóri flokksins á
Akureyri, Steindór Gunnarsson
lögfræðingur fór varlega I spá-
dóma. „Viðstefnum að þvi að fá
hér kjördæmakosinn mann og
það skal takast. Um úrslit hjá
hinum flokkunum vil ég ekkert
segja en eins og sást I bæjar-
stjórnarkosningunum höfum við
unnið vel og auðvitað er ég von-
góður um úrslitin”, sagði
Steindór.
Hann sagði að framboðsfund-
irnir I kjördæminu hefðu gengið
vel og aðsókn verið góð. Hins
vegar væri greinilegt að sumir
fundarmanna vildu gjarnan fá
aö bera fram fyrirspurnir.
Steindór Gunnarsson sagði að
á stærri stöðum i kjördæminu
hefðu Alþýðuflokksfélögin sinar
kosningaskrifstofur og hvar-
vetna væri bjartsýni rikjandi.
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksins er I húsi við Strand-
götu og þaðan röltum við
Visismenn inn I Hafnarstræti
Steindór Gunnarsson
þar sem Framsóknarmenn hafa
sina miðstöð. —SG.
##
BYST VIÐ FYLGISTAPI
segir Oddur Helgason hjó Framsóknarflokki
##
Uppi á lofti i gamla
Dagshúsinu sátu þrir
menn á kosningaskrif-
stofu Framsóknar og
ræddu saman.
Kosningastjórinn sjálfur var
hins vegar upptekinn i herbergi
fyrir innan og meðan við biðum
fóru þessir þrir að ræða um dag-
blöðin.
„Þetta eru upplognar fréttir I
sumum blöðunum. Þeir búa
þetta bara til sjálfir”, sagði einn
skörulega og sendi útsendara
Visis augnaráð sem ekki varð
misskilið.
Nú kom Oddur Helgason
kosningastjóri fram og við
biðjum hann að spá um úrslitin.
„Ég býst við fylgistapi hjá
Framsóknarflokknum hér en
það verður ekki svo mikið að
okkar þriðji maður falli.
Alþýðuflokkurinn nær inn
manni og Lárus Jónsson fellur
en kemst inn sem uppbótar-
maður. Alþýðubandalagið vinn-
ur eitthvað á, en það sem listi
Samtakanna tók frá okkur i
bæjarstjórnarkosningunum
skilar sér nú aftur”, sagði Odd-
ur. Taldi hann vist að framsókn
héldi sinu fylgi i sveitum þótt
eitthvað kynni að saxast á það i
bæjunum.
Um hina sameiginlegu
framboðsfundi I kjördæminu
sagði Oddur Helgason að flest-
um fíymdist það meingallað og
fyrirspurnir væru ekki leyfðar.
Einnig væri fundartiminn of
langur og kvað hann
Oddur Helgason.
Framsóknarmenn hafa fengið
betri fundarsókn einir sér.
—SG.
„ANNAÐ SÆTIÐ ALLT-
AF BARÁTTUSÆTI"
— segir Halldór Blöndal, Sjálfstœðisflokki
„Auövitað erum viö bjartsýn-
ir, þaö vinnst ekkert meö þvi aö
væla”, sagöi Ottó Pálsson er
hann tök á móti okkur á kosn-
ingaskrifstofu Sjálfstæöis-
flokksinsi Kaupvangsstræti.
„Þiö skuluö tala viö Halldór
Blöndal, hann hefur vcriö á
feröalögum um allt kjördæmiö
ogfylgst meö þessu”, bætti Ottó
viö.
Halldór er fyrst spurður um
fundina i' kjördæminu. „Þeir
hafa yfirleitt verið vel sóttir.
Undirtektir fundarmanna hafa
verið upp og ofan eins og við
mátti búast. Mikil og rétt gagn-
rýni hefur komið fram á það að
heimamenn hafa hvorki fengið
að taka til máls né bera fram
fyrirspurnir. Ef ég tek aftur
þátt I slikri baráttu mun ég ekki
sætta mig við að heimamennfái
ekki að láta I sér heyra”.
Þegar hann var spuröur um
horfurnar I kosningunum sagði
Halldór Blöndal, sem skipar
þriðja sæti listans: Úrslit
bæjarstjórnarkosninganna báru
með sér að Sjaflstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur hafa
tapað verulegu fylgi. Viö höfum
rökstudda ástæbu til að ætla að
okkur takistaðeinhverju leyti að
rétta okkar hlut. Hve mikið
vitum við ekki. Annaö sæti
flokksins hér hefur alltaf verið
baráttusæti og við þurfum á öllu
okkar að halda til að missa ekki
það sæti.”
Að lokum sagði Halldór að nú
væri mun meiri kraftur I bar-
áttu sjálfstæðismanna en fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar.
Nauösynlegt væri að flokkurinn
fengitvo menn kjörna á Norður-
landi eystra til ab skapa naub-
Halldór Blöndal.
synlegt aöhald og mótvægi við
vinstri öflin. —SG.
Samtakamenn úti á akrinum
KISTiNN
Frá höfuöstöövum norö-
lenskra sjálfstæöismanna héldu
Visismenn áleiöis á kosninga-
skrifstofu Samtakanna i is-
kaldri noröangolunni. Fáir voru
á gangi enda fór litiö fyrir
Mallorka veöri á Akureyri I
noröangjólunni á þriöjudaginn.
Samtökin höföu merkt sér
rækiiega hús eitt viö Gránufé-
lagsgötuna og hugöum viö gott
til glóöarinnar aö koma inn i
hlýjuna.
Húsiö reyndist harölæst og
enginn maöur sjáanlegur ■ þar
innandyra. Þeir Samtakamenn
voru greiriilega aö störfum útiá
hinum pólitiska akri og viö
urðum frá aö hverfa. En vart
þarf aö efast um aö þeir sem
vinna aö framboöi Samtakanna
geri þaö af öllum kröftum ekki
siöur en menn annarra flokka.
—SG
Hér hafa Samtökin kosningaskrifstofu.
##
NU VIL EG EKKI SPA
— segir Angantýr Einarsson hjá Alþýðubandalaginu
##
Baráttumiöstöö Alþýöu-
bandalagsins er viö Eiösvalla-
götu.Þar lá maöur upp I sófa og
átti sér einskis ills von er viö
gerðum áhlaup á höfuöstööv-
arnar, bláir af kulda.
Ég var að hugsa um að spyrja
hvort hann væri einn af þessum
sófakommum sem stundum er
talað um, en þegar hann reis
upp sá ég að þetta var Angantýr
Einarsson er aldrei hefur verið
bendlaður við sófakomma svo
ég viti til.
Angantýr kosningastjóri • var
bjartsýnn og sagöi að Alþýðu-
bandalagiö myndi bæta viö sig
atkvæðum. En ekki vildi hann
hafa uppiákveðna spádóma um
fylgi floldtsins.
„Ég hef unnið við þetta frá
barnsaldri og bæði 1971 og 1974
settum viö saman spá sem var
mjög nærri lagi, skeikaði aðeins
örfáum atkvæðum. En nú vil ég
ekki spá. Hins vegar bendi ég á
að margt yngra fólk til sveita er
með okkur og úrslit bæjar-
stjórnakosninganna segja þvi
ekki allt um okkar fylgi”, sagöi
Angantýr. Um aðra flokka sagði
hann aö Lárus væri I mestri
hættu og raunar virtist hann
fallinn en Bragi Sigurjónsson
frá Alþýðuflokki kæmist inn.
Angantýr sagði að sameigin-
legu fundirnir væru alltof lang-
dregnir og liflausir. Það væri
ófært að kjósendur mættu ekki
láta I sér heyra.
„Fólk ber meira traust til
Alþýðubandalagsins en áður og
fýrir þessar kosningar hef ég
ekki heyrt um neinn sem ætlar
að yfirgefa flokkinn, eins og
Angantýr Einarsson.
stundum hefur átt sér stað”,
sagði Angantýr Enarsson. -SG
Texti: Sœmundur Guðvinsson Myndir: Jens Alexandersson