Vísir - 22.06.1978, Page 31
VÍSffi Fimmtudagur 22« juni 19T8
t>á er lausnin einfaldlega
sú, að nota frá upphafi
ARCHITECTURAL
SOLIGIMUM á viðinn.
Það er staðreynd, að
ARCHITECTURAL
SOLIGNUM flagnar ekki
af vlðnum og hefur
Architectural
SOUGNUM
VFR VIÐIIMINi FÚA
ÖKRISTJÁN ó.
jÉskagfjörð hf
Sími 24120
Ert þú búinn að
tippa?
Yísar á
Yidshiptin
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
Ert þú búinn að*,,tippa“ á þingmannafjölda flokkanna
í kosningagetraun okkar?
Hún getur fært þeim sem ,,tippa“ réttast góðan vinning
-okkur gerir hún kleiftað hjálpa öðrum.
Getraunamiða færðu í bönkunum, flestum apótekum,
kvöldsölum, og verzlunarmiðstöðvum.
Auk þess hjá Rauða krossinum.
Verið með
STÓRGJAFIR TIL HALL-
GRÍMSKIRKJU OG SKÁL-
HOLTSSKÓLA
Séra Harald Hope afhendir herra Sigurbirni Einarssyni gjafirnar frá
Noregi.
Visismynd —GVA.
Séra Harald Hope, frá Noregi, færöi í gær Hallgríms-
kirkju og Skálholtsskóla stórar fégjafir sem hann hafði
gengist fyrir söfnun á í Noregi. Gjöfin til Hallgríms-
kirkju var sjö milljónir íslenskra króna, en níu milljónir
til Skálholtsskóla.
Herra Sigurbjörn
Einarsson, biskup, sagði í
þakkarávarpi að nætur og
daga ynni séra Hope ís-
lenskri kirkju gott, en
fyndist hann samt aldrei
gera nóg og hefði því dund-
að í fáum frístundum sin-
um við að þýða Passiu-
sálmana á nýnorsku.
„Orö geta verið áhrifarik”,
sagði biskupinn. „En það er til
mll sem er sterkara en orð og þaö
mál, vinir og bræður sjáið þið i
augum þessa manns sem vill okk-
ur svo vel.”
Biskupinn sagði aö án Haralds
Hopes væri ekki Hallgrimskirkja
oröin eins og hún er og ekki komið
upp i Skálholti það sem þar er.
Hann bað Hope að flytja hlýjar
þakkir með sér heim til Noregs.
Séra Heimir Stigsson, skóla-
stjóri Skálholtsskóla og Hermann
Þorsteinsson, formaður safnað-
arnefndar Hallgrimskirkju, tóku
einnig til máls.
Þeir nefndu báðir ómetanlega
hlýju og aðstoð séra Hopes i
gegnum árin og færðu honum
innilegar þakkir.
—ÚT.
VÍSIR
Spennandi
Það má búast við að næsta
kjörtlmabil verði þrælspenn-
andi. Ef vinstri stjórn tekur
viö völdum verður það tæp-
ast nokkur „ólaffa”. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum
mun Framsókn tapa miklu
en kommar vinna á.
Sem flokkur á sigurgöngu
veröur það þvi Alþýðu-
bandalagið sem leggur lin-
una en ekki Framsókn, jafn-
vel þótt Framsókn yrði i
stjórn.
Það þýðir að varnarliöiö
hverfur úr iandi á næstu fjór-
um árum og talsveröir
möguleikar eru á úrsögn úr
NATO. Þá mun ætlunin aö
þjóðnýta ýmis fyrirtæki og
hafa Flugleiðir verið nefnt
sérstaklega.
Rauða dulan
i sambandi við varnar-
málin hefur það varla farið
framhjá mörgum að
stjórnarandstæöingar, og þá
sérstaklega Alþýðubanda-
lagið hafa helst ekki viljað
um þau tala.
Þegar óiafur Ragnar
Grimsson var spuröur um
þau f sjónvarpsþættinum var
eins og verið væri að veifa
rauðri dulu fyrir framan
naut. Hann sagði með of.forsi
miklu að það væri verið að
kjósa um kjaramálin og um
þau skyldi spurt.
Það er ekki nema von að
kommar séu tregir að ræða
þessi mál. Það er ekki svo
ýkja langt siöan rúmiega
fimmtiu og fimmþúsund is-
lendingar skrifuöu undir
jikjal þess efnis að þeir vildu
hafa varnarliðið áfram, að'
óbreyttu ástandi og halda
aðild landsins að NATO.
Það gæti komiö sér illa
fyrir komma ef þessir rúm-
lega fimmtiu og fimmþúsund
kjósendur sæju allt I einu aö
hverju stefndi. Siðasta
Keflavikurganga þeirra var
með eindæmum fámenn og
hjá Abl. gera menn sér fulla
grein fyrir að ekki er al-
mennur stuðningur við þenn-
an lið stefnu þeirra. Vonin er
þvi að sleppa framyfir
kosningar án þess að þetta
komist i hámæli. Eftir
kosningar eru þeim nokk
sama hvað menn segja.
Einar
Um óskhyggp
„Skoðanakannanir og
hyggja” heitir fyrirsögn á
grein sem Einar Agústsson,
utanrikisráðherra, skrifar I
Tlmann i gær. Einar telur
þar að skoðanakannanir slð-
degisblaðanna séu litt mark-
tækar, en I þeim báðum kom
fram að Framsókn muni
tapa miklu fylgi, Sjálfstæðis-
flokkurinn töluverðu en
vinstri flokkarnir sækja á.
Það er nú dálitiö undarlegt
að Einar skuli telja þetta
óskhyggju, yfirleitt hefur
Timann sakað sfðdegisblöð-
ín um að vera heildsalahand-
>endi og laumulega stuðn-
ngaaðila ihaldsins.
„Skoðanakannanir og ösk-
>yggja” er annars ágæt
ýrirsögn. Skoöaanakannan-
rnar voru hjá slðdegisblöð-
unum, óskhyggian hiá
Sinari. _