Vísir - 01.07.1978, Blaðsíða 30
30
Hvernig verður fólki við þegar bláókunnugur
maður vindur sér að því á götu og biður það um að
gretta sig?
Helgarblaðið brá á leik einn góðviðrisdaginn i síð-
ustu viku og efndi til samkeppni um frumlegustu
geif luna. Sérfræðingur blaðsins í uppákomum lagði
leið sina niður i miðbæ með þeim árangri sem sjá
má hér.
Af tilraun þessari er Ijóst, að tslendingum er
sýnna um ýmislegt annað en að sprella framan í
myndavélar. Yfirleitt urðu fórnarlömbin furðu
lostin, sumir brostu en aðrir litu á sérfræðinginn
með svip þess sem er sannfærður um að maðurinn
hljóti annað hvort að vera fullur eða vitiaus.i þess
um ef numsem öðrum, erum við greinilega á eftir
öðrum þjóðum. Grettur eru til að mynda orðnar
viðurkennd keppnisíþrótt í Bandaríkjunum og ein
sjónvarpsstöðin þar í landi efnir árlega til sam-
keppni um frumlegustu grettuna og eru há verðlaun
i boði. Sigurvegarinn i ár var miðaldra maður, sem
geif laði sig svo, að hann gat gleypt efri hlUta andlits
síns með neðri vörinni.
GRETTUR
OG
GEIFLUR
78
Helgarblaðið efnir til samkeppni
um frumlegustu geifluna
..Gretta mig? — Nei, er ekki miklu nær aö ég brosi?”
Texti: Sveinn Guðjónsson
Myndir: Gunnor V. Andrésson og
Jens Aiexondersson
Sérfræöingur Helgarblaösins spreytir sig. Hann var öruggur sigur-
vegari.
„Hvaö í ósköpunum...? — Þaö er
víst best aö foröa sér..”
„Viltu hafa hana svona...
.eöa kannski svona?”
„Nei, ég er nógu slæmur fyrir...”
Af hverju
gretta
menn sig?
Ýmsar óstœður geta legið
fyrir þvi að menn gretta
og geifia sig.
Oftast sýna menn með
því geðhrif af ólíku tagi
og skuiu hér tekin
nokkur dœmi:
Sórsauki
Að vando sig
Hrœðsia
Reiði