Vísir - 08.09.1978, Blaðsíða 14
Föstudagur 8. september 1978 VISIR___________________VISIR Föstudagur 8. september 1978
Umsjóá:
Gylfi kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
IþTömr
v
)
Sigl'ús keypti sér búning, tösku, skú og fútbolta og virftist á myndinni
vera harla ánasgður með lifið. — Visismynd: Jens.
ára og Sigfús Ásgeir
Kárason 12 ára, en þeir
höfðu heppnina með sér
siðast þegar við dróg-
um út nöfn þeirra
lieppnu úr hópi þeirra
sem sent hafa inn at-
kvæði.
Eftir að hafa skoðað sig vand-
lega um versluðu piltarnir fyrir
15 þúsund krónur hvor, en það var
sú upphæð sem þeir höfðu hlotið i
vinning. Arni keypti sér iþrótta-
búninga, fótbolta og tösku eina
mikla og Sigfús fékk sér skó, fót-
bolta, tösku og iþróttabúning.
Enn getur einn lesenda Visis
hrósað happi i sambandi við
þessa kosningu. Við eigum nefni-
lega eftir að draga út aðalvinn-
inginn en það er vöruúttekt fyrir
50 þúsund i versluninni Útilifi.
Þann vinning drögum við út
n.k. miðvikudagskvöld, og þá ein-
ungis úr nöfnum þeirra, sem hafa
kosið það lið, sem sigrar i keppn-
inni.
Skilafrestur er til kl. 18 n.k.
miðvikudagskvöld og um leið og
þú greiðir uppáhaldsliði þinu at-
kvæði þitt, þá eignast þú mögu-
leika á vöruúttektinni. Þaö þarf
aðeins að fylla út seðilinn hér að
neðan og senda okkur og þá ert þú
orðinn þátttakandi.
gk—•
Keppninni i 2. dcild islandsmútsins
i knattspyrnu lýkur i dag, en þá eru þrir
leikir á dagskrá. Vist er, að KR sigrar
og fer i 1. deild, og einnig að þaö veröa
Armenningar og Völsungar sem falla i
2. deild.
En um 2. sætiö i deildinni, sem gefur
sæti i 1. deild aö ári, er hörkubarátta á
milli Hauka ,ÍBt og Þúrs.
Leikirnir I dag eru á milli Völsungs og
Þrúttar á Húsavik kl. 15, Þúrs og Austra
á Akureyri kl. 16 og Fylkis og ÍBÍ i
Laugardal kl. 16.30.
Keppnin er 36 holur, 18 á morgun
og 18 á sunnudag. Ræst verður út á
morgun frá 10-14, og hægt er að
tilkynna þátttöku i þetta siðasta
stórmót sumarsins hjá GR í síma
84735.
Hin glæsilegu verölaun, sem eru iboöi i ÍSAL keppninni hjá GR um helgina.
JÚHAMS miOSSON
leikur ó Stylo skóm.
TR4
Fátt virðist
geta bjargað
nu
KA
„Þetta var alveg eftir ööru. Viö áttum
allan Ieikinn, en þurftum samt að tapa”
sagði Júhannes Atlason, þjálfari KA i 1.
deild, eftir aö liö hans hafði tapað fyrir
Þrótti á Laugardalsvelli i gærkvöldi.
Tapið þyddi aö KA er nú í mikilli fall-
hættu, sigri FH I siöasta leik sinum gegn
Breiðabliki.þá er KA falliö i 2. deild. —
Verði hinsvegar jafntefli i þeim leik þarf
aukaleik um falliö á milli FH og KA.
Við spurðum Júhannes aö þvi, hvort
það væri rétt að leikmenn KA-liösins
væruaðfara til Spánar i morgun. „Ekki
allir, en ég get ekki séö aö þaö skipti
nokkru máli”.
sér f jórða
Fram að þessu hafði KA haft yfir-
höndina allan siðari hálfleikinn, eftir
fremur jafnan fyrri hálfleik. En það
vantaði allan brodd i sóknarleik KA og
þeir voru ekki ógnandi uppi við mark
Þróttar.
TE 4
stærðir 6-11
Kr. 7.000,-
TR 2
stærðir 6-11
Kr. 5.287,-
TR 1
stærðir 2-5
Kr. 4.998,-
TAKIÐ EFTIR VERÐUNUM HEILDSÖLUBIRGÐIR
Tunguhálsi 11, R. Simi 82700.
Urðu að gera
Já, það var blóðugt fyrir KA-mennina
að tapa báðum stigunum i leiknum i
gær. Þeir voru betri aðilinn i leiknum
nær allan timann, en fengu svo á sig
klaufamark rétt fyrir leikslok.
Þá fékk Þorgeir Þorgeirsson boltann
fyrir markið.þar sem hann var aleinn og
virtist vera rangstæður Linuvörður og Arni Kristjánsson keypti sér fútbolta, iþrúttabúninga og töskuna gúöu,
dómari gerðu enga athugasemd, og sem hann hefur þegar sett búningana í. Vísismynd: Jens.
Þorgeir skoraði örugglega.
sœti oð góðu
Islenska landsliöiö I golfi, sem túk þátt
i Noröurlandamútinu i golfi I gær og
fyrradag, hafnaöi i 4. sæti á mútinu. Það
er betri árangur en áöur, enda náöi liöiö
þvi langþráöa takmarki aö leika undir
800 höggum samtals ef talið er „skor”
fimm bestu af sex, sem spila hvorn
keppnisdaginn.
Þessi árangur er, þótt góður sé, ekki
eins góður og liðið á að geta best. Það er
staðreynd, sem ekki er hægt að horfa
framhjá, aö það sem háir liðinu mest, er
hversu óvanir landsliðsmennirnir eru að
spila erlendis, það er það sem þá vantar
fyrst og fremst.
Þetta sást vel á mótinu i Sviþjóð nú.
Þá þurfti að telja fyrri daginn „skor”
allt upp i 86, en i gær var fimmti maður
á 80 höggum Þarna er fljótt að koma það
sem skilur okkur frá Dönum og Norð-
mönnum.
Sviar urðu öruggir Norðurlanda-
meistarar. Þeir léku á samtals 749
höggum. Noregur náði 2. sætinu eftir
mikla baráttu við Dani, lék á 783, Dam
mörk 785, tsland 799, Finnland 818.
1 gær lék Ragnar Ólafsson best Islend-
inganna, var á 76 höggum. Björgvin
Þorsteinsson var á 79, Sigurður Haf-
steinsson 79, Geir Svansson 80, Hannes
Eyvindsson 80 og Óskar Sæmundsson 84.
Um 80 kylfingar tóku þátt i keppninni
þessa tvo daga, og halda 32 þeir bestu
áfram i sérstakri keppni um Noröur-
landameistaratitil einstaklinga, sem
hóft i morgun. Þá er leikin holukeppni
með útsláttarfyrirkomulagi, og komust
þrirjslendinganna áfram. Það voru þeir
Björgvin Þorsteinsson sem leikur f dag
við Sviann fræga, Jan Rube, Hagnar
Ólafsson, sem mætir Holberg frá Svi-
þjóð, og Ueír Svansson, sem keppir við
Kalmarmeistarann Steffan Karlsson.
Róðurinn verður ugglaust erfiður hjá
islensku piltunum, en þeir mega vera
ánægðir að hafa komjst þó þetta langt.
JafnWiða NörburTandaképpni lands-
liðanna fór fram hin hefðbundna keppni
við Finna, og sigraði Island nú i þeirri
keppni i fyrsta skipti, hlaut 12 stig gegn
klp/gk-.
Segja má að liðin hafi aðeins fengið
eitt einasta marktækifæri i fyrri hálf-
leik, en það var á 32. minútu. Þá lagði
Elmar Geirsson boltann fyrir mark
Þróttar á Jóhann Jakobsson, sem var
þar aleinn, en skot Jóhanns fór yfir.
1 siðari hálfleik voru KA-menn mjög
ákveðnir og boltinn var lengst af upp-
undir vitateig Þróttara, sem greinilega
spiluðu upp á jafnteflið. En það vantaði
allan kraft og ákveðni i sókn KA-manna
og þvi tókst þeim ekki að skora.
Og svo kom mark Þorgeirs á siðustu
minútu leiksins eins og þruma úr heið-
skirulofti. Þróttarar fögnuðu mjög, þeir
eru áfram i 1. deild, en KA-menn eiga nú
yfir höfði sér fall i 2. deild.
Tveir menn báru nokkuð af i liði KA i
gær, en þaö voru þeir Gunnar Gislason,
eitilharður bakvörður, sem gefur aldrei
þumlung eftir, og Elmar Geirsson.
Hann gerði mikinn usla i vörn Þróttar
framan af, en var greinilega oröinn
mjög þreyttur er á leikinn leið.
Þróttaraliðið lék þennan leik eins og
fyrr sagði greinilega upp á jafnteflið, og
það var engin áhætta tekin. Liðið var
jafnt, en heppiö að þessu sinni. Hitt er
svo annað mál að Þróttur hefur sýnt
það i sumar að liðið er of gott til að falla
i 2. deild, enda skipað ungum leikmönn-
um að mestu, leikmönnum sem eiga
framtiðina fyrir sér.
gk--
Það var margt girni-
legt á boðstólum, þegar
tveir verðlaunahafar
Visis i sambandi við
kosninguna á vinsælasta
knattspyrnuliðinu 1978
mættu i versluninni úti-
lifi i Glæsibæ i gær.
Þetta voru þeir Árni
Kristjánsson, sem er 7
FH GETUR TRYGGT
SIG MEÐ SIGRI!
Nú er aöeins fjúrum leikjum
úlokið í 1. deild tslandsmútsins I
knattspyrnu, og verða þeir leiknir
á morgun utan einn. Valsmenn
Valur
Akranes
Vikingur
Keflavik
ÍBV
Fram
Þróttur
KA
FH
Breiðabl.
eru þegar tslandsmeistarar og
inunu væntanlega taka viö verö-
launum sinum aö lokum leiknum
við Akranes á Laugardalsvelli,
sem hefst kl. 15 á sunnudag.
Aðalathyglin beinist hinsvegar
að leik FH og Breiðabliks, sem
hefst i Kaplakrika kl. 14 á morg-
un. Takist FH að sigra eru þeir
áfram uppi og KA fellur ásamt
Breiðabliki. Verði jafntefli þarf
aukaleik á milli FH og KA um
fallið, en sigri Breiðablik fellur
FH.
A sama tima fer fram i Kefla-
vik leikur IBK og Vikings, og þar
er 3. sætið I húfi og sæti i UEFA
keppninni að ári. Loks er svo að
geta leiks IBV og Fram, en hann
hefst i Eyjum kl. 14 á morgun.
Handmóloð postulín
verðlaun! >
#
I
Það eru glæsileg verðlauniboði
fyrir sigurvegara i Isal golfkeppn-
fara upp
deild?
inni, sem framferf Grafarholtinu
um helgina. Er þar um'- áð ræða
handmálað postulín, hina glæsi-
legustu gripi, auk stórra farand-
bikara fyrir sigurvegar| i hverj-
um flokki.
Keppnin er flokkakeppni, og
verður keppt i m.fl. karla, 1. fl.,2.
fl.,3. fl. og í einum kvepnaflokki
með forgjöf.
Það gerír Steve Highway
einnig og fjölmargir aðrir
þekktir knattspyrnumenn
Nú eru Stylo æfingaskórnir
komnir i sportvöruverslanir um land allt.
Eitt af fáum tækifærum Þrúttar I leiknum I gærkvöldi. Þaö er Júhann Hreiöarsson, sem þama er kom-
inn í súknina og rcynir aö skalla boltann, en Þorbergur Atlason I markinu sá viö Júhanni og gúmaöi bolt-
ann áður en Júhann náði til hans. Siöan pressuöu KA-menn stlft, en Þorbergur mátti samt hiröa boltann
úr netinu hjá sér rétt fyrir leikslok.
Vísismynd: Einar.
KR-dagur ó
sunnudag
Hinn árlegi „KR-dagur” er á
sunnudag, og þá veröur mikið um
aö vera á svæði félagsins viö
Kaplaskjúlsveg. reyndar bæði úti
og inni.
Dagskráin hefst kl. 10 um
morguninn. og mun hver dag-
skrárliðurinn reka annan fram
undir kvöld.
M.a. verður keppt i knatt-
spvrnu. handknattleik. körfu-
knattleik. borðtennis og badmin-
ton.
Þá verður lyftingakeppni kl.
13,30 og þar ætlar Gústaf Agnars-
son að revna við Norðurlandamet
i 110 kg flokki.
Hverjir
í 1.
LIDIl) MITT
Atkvœðaseðill í kosningu VÍSIS um vinsœlasta
knattspyrnuliðið sumarið '78
LIÐIÐ MITT ER:
NAFN
IIEI.MILI
BYGGDARLAG
SYSLA
SIMI
STRAX1 POSl'
P.O. Box 1426, Reykjavik.
Sendu seðilinn til VÍSIS Siðumúla 14, Reykjavik
strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr
nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni
og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna
úttekt á sportvörum hjá ÚTILÍF í GLÆSIBÆ
Aukavinningurinn er dreginn er út í lok kosning-
arinnar úr atkvæðaseðluin þeirra, sem greiddu
vinsælasta liðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna
úttekt á sportvörum i VERSLUNINNI
ÚTILÍF í GLÆSIBÆ
VINNINGAR HALFSMÁNAÐARLEGA
Verslað í Útilífi!
— Liðið tapaði 1:0 fyrir Þrótti í gœrkvöldi og fellur, ef FH vinnur
Breiðablik um helgina — Þróttur bjargaði sér naumlega fyrir horn
Norðurlandamótið í golfi: