Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 1
13. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. JANÚAR 2001
FUNDIST höfðu 666 lík í El Salva-
dor í gær og var óttast að tala lát-
inna í jarðskjálftunum og aurskrið-
unum í kjölfar þeirra færi yfir þús-
und. Sex manns fórust einnig í
Gvatemala af völdum jarðhræring-
anna. Meira en þúsund eftir-
skjálftar hafa orðið í El Salvador
síðan á laugardag. Hægt gengur að
fá upplýsingar um tjónið í af-
skekktum byggðum landsins en að
sögn forseta landsins er vitað að
rúmlega 2.500 slösuðust og 45.000
hús skemmdust eða eyðilögðust.
Tjónið er metið á milljarð dollara,
eða sem svarar 84 milljörðum
króna. Íbúar í borginni Santa Tecla
gagnrýna stjórnvöld og þing lands-
ins fyrir að leyfa íbúðarbyggð í
fjallshlíð sem hrundi við skjálftann
og gróf hverfi undir aur.
El Salvador-búar bera hér hjálp-
argögn úr bandarískri herþyrlu í
bænum Comasagua, um 28 km suð-
vestan við San Salvador.
AP
Yfir 600 látnir í El Salvador
Skógarhöggi kennt/24
LAURENT Kabila, forseti Lýð-
veldisins Kongó, lést í gær af skot-
sárum sem hann fékk í árás eins af
lífvörðum hans, að sögn belgíska
utanríkisráðuneytisins í gærkvöldi.
Talsmaður ráðuneytisins sagði
að Kabila hefði orðið fyrir tveimur
byssukúlum en
frekari upplýs-
ingar hefðu ekki
borist um árás-
ina.
Fyrr um
kvöldið skýrði
heimildarmaður
Reuters-frétta-
stofunnar frá því
að Kabila hefði
orðið fyrir skot-
árás lífvarðar í
forsetahöllinni í Kinshasa. „For-
setinn varð fyrir tveimur byssu-
kúlum, einni í bakið og annarri í
fótinn. Hann særðist alvarlega og
var fluttur með þyrlu á sjúkra-
hús,“ sagði hann.
Hersveitir í
viðbragðsstöðu
Edy Kapend, skrifstofustjóri
forsetans, las tilkynningu í ríkis-
sjónvarpinu og kvaðst hafa skipað
hernum að loka aðalflugvellinum í
Kinshasa og landamærunum með-
fram Kongó-fljóti. „Bannað er að
beita vopnum án sérstakra fyr-
irmæla,“ sagði skrifstofustjórinn
og hvatti landsmenn til að halda
stillingu sinni.
Gaetan Kakudji, innanríkisráð-
herra og einn af helstu banda-
mönnum Kabila, sagði að hersveit-
um í Kinshasa hefði verið skipað
að vera í viðbragðsstöðu og hélt
því fram að Kabila hefði gefið fyr-
irmælin. Hann tilkynnti ennfremur
að útgöngubann hefði verið sett í
höfuðborginni.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Belgíu sagði sendiherra landsins í
Kinshasa hafa skýrt frá skot-
bardaga í grennd við forsetahöll-
ina. Símalínur hefðu verið teknar
úr sambandi í höfuðborginni og
sjónvarps- og útvarpssendingar
rofnar.
Kabila komst til valda í maí 1997
þegar hann steypti Mobutu Sese
Seko einræðisherra. Her Kabila
hefur barist við uppreisnarmenn
sem hafa reynt að steypa forset-
anum af stóli frá því í ágúst 1998
með aðstoð hermanna frá Úganda
og Rúanda. Kabila hefur hins veg-
ar notið stuðnings hersveita frá
Zimbabwe, Angóla og Namibíu.
Ekkert lát hefur verið á átök-
unum þrátt fyrir friðarsamning
sem undirritaður var í Lusaka,
höfuðborg Zambíu, fyrir einu og
hálfu ári. Allt að tvær milljónir
Kongóbúa hafa flosnað upp vegna
stríðsins og um 250.000 manns flú-
ið til grannríkjanna.
Lífvörður sagð-
ur hafa ráðið
Kabila bana
Kinshasa. Reuters, AFP, AP.
Laurent
Kabila
NORSK stjórnvöld ákváðu í gær
að leyfa útflutning á hvalafurðum í
trássi við alþjóðlegan þrýsting.
Telja Norðmenn sig geta flutt af-
urðirnar út til þriggja landa, Jap-
ans, Íslands og Perú, án þess að
brjóta samþykktir og reglur
CITES (Alþjóðasamtaka til vernd-
ar stofnum í útrýmingarhættu).
Otto Gregussen, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að stjórnvöld
teldu rökrétt að leyfa sölu á hval-
afurðum fyrst hvalveiðar væru
stundaðar en viðurkenndi að vissu-
lega mætti búast við hörðum við-
brögðum erlendis.
Gregussen og Thorbjørn Jag-
land utanríkisráðherra tilkynntu
ákvörðunina í gær en hún tekur
gildi á komandi hvalveiðivertíð.
Um er að ræða bæði kjöt og spik af
hrefnu og búast talsmenn hval-
veiðimanna við því að útflutningur
geti hafist eftir um tvo mánuði.
Hvalveiðimenn fagna
Hvalveiðimenn hafa fagnað
ákvörðun ríkisstjórnarinnar mjög
og talsmaður þeirra, Bjørn-Hugo
Bendiksen, segir að í fyrsta sinn
eftir margra ára baráttu finnist
honum hvalveiðimönnum hafa orð-
ið ágengt. Norðmenn hafa leyft
takmarkaðar veiðar á hrefnu frá
árinu 1992. Gregussen segir norsk
stjórnvöld hafa reynt um árabil að
fá alþjóðlegt samþykki fyrir því að
selja hvalkjöt og -spik úr landi án
árangurs. „Við neyddumst því til
að meta sjálfir hvað væri skyn-
samlegast að gera í stöðunni. Nið-
urstaðan varð sú að það væri rök-
rétt ákvörðun að leyfa sölu á
hvalafurðum fyrst við stunduðum
hvalveiðar og er hún studd vísinda-
legum rökum.“
Segir ráðherrann að útflutning-
urinn verði að hlíta ströngum út-
flutningsreglum og eftirliti til að
koma í veg fyrir að reynt verði að
flytja út aðrar tegundir en leyft er.
Í því sambandi hyggjast Norð-
menn hefja DNA-skráningu og
verður þess krafist að kaupend-
urnir geri slíkt hið sama til að
koma í veg fyrir ólöglegan útflutn-
ing.
Noregur, Ísland, Japan og Perú
eru einu löndin sem gert hafa fyr-
irvara við þá skilgreiningu CITES
að hrefna sé í útrýmingarhættu og
því verður til að byrja með aðeins
um útflutning til þessara þriggja
landa að ræða, mest til Japans. Á
þessu ári má veiða 549 hrefnur og
er talið að útflutningsverðmætið
nemi tæpum 500 milljónum ísl. kr.
Tekur Jagland fram að ekki sé um
mjög miklar fjárhæðir að ræða
heldur snúist málið einkum um
grundvallarreglur, að rökrétt sé að
selja afurðirnar. Gregussen tók
ennfremur fram að engar áætlanir
væru um að auka kvótann.
Bastesen fagnar sigri
Steinar Bastesen, þingmaður
Strandflokksins og einn helsti bar-
áttumaðurinn fyrir því að útflutn-
ingur á hvalafurðum verði leyfður,
sagði í gær að langri baráttu væri
nú lokið með sigri og fór ekki leynt
með að hann telur baráttu sína
hafa skipt miklu máli.
Árið 1997 sótti Bastesen um að
fá að flytja út 100 tonn af hvalspiki
til Íslands en því var hafnað. Áfrýj-
aði hann ákvörðuninni til stjórn-
valda sem vildu ekki taka ákvörðun
í málinu og því lagði hann fram
stefnu á stjórnvöld, sem taka átti
fyrir í mars nk. „Hefði ég ekki far-
ið fyrir dómstóla stæðum við ekki í
þessum sporum,“ sagði hann í gær.
Sjávarútvegsráðherra er á allt
öðru máli, segir það fjarri öllum
sanni að Bastesen geti þakkað
sjálfum sér útflutninginn.
Norska stjórnin leyfir útflutning á hvalafurðum
Telur útflutning
rökrétta ákvörðun
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Þingnefnd
yfirheyrir
Ashcroft
Washington. Reuters.
DÓMSMÁLANEFND öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings
hóf í gær yfirheyrslur yfir John
Ashcroft, sem George W. Bush,
verðandi forseti Bandaríkj-
anna, hefur tilnefnt í embætti
dómsmálaráðherra.
Ráðherraefnið hét nefndinni
því að framfylgja öllum lögum
landsins, jafnvel þeim sem
hann væri andvígur, og virða
úrskurð hæstaréttar Banda-
ríkjanna frá 1973 um að fóstur-
eyðingar væru heimilar.
Búist er við að tilnefningin
verði staðfest þótt Ashcroft sé
mjög umdeildur vegna íhalds-
samra skoðana sinna.
Edward Kennedy, einn
demókratanna í nefndinni,
kvaðst vera mjög efins um að
Ashcroft gæti framfylgt lögum
sem hann væri andvígur og
skírskotaði meðal annars til
andstöðu hans við fóstureyð-
ingar og hert eftirlit með
byssueign.
John Ashcroft kvaðst hins
vegar ætla að virða úrskurð
hæstaréttar Bandaríkjanna um
rétt kvenna til fóstureyðingar
þótt hann væri andvígur hon-
um.
„Verði ég dómsmálaráðherra
ætla ég að framfylgja lögunum
á þessu sviði eins og á öllum
öðrum sviðum,“ sagði ráð-
herraefnið.