Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 26
ERLENT
26 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
þrenn: Í fyrsta lagi að koma á svo-
kölluðum Tobin-skatti, sem hefur
nafngiftina frá bandarískum hag-
fræðingi og snýst um skattlagningu
gjaldeyrisyfirfærslna um 0,05–
0,1% og að leggja niður skattapara-
dísir. Í öðru lagi að koma í veg fyrir
að braskað sé með fjármagn í op-
inbera lífeyriskerfinu á hlutabréfa-
markaði. Og í þriðja lagi vilja með-
limirnir að skuldir þróunarlanda
verði afskrifaðar.
Komið hefur til harðra deilna í
Svíþjóð um Attac, sem hægrimenn
hafa á stundum sagt vera hóp
vinstriöfgamanna. Talsmenn Attac
í Svíþjóð, Aron Etzler og Henrik
Erntson, báðir 28 ára, segja það
hins vegar af og frá.
Meðlimirnir séu úr öllum stjórn-
málaflokkum, trúaðir og trúleys-
ingjar og á öllum aldri, þótt upp-
hafsmennirnir séu flestir á þrí-
tugsaldri, fólk sem vill ekki
endurtaka mistökin sem kynslóð
foreldra þeirra gerði ef marka má
orð tvímenninganna.
Eldra fólk hliðhollast Attac
Gallup í Svíþjóð hefur kannað af-
stöðu Svía til boðskapar Attac og
velt vöngum yfir því hvers vegna
hann höfði til fólks. Í grein sem Alf
Sjöström hjá Gallup ritar í Dagens
Nyheter segir að skýringarinnar sé
fyrst og fremst að leita í þeim gríð-
arlegu breytingum sem átt hafi sér
stað á síðasta áratug, bæði pólitísk-
um, tæknilegum og efnahagsleg-
um. Alþjóðavæðingin verði sífellt
meiri á kostnað hins þjóðlega.
Frjálsari gjaldeyrisviðskipti og
aukin tækni hafi í för með sér æ
meiri fjármagnsflutninga milli
landa, svo og spákaupmennsku
með gjaldmiðla sem hafi aftur leitt í
ljós veika stöðu þeirra. Sjöström
segir að hinar hefðbundnu lýðræð-
islegu stofnanir hafi oft á tíðum
ekki verið í stakk búnar að takast á
við alþjóðavæðingu í viðskiptum.
Þetta allt gerist á sama tíma og
lönd á borð við Svíþjóð hafi gengið í
gegn um kreppu í upphafi síðasta
áratugar sem hafi kallað á niður-
skurð á velferðarkerfinu. Dregið
hafi úr félagslegu öryggi og al-
menningi finnist bilið á milli ríkra
og fátækra hafa breikkað.
Þegar stjórnmálamenn taki óvin-
sælar ákvarðanir afsaki þeir þær
oftar en ekki með því að þeir séu
undir alþjóðlegum þrýstingi. Slíkt
sé ekki til þess fallið að auka tiltrú
almennings á Evrópusambandinu
og viðlíka stofnunum.
Niðurstaðan er sú að samkvæmt
nýrri könnun Gallup í Svíþjóð eru
um 58% fylgjandi hertum reglum
um gjaldeyrisviðskipti. Ekki var
spurt beint um stuðning við skatt-
lagningu á fjárhagsviðskipti en
Gallup telur að hann sé nokkru
minni en við hertar reglur.
Þá telja tæplega 60% að jafnrétti
sé mikilvægt og um 63% að félags-
legur jöfnuður sé mikilvægur.
Stuðningur við aukna aðstoð til
þróunarlanda er ekki jafnótvíræð-
ur, 27% telja hana af hinu góða.
Ekki var könnuð afstaða almenn-
ings til þess að lífeyrissjóðir tækju
þátt í kaupum og sölu á hlutabréfa-
markaði. Í Svíþjóð hefur fjöldi fólks
nýtt sér þennan möguleika en einn-
ig hefur komið til mótmæla þar sem
fólk hefur hafnað því að greiða í líf-
eyrissjóði vegna þessa.
Önnur könnun var gerð í síðustu
viku um afstöðu almennings til Att-
ac og kom í ljós að samtökin njóta
mests fylgis á meðal karla yfir sex-
tugt, um 49% en minnst fylgis hjá
fólki undir þrítugu, undir 40%. Þá
var það einkum ungt fólk sem ef-
aðist um ágæti samtakanna, þrátt
fyrir að þau hafi hafið göngu sína
sem námsmannasamtök.
ANDSTAÐA við alþjóðavæðingu
og krafa um aukna meðvitund al-
mennings eru lykilorð samtakanna
Attac, sem hafa nú teygt anga sína
til Norðurlanda. Þau voru stofnuð í
Frakklandi árið 1998 og er nú að
finna í tuttugu löndum. Nýjasta
deild Attac-samtakanna var stofn-
uð í Svíþjóð fyrir rúmri viku og hef-
ur komið af stað mikilli umræðu,
m.a. um skatta á gjaldeyri, sem er
eitt baráttumála Attac.
Attac eru ekki sérlega fjölmenn
samtök miðað þá athygli sem þau
hafa vakið. Í Svíþjóð eru stofnfélag-
arnir um 2.000 og í Frakklandi um
30.000. Erfitt hefur reynst að fá töl-
ur um meðlimi í öðrum löndum en
giskað hefur verið á að þeir séu um
100.000 um allan heim.
Eitt einkennismerkja samtak-
anna er að koma boðskap sínum á
framfæri á kraftmikinn hátt.
Reyndar svo að til átaka hefur
komið en Attac var einn af þeim
hópum sem stóð að mótmælunum
við fundi Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar, WTO, í Seattle og Prag.
Þau voru námsmannasamtök en
hafa náð til breiðs hóps fólk, t.d. er
talsmaður þeirra í Frakklandi að-
stoðarritstjóri Le Monde Diplom-
atique.
Skattur á gjaldeyri
og afnám skulda
Nafnið er stytting á Association
for the taxation of financial trans-
actions for the aid of citizens (Sam-
tök um skattlagningu fjármagns-
flutninga borgurunum til góða).
Boðskapur samtakanna er ekki
hinn sami í öllum aðildarlöndunum,
í Frakklandi þykir þjóðernisbragur
á honum. Þá eru samtökin víða hlið-
holl Evrópusambandinu, þó ekki í
Svíþjóð.
Þar í landi eru markmið Attac
Nýjasta deild Attac-samtakanna, sem starfa í 20 löndum, stofnuð í Svíþjóð
Andstaða við alþjóðavæðingu
og aukin samfélagsmeðvitund
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Reuters
Meðlimir Attac stóðu fyrir mótmælum í Nice í desember, þegar leið-
togafundur Evrópusambandsins var haldinn í borginni.
SAMNINGUR, sem fyrrverandi
liðsmaður brezku leyniþjónustunnar
MI6 hefur gert við rússneskt forlag
um útgáfu endurminninga sinna,
stefnir í að grafa alvarlega undan
leyniþjónustunni, eftir því sem Daily
Telegraph fullyrðir í gær.
Richard Tomlinson, sem starfaði í
fjögur ár á síðasta áratug í MI6, hef-
ur gert samning við bókaútgáfu í
Rússlandi um útgáfu bókarinnar
„Brotið mikla“ („The Big Breach“).
Að sögn heimildarmanna Daily Tele-
graph innan brezka stjórnarráðsins
standa rússnesk leyniþjónustuyfir-
völd að baki útgáfusamningnum,
sem tryggir Tomlinson 35.000 sterl-
ingspund, andvirði um 4,4 milljóna
króna, í höfundarlaun. Þykir tíma-
setning þessara tíðinda vera mjög
slæm fyrir brezku leyniþjónustuna.
Þar sem Stella Remington, fyrrver-
andi yfirmaður MI5, innanlands-
leyniþjónustu Bretlands, hefur
ákveðið að birta endurminningabók
gerir það forsvarsmönnum leyni-
þjónustunnar erfitt fyrir að fá því
framgengt fyrir rétti, að Tomlinson
skuli bannað að birta sínar endur-
minningar, á grundvelli gildandi laga
um leyniþjónustuna.
Valdir útdrættir úr bók Tomlin-
sons birtust í The Sunday Times um
helgina. Þar er m.a. fjallað um verk-
efni sem hann vann að fyrir MI6 í
Bosníu og gegn Rússlandi og Íran.
Einnig er gefið í skyn að í bókinni sé
að finna nákvæmar lýsingar á vinnu-
lagi MI6, svo sem við þjálfun nýliða.
Forsvarsmenn MI6 eru sagðir
ólíklegir til að horfa uppá slíkar lýs-
ingar birtast á prenti mótaðgerða-
laust. Þykir staðan nú sambærileg
við það þegar „Spycatcher“, bók Pet-
ers Wrights, fv. háttsetts foringja í
MI5, var gefin út í Ástralíu fyrir fá-
einum árum. Útdrættir úr henni
voru líka birtir í Sunday Times.
Endurminningar
fyrrverandi liðsmanns
MI6 birtar í Rússlandi
Brezka
leyniþjón-
ustan í vörn
Lundúnum. The Daily Telegraph.
BRESKUR kaupmaður var dreginn
fyrir rétt í borginni Sunderland í
fyrradag fyrir að neita að verðleggja
og vega vöruna samkvæmt metra-
kerfinu. Er um að ræða prófmál, sem
snerta mun tugþúsundir kaupmanna
um allt Bretland.
Breskir Evrópuandstæðingar hafa
tekið þetta mál upp á sína arma en
kaupmaðurinn, Steven Thoburn, er
sakaður um að hafa selt banana sam-
kvæmt gamalli vog eða í breskum
pundum. Eleanor Sharpston, lög-
maður borgarinnar, segir málshöfð-
unina tilkomna vegna þeirrar skyldu
yfirvalda að koma í veg fyrir mis-
skilning og tryggja, að allir kaup-
menn noti sama mæli. Ef ein versl-
unin notaði gamla málið og önnur
metrakerfið, væri útilokað að bera
saman verðið. Thoburn á yfir höfði
sér allt að 250.000 króna sekt fyrir að
neita að taka upp metrakerfið.
Evrópuandstæðingar
blása í herlúðra
Stuðningsmenn Thoburns hafa
safnað rúmlega fimm milljónum
króna til að kosta málareksturinn en
hugsanlegt er, að málið fari alla leið
fyrir æðsta dómstigið í Bretlandi, lá-
varðadeildina. Þá hefur sá flokkur,
sem beinlínis var stofnaður til að
berjast gegn Evrópusambandinu,
The Independence Party, og samtök-
in Mál og vog skorað á alla sína fylg-
ismenn að snúa nú bökum saman.
Bæjarstjórnin í Sunderland hefur
aftur á móti beðið ríkisstjórnina um
styrk en áætlað er, að málarekstur-
inn kosti hana rúmlega 25 millj. kr.
Breski Íhaldsflokkurinn ætlar
heldur ekki að láta þetta tækifæri sér
úr greipum ganga og í gær ætlaði Al-
an Duncan, talsmaður flokksins í við-
skiptamálum, að fara til Sunderlands
til að lýsa yfir stuðningi við Thoburn.
Það sama hafa gert ýmsir kunnir ein-
staklingar, til dæmis J. K. Rowling,
höfundur Harry Potter-bókanna.
Sinnti ekki viðvörunum
Fyrir rúmu ári var breskum kaup-
mönnum bannað að selja vöru eftir
pundum og únsum. Í febrúar í fyrra
kom eftirlitsmaður í verslun Thob-
urns og sagði honum, að tvær vogir í
versluninni, sem aðeins notuðu gamla
mælinn, væru ólöglegar. Var honum
gefinn frestur í 28 daga til að bæta úr
því. Thoburn lét það ógert og segist
heldur munu fara í fangelsi en borga
sekt. Hann og Neil Herron, þjáninga-
bróðir hans og fisksali í Sunderland,
ætla að bjóða sig fram í næstu þing-
kosningum til að vekja ærlega athygli
á málinu.
Michael Shrimpton, lögfræðingur
Thoburns, heldur því fram honum til
varnar, að bresku lögin um mál og
vog frá 1985 séu ríkari tilskipunum
Evrópusambandsins jafnvel þótt þær
hafi verið teknar inn í breska löggjöf.
Segir hann, að þingið verði að setja
ný lög um mál og vog og þar til það
hafi verið gert séu viðskiptahættir
Thoburns löglegir.
Tekist á um mál og vog
fyrir rétti í Bretlandi
London. Daily Telegraph.
Reuters
Steven Thoburn í verslun sinni með banana og eins og sjá má vill hann
fá rúmar 30 kr. ísl. fyrir pundið en í Bretlandi eru það 453,6 grömm.
HERFORINGJAKLÍKAN sem fer
með völdin í Búrma, öðru nafni
Myanmar, hefur skipað fjölmiðlum í
landinu að stöðva árásir á stjórn-
arandstöðuleiðtogann Aung San Su
Kyi og flokk
hennar, Þjóð-
arbandalagið
fyrir lýðræði,
NLD. Þykir þetta
benda til þess að
senn muni
fulltrúar stjórn-
valda og Suu Kyi
hefja viðræður
um lausn á deil-
um lýðræðissinna
NLD við herfor-
ingjana. Opinberlega hafa slíkar
viðræður ekki farið fram síðan 1994.
„Ákvörðun stjórnarinnar um að
stöðva árásir á NLD og þá einkum
leiðtoga þess, Aung San Suu Kyi, er
jákvætt skref og vonandi fylgja
fleiri slík merki um góðan hug í kjöl-
farið,“ sagði stjórnmálaskýrandi í
höfuðstaðnum Rangún sem herfor-
ingjar nefna Yangon. Talið er að
næsta skrefið geti orðið að stjórn-
völd láti lausa úr fangelsi nokkra af
frammámönnum NLD.
Suu Kyi er friðarverðlaunahafi
Nóbels og flokkur hennar vann yf-
irburðasigur í frjálsum kosningum
fyrir um áratug en herforingjarnir
ákváðu að hunsa úrslitin. Hún hefur
verið í stofufangelsi frá 22. sept-
ember sl. Skömmu áður hafði hún
ásamt nokkrum stuðningsmönnum
reynt að ferðast út á land til að
sækja fund með liðsmönnum NLD,
en stjórnvöld stöðvuðu för hennar.
Dagblöð og aðrir fjölmiðlar hafa
undanfarin ár hellt fúkyrðum yfir
Suu Kyi og birt af henni skopmynd-
ir. Hefur hún meðal annars verið
sökuð um að vera svikari við kyn-
þátt sinn en eiginmaður hennar var
Breti, Michael Aris, og eignuðust
þau tvo syni. Aris lést úr krabba-
meini fyrir tveim árum en Suu Kyi
þorði ekki að fara úr landi til að
vera við útförina vegna þess að ljóst
þótti að herforingjarnir myndu ekki
leyfa henni að snúa aftur heim.
Sendimaður ESB til Búrma
Talið er að með stefnubreyting-
unni hafi herforingjarnir verið að
koma til móts við óskir sérstaks
sendimanns Sameinuðu þjóðanna,
Razalis Ismaels, sem var milli-
göngumaður í leynilegum viðræðum
Suu Kyi og Khin Nyunts hershöfð-
ingja, en þær hófust í fyrra. Til-
kynnt var í gær að sendimaður Evr-
ópusambandsins myndi sækja
Búrma heim í lok janúar. Mun hann
eiga viðræður við fulltrúa stjórn-
valda og stjórnarandstöðunnar, en
haft var eftir háttsettum embættis-
manni innan ESB að tilgangur heim-
sóknarinnar væri að meta þann ár-
angur sem náðst hefur í sátta-
umleitunum milli fylkinganna í
landinu.
Herforingjastjórnin í Búrma
Ríkisfjölmiðlar stöðva
árásir á Suu Kyi
Aung San
Suu Kyi
Rangún. AFP.